Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Lífshættulegu sjúkdómarnir sem enginn vill ræða

Lífshættulegu sjúkdómarnir sem enginn vill ræða
Mynd/Envato Elements

Það er auð­velt að horfa fram hjá myrkum hliðum sam­fé­lags­ins. Ótti og van­þekk­ing mótar barna­lega þjóð sem forð­ast að mæta stór­hættu­legum vanda­málum sem stofna tugum lífa í hættu ár hvert. Börnin okkar eru að deyja.

Ég fékk skila­boð frá systur minni, þar sem hún sagði mér frá því að sonur hennar hafi misst annan vin, hann var tví­tugur. Ef ég hefði fengið ein­hverju ráðið, hefðu við­brögð mín verið önnur. Ég hefði starað gap­andi á skjá­inn og velt vöngum yfir því hvað hafi komið fyrir dreng­inn, hvaða hræði­lega slys gæti tekið líf manns sem var rétt að byrja. Raunin var önnur, ég var ekki hissa og hvað þá gap­andi. Stað­reyndin er sú að tvær orsakir eru í yfir­gnæf­andi meiri­hluta dauðs­falla ungs fólks. Sjálfs­víg og mis­notkun áfengis eða fíkni­efna. Úrræði fyrir þá sem glíma við fíkn eða geð­sjúk­dóma eru nán­ast engin. Geðdeild Land­spít­al­ans er að hruni komin og bráða­mót­taka geðsviðs þekkt fyrir van­hæfni sína. Biðtími eftir aðstoð geð­læknis er ára­langur og sál­fræði­þjón­usta er fyrir þau efn­uðu. Fíknig­eð­deild og SÁÁ eru þeir tveir staðir sem ein­stak­lingur með fíkni­vanda getur leitað til. Sjúkra­húsið Vogur sem rekið er af SÁÁ er úrræði sem reynst hefur mörgum vel. Þar leggj­ast sjúk­lingar inn í afeitrun, en miðað er við um tíu daga dvöl. Eftir inn­lögn á Vogi er boðið upp á með­ferð, ýmist á göngu­deild eða inniliggj­andi. Báðir mögu­leik­arnir eru kostn­að­ar­samir enda fær SÁÁ aðeins hluta af rekstr­ar­kostn­aði sínum greiddan frá rík­inu.

Alls staðar þar sem veitt er geð­hjálp, grein­ing eða með­ferð eru langir biðlistar. Margir hafa misst lífið áður en hægt var að veita þeim nokkra aðstoð. Biðin var ein­fald­lega of löng.

Í ára­tugi hefur lausnin verið talin sú sama: Fang­els­is­dómar og for­varn­ar­starf þar sem ung­lingum er sýnd mynd af heila og þeim sagt að vera helst ekk­ert að nota fíkni­efni.

Ímyndum okkur aðstæður: Fjórtán ára drengur situr í skóla­stofu. Sýnd er glæru­sýn­ing sem fjallar um afleið­ingar þess að mis­nota fíkni­efni. Hann er með önnur lífs­mark­mið og sér ekki fyrir sér aðstæður þar sem hann leitar í slíkt. Eftir langa og leið­in­lega fræðslu gengur dreng­ur­inn út úr stof­unni og heldur áfram út í lífið sem hann er ákveð­inn í að sigr­ast í. Eftir nokkur ár láta geð­sjúk­dómar á sér kræla. Lífs­mark­miðin skipta ekki lengur máli og van­líðan tekur yfir­hönd­ina. Hann leitar svara en alls staðar er upp­bókað. Heim­il­is­læknir ávísar á hann þung­lynd­is­lyfjum, þau gera lítið gagn. Hann er rek­inn úr skóla fyrir slaka mæt­ingu og endar sem kassa­starfs­maður á bens­ín­stöð. Van­líð­anin er sterk, en lausn­irnar engar. Þegar hann finnur hálf­slítra vod­kaflösku í eigu for­eldra sinna er glæru­sýn­ingin löngu horfin úr minni hans. Óþrosk­aður fram­heil­inn telur ómögu­legt að nokkuð geti skaðað hann. Áfengið linar þján­ing­arnar og fljótt hefur hann þróað með sér fíkni­sjúk­dóm. Neyslan stig­magn­ast og vímu­efnin hætta að virka líkt og þau gerðu í upp­hafi. Dreng­ur­inn gefst upp.

For­varn­ar­fræðsla virkar ekki á ung­linga. Þeir eru ekki með þroska til þess að horfa á líf ann­arra sem farið hefur úrskeiðis og sjá ekki fyrir sér að slíkt hið sama geti auð­veld­lega komið fyrir þá sjálfa. Að grípa unga fólkið ef allt fer úrskeiðis er það eina sem hægt er að gera. Það er þó ekki mögu­leiki þegar úrræðin eru engin.

Lög­reglan fylgist grannt með fíklum, jafn­vel sér­sveit Rík­is­lög­reglu­stjóra. Eitt aðal­ein­kenni sjúk­dóms­ins er stjórn­leysi sem leiðir oft af sér smá­glæpi. Það eitt að vera fík­ill er refsi­vert sem varðar sektum og fang­els­is­vist. Ekki veit ég hver fékk þá hug­mynd að það væri lausn falin í því að stimpla fíkla sem glæpa­menn, en þessu hefur verið fylgt eftir í áraraðir. Ef þér er síend­ur­tekið sagt að þú sért glæpa­maður þá upp­li­f­irðu þig sem slíkan og fylgir því hlut­verki sem þér var úthlutað. Skuld­irnar fyrir glæp­ina sem framdir eru í hreinni örvænt­ingu safn­ast saman og gera hug­mynd­ina um betra líf enn þá langsótt­ari. Fíkni­efna­stríðið er löngu tapað. Efnin verða sterk­ari og fíkl­arnir verða fleiri. Börn og ung­menni deyja.

Í sex­tíu blað­síðna skýrslu heil­brigð­is­ráð­herra fyrir árið 2021 er einu sinni minnst á fíkla. Í fyr­ir­ferð­ar­lít­illi máls­grein er greint frá tutt­ugu millj­ónum sem settar voru í skaða­minnk­andi úrræði.

Á meðan situr heil þjóð við tölvu­skjá­inn og myndar sér skoðun á því hvort að Edda Falak sé guðs­gjöf eða svik­ari. Umræður um verð­hækkun á papriku og aðra smá­muni yfir­tekur lands­menn. Ríkar stelpur fá styrki til þess að fram­leiða sjón­varps­efni um for­rétt­inda­stöðu sína. Það er eng­inn að tala um alla þá sem létu lífið vegna van­getu stjórn­valda til að veita lífs­hættu­lega veiku fólki aðstoð að neinu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina