Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lúxusbílakaup Íslandsbanka: „Þetta er bókhaldslegur feluleikur til að hækka ekki launin beint“

Lúxusbílakaup Íslandsbanka: „Þetta er bókhaldslegur feluleikur til að hækka ekki launin beint“
Mynd / Hákon Davíð|Íslands­banki

Fram kom í svari sam­skipta­afull­trúa Íslands­banka í frétt Mannlíf um dag­inn, að kaup á lúx­us­bif­reiðum til handa stjórn­endum bank­ans, séu dregin frá mán­að­ar­launum þeirra. Þegar frekar er rýnt í málið sést að aðeins er um skatt­skyldar greiðslur að ræða.

Sjá einnig: Keyptu lúxusjeppa fyrir 15 millj­ónir – Leynd­ar­hjúpur um bíla­kaup fyrir toppa Íslands­banka

Líkt og Mannlíf sagði frá um dag­inn voru sjö lúx­us­bif­reiðar keyptar nýlega handa stjórn­endum Íslands­banka en frek­ari upp­lýs­ing­arnar um kaupin voru af skornum skammti hjá bank­anum.

Edda Her­manns­dóttir, sam­skipta­full­trúi Íslands­banka sagði í sam­tali við Mannlíf að ell­efu æðstu stjórn­endur bank­ans hefðu fengið svokölluð bíla­hlunn­indi en að sjö þeirra hefðu end­ur­nýjað bíla á síð­ustu mán­uðum vegna stefnu­breyt­ingu bank­ans þegar kemur að sjálf­bærni. Fullyrti Edda að bíla­hlunn­indin væru svo dregin af föstum mán­að­ar­launum hjá öllum nema banka­stjóra. Þegar Mannlíf bað um nán­ari útlist­anir á þessu benti hún á Skattinn.

Og það gerði Mannlíf. Samkvæmt Skatt­inum er borg­aður skattur upp á 165 þús­und krónur á mán­uði af 15. milljón króna bif­reið en það er tala sem að minnsta kosti fimm bif­reiðar kost­uðu sem keyptar voru handa stjórn­endum Íslands­banka. Þannig að ekki er um annað að ræða en lög­skyldar skatt­greiðslur en ekki frá­dráttur vegna bíla­hlunn­enda.

Er Mannlíf leit­aði við­bragað frá Ástu Þórdís Skjald­dal sam­hæf­inga­stjóri PEPP, sam­taka fólks í fátækt sagði hún „Ég var að tala við hreyfi­haml­aða konu í 60 fm íbúð um hækkun á húsa­leigu yfir 300 þús­und rétt í þessu og beint yfir þetta – þetta er bók­halds­legur felu­leikur til að hækka ekki launin beint. Ég lít á þetta þannig að í raun er verið að hækka laun við­kom­andi. Það er þannig núna að fyr­ir­tæki vilja ekki kom­ast í sviðs­ljósin vegna þess að það var að hækka launin. Þetta er bara leið til að hækka laun þess­ara starfs­manna.“

Ásta segir einnig að um ákveðin hvít­þvott sé að ræða þegar það kemur að sjálfum bíl­unum. „Þetta eru dýrir bílar og þarna er ákveð­inn hvít­þvottur líka að eiga sér stað því að vissu­lega viljum við öll vera umhverf­is­vænni en að nota það að við viljum vera umhverfsi­vænni til þess að fela ákveðna launa­hækkun og sporslu, það er nátt­úru­lega ekk­ert annað en hvít­þvottur.“ Bætti hún við: „Hverjir eru það í sam­fé­lag­inu sem hafa efni á að kaupa þessa bíla? Það er efri milli­stéttin og þeir sem eru þar fyrir ofan. Og svona hátt­settir banka­starfs­menn hafa alveg efni á að kaupa sér þessa bíla sjálfir. Þannig frá mínum sjón­ar­hóli þá er ein­hvern veg­inn alltaf verið að hag­ræða hlut­unum þannig að hinir fátæk­ari verði alltaf fátæk­ari og þeir sem mest hafa, fái meira.“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins hnaut að orð­unum um banka­stjór­ann er Mannlíf spurði hana út í frétt­ina: „ Það kemur fram í frétt­innni hjá ykkur að bíla­hlunn­indin drag­ist af föstum mán­að­ar­launum, nema hjá banka­stjór­unum. Það ríkir mikil verð­bólga, á meðan að bankar græða á tá og fingri og laun banka­stjóra eru mjög há og því ætti banka­stjóri ekki að þurfa að fá nið­ur­greiddan bíl. Þetta dregur fram stétta­skipt­ing­una í þessu landi, þar sem sumir fá hlunn­indi og allskyns bónusa á meðan að almenn­ingur þarf að greiða síhækk­andi gjöld, meðal ann­ars í bönk­unum og getur ekki dreymt um að fjár­festa í bíl.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina