Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jóhannes Kr. um dótturmissinn og ástandið í dag: „Á hverjum degi hugsa ég um Sissu“

Blaða­mað­ur­inn Jóhannes Kr Krist­jáns­son minn­ist dóttur sinnar er féll fyrir hendi fíkn­ar­innar.

„Í hvert sinn sem ég frétti af and­láti vegna ofneyslu vímu­efna fæ ég sting í hjartað og hugsa til Sissu dóttur minnar sem lést fyrir nærri 13 árum – þá aðeins 17 ára gömul. Það eru að verða komin 13 ár síðan stelpan mín dó og 12 ár síðan ég sagði sögu Sissu og kaf­aði ofan í heim ungra barna í neyslu fyrir Kastljós.“

Hann segir að „umræðan í sam­fé­lag­inu þá var svipuð og nú – kallað var eftir aðgerðum til að bjarga manns­lífum. Frá því Sissa mín dó hef ég reglu­lega tjáð mig um mál­efni ungra vímu­efna­neyt­enda og nauð­syn þess að bregð­ast við vanda sem bara eykst. Ég hef átt fundi með ráð­herrum, þing­mönnum og fólki sem vinnur í kerf­inu sem á að halda utan um og styðja börnin sem verða utan­veltu og feta veg neysl­unnar. Mín grein­ing eftir ótal sam­töl við fólkið sem vinnur í kerf­inu er að þeir sem vinna náið með börn­unum eru með hug­myndir sem við ættum að hlusta á og styðja við. Það er bara alltof sjaldan hlustað á fólkið sem vinnur raun­veru­lega með börn­unum.“

Jóhannes bætir því við að „neyslu­heim­ur­inn hefur harðnað mikið síðan ég tjáði mig mest um þessi mál. Fleiri deyja og neyslan eykst og harðnar hraðar. Vandinn er orð­inn miklu stærri og nú verður að bregð­ast við með mark­vissum hætti. Eftir að Sissa dó var mikið haft sam­band við mig og ég reyndi eftir megni að hjálpa for­eldrum barna sem voru að byrja í neyslu við að fá aðstoð og úrræði í kerf­inu til að taka á vand­anum því þau voru ráða­laus og lentu á lok­uðum dyrum. Ég skrif­aði bréf til ráða­manna í kerf­inu til að reyna að fá aðstoð fyrir börn for­eldr­anna sem höfðu sjálf reynt að fá kerfið til að bregð­ast við í langan tíma en lítið sem ekk­ert gerð­ist. Þegar ég skrif­aði undir bréfin fyrir hönd for­eldr­anna brást kerfið við því það vissi að Jóhannes Kr. gat verið með upp­steyt og vesen. Hversu fárán­legt er það?“

Hann bætir því við að „kerfið á að vinna fyrir alla og engan manna­mun gera. Á hverjum degi hugsa ég um Sissu og á sumum tíma­bilum meira en öðrum. Til dæmis núna þegar yngsta barnið mitt á að ferm­ast hugsa ég um ferm­ing­ar­gjöf­ina sem Sissa valdi – lestar­ferða­lag með mér á milli Rómar og Parísar. Bara við tvö með bak­poka og ferðin átti að taka viku til tíu daga. Daginn áður en við áttum að fljúga sagði Sissa mér að hún gæti ekki farið í ferð­ina. Seinna sagði hún mér að hún hefði verið í neyslu á þessum tíma og tekið hana fram­yfir ferða­lagið.“

Jóhannes segir að „eftir and­látið fann ég minn­is­bók þar sem hún hafði svarað spurn­ing­unni: Hverju sérðu mest eftir í líf­inu? Svarið: Að hafa ekki farið í ferða­lagið með pabba.

Ég hefði gefið svo mikið fyrir að eiga minn­ing­arnar og mynd­irnar úr ferða­lag­inu sem aldrei var farið og ég vil gera allt sem í mínu valdi stendur til að ekk­ert for­eldri upp­lifi and­lát barns­ins síns vegna ofneyslu. Og ég vildi óska að ekk­ert for­eldri upp­lifi það að missa barnið sitt því það er erf­ið­asta upp­lifun mann­eskju. Ekkert í líf­inu er erf­ið­ara.“

Jóhannes segir að „saga Sissu hefur hjálpað mörgum og bjargað lífum. Það veit ég eftir að hafa fengið bréf frá ungu fólki og hitt ungt fólk sem hefur sagt mér að sagan hennar hafi komið þeim á rétta braut í líf­inu. Þetta var ungt fólk sem var stutt á vegi neysl­unnar komið.

Til að ná árangri í þessum málum þarf að hugsa lengra fram í tím­ann en fjögur ár – eitt kjör­tíma­bil. Það þarf að hugsa nokkur kjör­tíma­bil fram í tím­ann. Það tekur tíma og það kostar pen­inga að hjálpa fólki út úr neyslu og það þarf að finna leiðir sem raun­veru­lega hjálpa og bjargar manns­lífum.“

Jóhannes lýkur máli sínu á eft­ir­far­andi orðum:

„Í hvert skipti sem ein­hver deyr vegna ofneyslu koma sjúkra­bílar á vett­vang og bráðaliðar reyna end­ur­lífgun. Á bak­við hvert and­lát er raun­veru­leik­inn kaldur eins og þið getið lesið í skýrslu sjúkra­flutn­inga­manna sem reyndu að end­ur­lífga Sissu. Það tókst því miður ekki að end­ur­lífga hana á þeim tíma – en núna – tæpum 13 árum síðar ættum við að vera betur stödd. Stjórn­völd þurfa að setja á fót hóp fólks sem vinnur náið með börnum í neyslu og heyra þeirra hug­myndir um lausnir. Þessi hópur þarf að byrja strax og vinna hratt því líf ótal­margra er í húfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við