Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Guðni sneri við blaðinu kornungur eftir að vera kominn í neyslu: „Foreldrar mínir þjáðust mikið“

Guðni sneri við blaðinu kornungur eftir að vera kominn í neyslu: „Foreldrar mínir þjáðust mikið“
Guðni Gunn­ars­son. Mynd/Bragi Þór Jós­efs­son

Guðni Gunn­ars­son, frum­kvöð­ull og stofn­andi Rope Yoga, segir að fólk sé upp til hópa að flýja sjálft sig löngum stundum og það geti ekki endað öðru­vísi en í þján­ingu.

Guðni, sem er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir lyk­il­at­riði að fólk byrji að koma fram við sjálft sig eins og mik­il­væg­ustu mann­eskj­una í eigin lífi:

Sölvi er alltaf flottur og frá­bær spyrj­andi.

,,Það er mikil þreyta, sjúk­dómar og neysla í sam­fé­lag­inu okkar. Við erum ekki komin á enda­stöð í þeirri þróun, en það eru sífellt fleiri eru líka að snúa við blað­inu. Þrýst­ing­ur­inn af því sem er hætt að virka er að verða svo mik­ill að fólk verður að leita inn á við. Við erum meira og minna flest að afneita okkur sjálfum stóran hluta dags­ins. Við erum oft á tíðum eins og fló á skinni og höldum að við séum hugs­anir okkar. Það veldur því svo að það er ekki gott að vera í eigin návist og maður verður frið­laus.

Sársauki er óum­flýj­an­legur, en þján­ing er í raun val.

Þjáning á sér stað af því að við flýjum það sem er. Það er ekki hægt að flýja hugs­anir sínar eða skugg­ana, en með því að varpa ljósi á þessa hluti byrja þeir að losna. Stærsta vanda­mál okkar flestra er við­námið sem við veitum þján­ing­unni og þannig verður til kvíði.

Með því að hafna því sem er búum við til við­nám og við­námið er yfir­leitt miklu stærra vanda­mál en það sem við erum að hafna. Við getum ekki gefið öðrum það sem við eigum ekki sjálf og þess vegna verður veg­ferðin að byrja á því að við komum fram við okkur sjálf eins og mik­il­væg­ustu mann­eskj­una í okkar lífi.”

Guðni segir algeng­ast að fólk breyt­ist ekki raun­veru­lega fyrr en það er komið á botn­inn og seg­ist þekkja það af eigin raun:

,,Þegar fólk vaknar til vit­undar og sér að eitt­hvað sem einu sinni virk­aði er löngu hætt að virka, verður næsta skref að vera að taka ábyrgð á því og gera breyt­ingar. Flestir ná ekki að horfast í augu við þennan stað fyrr en þeir eru komnir á botn­inn. Þess vegna verða oft mestu breyt­ing­arnar þegar fólk er komið þangað.

Þá opn­ast fyrir auð­mýkt og vilja til að breyta öllum við­horfum og þá ger­ast oft magn­aðir hlutir.

Við höfum flest lent á þessum stað þar sem eitt­hvað verður að breyt­ast og maður er raun­veru­lega til­bú­inn.

Í til­ver­unni er aðal­lög­málið orsök og afleið­ing og það upp­skera allir eins og þeir sá.”

Guðni þekkir þennan stað af eigin raun. Hann hefur unnið við heilsu í ára­tugi og fór sjálfur að skoða heilsu fyrir alvöru eftir að hafa rekið sig harka­lega á veggi sem ungur maður:

,,Það var mikið kapp í mér þegar ég var ungur maður og ég kem úr umhverfi þar sem var bæði neysla og mikil veik­indi. Báðir for­eldrar mínir þjáð­ust mikið og ég byrj­aði mjög ungur í neyslu. Bæði reykti og drakk frá ung­lings­aldri. En ég átt­aði mig fljótt á því að ég væri svo ástríðu­fullur og kapp­samur í öllu sem ég gerði að ef ég næði ekki tökum á þessu myndi ég valda mér miklum skaða,” segir hann og heldur áfram:

,,Ég er í raun búinn að vera að hugsa um heilsu nán­ast síðan ég var barn. En það kom tíma­punktur þar sem ég vissi að ég yrði að velja og eftir það var ekki aftur snúið. Ég keypti Heima­val, sem var ein fyrsta versl­un­in með lík­ams­rækt­ar­tæki á Íslandi.

Á þessum tíma var feimn­is­mál að stunda lík­ams­rækt eða eitt­hvað annað en bara hrein­rækt­aðar íþrótta­greinar. Þannig að fólk var að fela tækin undir rúmi og þar fram eftir göt­unum. En svo breytt­ist það og í kjöl­farið kom ákveðið blóma­tíma­bil í lík­ams­rækt á Íslandi, þar sem Jón Páll Sig­mars­son spil­aði stórt hlut­verk.

Ég hef farið inn í flesta kima heilsu­brans­ans, en eftir öll þessi ár nýt ég þess að vera núna með skjól­stæð­inga sem vilja taka ábyrgð. Fólkið sem kemur til mín núna er komið á þann stað að vera til­búið að taka ábyrgð og það er blessun að vinna með fólki sem er á þeim stað.”

Hér er slóðin á þátt­inn:

https://www.youtube.com/watch?v=Xo0zLU0TI7c

Þáttinn með Guðna og alla aðra þætti Sölva má síðan nálg­ast inni á www:sol­vi­tryggva.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina