Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ísbjarnaárásin á Eldjárnsstöðum – Þegar hundar björguðu ábúendum og guldu með lífi sínu

Ísbjarnaárásin á Eldjárnsstöðum – Þegar hundar björguðu ábúendum og guldu með lífi sínu
Hvíta­birnir eru fal­leg dýr en stór­hættu­leg ef þau eru svöng.

Frosta­vet­ur­inn mikla 1918 var einn af bænd­unum á Eld­járns­stöðum á Langa­nesi á Norð­ur­landi Eystra, Kristján Jónsson að sækja vatn í brunn, örlít­inn spöl frá þrí­býl­inu. Þegar Kristján var kom­inn álengdar tók hann eftir hvítri skeppnu á stærð við væna kind, að því er honum sýnd­ist í fyrstu. Þegar skepnan tekur eftir honum gerir hún sig breið­ari og hleypur til móts við bónd­ann og sér þá Kristinn að um hvíta­björn er að ræða. Tekur hann þá á sprett að bænum með björn­inn á hæl­unum.

Nágranni bónd­ans, Hólm­steinn Helgason frá Ásseli skrif­aði frá­sögn af bar­daga ábú­end­anna á Eld­járns­stöðum við hinn hvíta vágest og sendi Morg­un­blað­inu. Frá­sögnin er hin æsi­leg­asta og sannar svo sann­ar­lega að hund­ur­inn er besti vinur manns­ins en alls lét­ust tveir hundar í bar­daga við björn­inn. Lýsingu Hólm­steins má lesa hér að neðan:

Ágengur isbjörn.

Marga hér um slóðir hefir furðað á því atviki, er hér fer á eftir, og sökum þess, að fleirum mun þykja þetta tíð­indum sæta, skal reynt að skýra það í sem fæstum, en þó sönn­ustum, orðum að kostur er, svo blöðin og almenn­ingur fái það svo óbrjálað sem unt er, því sögum sem þess­ari hættir við mis­þyrm­ingu og aflögun á langri leið, og hefi eg þegar tölu­vert orðið var við það, bæði í gegnum síma og mann­lega frétta­þræði. Aftaka stór­hríðar hafa gengið hér und­an­farna tíð, — hófust 3. jan. — með þeim aftaka frost-grimdum, að elztu menn muna varla slíkt, og það þeir, sem vel mundu frosta­vet­ur­inn mikla 1880—1881. Þegar loks birti upp, 14. jan., var orðin haf­þök af ís hér fyrir Langa­nesi norð­an­verðu. Föstu­dag­inn 18. jan. gekk einn bónd­inn á Eld­járns­stöðum hér í sveit — því þar er þrí­býli — til brunns, sem er örlít­inn spöl frá bænum, með tvær skjólur, eftir vatni. Þá hann er kom­inn rúm­lega út af hlað­inu, sér hann framundan sér hvíta skepnu á stærð við væna kind, er sam­stundis teygir sig í sundur, og fer þá skjótt meira fyrir dýr­inu, þar sem það kast­ast á móti mann­inum.

Bóndi þekkir þegar skepn­una, og tók á rás undan til bæjar. En sem hann er kom­inn nálega að bæj­ar­dyrum, er dýrið á hælum honum, en hann tekur þá það til bragðs að þeyta skjól­unum aft­ur­fyrir sig, ef ske kynni að dýrið stöðv­að­ist við það, stökk svo inn úr dyr­unum, æpandi öðrum til við­vör­unar, og hafði ei tóm til að loka bænum á eftir sér, svo dýrið stökk þar inn á eftir honum. En þá bar tvent til að hann komst undan, bæði það, að hundar tveir, er í bænum voru, tóku á móti dýr­inu, og það snérist að þeim, og að bóndi gat skot­ist í hlið­ar­göng úr bæj­ar­dyrum og þaðan til bað­stofu sinnar, sem er á lofti. En annar hlið­ar­gangur lá og úr bæj­ar­dyrum og til íbúð­ar­húss ann­ars bónda, sem er á gólfi, með geymslu­lofti yfir. Inn í þenna gang barst leik­ur­inn milli bangsa og sepp­anna; en inni í þessu húsi var stúlka —• systir bónd­ans þar — sem ekki var komin á fætur — því þetta bar við árla dags­ins. — Hún heyrði ópið í bónd­anum er hann fór inn, og atgang­inn frammi, og datt strax ísbjörn í hug; snar­að­ist fram úr rúm­inu og fór fáklædd upp á loftið yfir hús­inu. Dýrið rudd­ist inn í húsið þar sem stúlkan áður var, en þá skauzt hún fram til bónd­ans, sem fyrst varð fyrir dýr­inu, Krist­jáns Jóns­sonar, snar­aði yfir sig jakka af honum og brá sér til fjár­húsa í útjaðri túns, að láta pilta er þar voru að gegn­ingu, vita tíð­indin.

Þeir brugðu við, fjórir saman, og réð­ust til bæjar með stúlkunni, fóru þau upp á bæinn, því ekki þorðu þau í bæj­ar­dyrnar, af ótta fyrir að mæta bangsa þar. Þau hafa skamma stund á bænum dvalið er þau sjá bangsa stinga hausnum út um rúðu á glugga, á hinu áður umgetna bað­stofu­húsi, og í sama bili koma allan út um glugg­ann, því hann var á hjörum og lét því undan er á hann var ýtt. Stúlkan tók þá til fót­anna inn og karl­menn­irnir á eftir. Einn þeirra, Jónas bóndi Aðal­mund­ar­son, bróðir stúlkunnar, skall í kvos­inni fyrir fætur bangsa, sem þar var kom­inn. En með pilt­unum, er voru í hús­unum, var stór hundur og vel viti­bor­inn, sem stökk á bangsa, er hann ætl­aði að ráð­ast að mann­inum.

Með aðstoð hinna komst bóndi fljótt á fætur og inn yfir þrösk­uld­inn, síðan lok­uðu þeir bænum; en bangsi drap sepp­ann taf­ar­laust, studdi síðan með hramm­inum á bæj­ar­dyra­hurð­ina, svo að kengur, sem loku hurð­ar­innar var skotið í, drógst út, og hurðin opn­að­ist. En þar sem bangsi sá engan í dyr­unum, sneri hann þar frá og fór upp á bæinn nasandi úr slóð fólks­ins, sem áður er um getið, en hafði auð­vitað ekk­ert upp úr því. Gluggi, á loft­bað­stofu Kr. Jóns­sonar bónda, með fjórum rúðum smáum, velt fram á hlaðið; er á að geta rúm­lega 4 álna (2,50 m.) hæð upp í hann af hlað­inu, en nú var þar um álnar þykkur snjór. Þaðan hefir víst bangsi heyrt manna­mál, því að þar var fólkið saman komið; reisti hann sig þar á hlað­inu, leggur fram­hrammana upp í glugga­kist­una og hugar inn, og það segja þeir, er horfð­ust þá í augu við hann, að hefði verið ófrýni­leg ásýnd, en inn hefir hann að lík­indum eigi treyst sér að smjúga sökum hæð­ar­innar og ef til vill smæddar glugg­ans; sneri því að hræ­inu af dauða hund­inum, dró það austur fyrir bæinn og tók að stýfa bráð­ina. Inni í bænum var aftur unnið að því að þrífa til byssur, er bæði voru ryðg­aðar og frosnar á geymslu­lofti, því að um þessar mundir er ekki mikið í þau verk­færi að láta, og eigi heldur margt að skjóta í þessum – harð­indum.

Loks er verk­færin voru komin í lag, var hægt að láta bangsa verð­skuld­aðan greiða í tó. Eigi gekk það samt, að öllu búnu, vel, að leggja bangsa á eyrað. Maðurinn, sem átti að skjóta hann, — Jón Jóhann­es­son — fór upp á bæinn, og þaðan upp á bað­stofustafn, þann sem bangsi var undir, að snæð­ingi. Þaðan voru um 3 metrar til jarðar, svo eigl var hægt fyrir bangsa til skjótrar aðsóknar, enda kom sér það betur fyrir mann­inn, því tví­vegis klikkti byssan áður en úr henni gekk, og bangsi hné með sund­ur­skot­inn heila, ofan á hálf étinn hunds­skrokk­inn. En það sagði skyttan, að bangsi hefði staðið upp og litið all-ófrýn­lega til sín og fitjað drjúgan upp á, á meðan byssu­han­inn var að hamra á hvell­hett­unnl þarna upp yfir honum.

En er farið var að gá í húsið, sem bangsi dvaldi lengst í, var þar ekki alt með kyrrum kjörum; hann hafði brotið þar lampa, drukkið mjólk úr skjólu, er nýkomin var úr fjósi, og etið mat sem hús­freyja var búin að bera inn handa piltum sínum. Þetta alt dvaldi dýrið, meðan stúlkan — Jóhanna Aðal­mund­ar­dóttir — sótti liðið í fjár­húsin. En annar hund­ur­inn, sem fyrst réð­ist á bangsa, — sá stærri og sterk­ari, — drapst sam­dæg­urs, skömmu á eftir bangsa, en hinn liggur í sárum. Bjargaði sér með því að skríða upp undir rúm inni í hús­inu og liggja þar, þar til alt var um garð gengið. Dýr þetta var 1,63 metrar á lengd, og vóg (kjötið aðeins, án hauss og allra inn­ífla) 52 kg. Það var mjög mag­urt, og garnir allar tómar nema örlítið í enda­þarmi. Bendir það alt á að dýrið hafi um langan tíma Iítið eða ekk­ert haft til matar, því björg er engin á svo snemm­komnum íshroða sem þessum.

Vafa­laust hefir dýr þetta verið mann­skætt, þótt slíkt sé eigi algengt með þau, þá getur hungrið sorfið svo að, að þau ráð­ist á alt; hlýfi þá ekkl mann­lnum heldur. Atburður þessi er rit­aður nákvæm­lega eftir sögu­sögn heim­il­is­fólks­ins á Eld­járns­stöðum og munn­lega stað­festur af því á eftir.

Ásseli í jan­úar 1918. Hólm­steinn Helqason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina