Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sátu fastir í þurrkví í þrjá daga: „Svona eftir á að hyggja þá var þetta alveg stórhættulegt“

Vil­bergur Magni Ósk­ars­son er fyrrum skóla­stjóri Skip­stjórn­ar­skóla Tækni­skól­ans, sem áður nefnd­ist Stýri­manna­skól­inn segir frá því er hann vann hjá Land­helg­is­gæsl­unni, í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn.

„Þetta var drátt­ar­bátur sem var að draga þurr­kví frá Skotlandi til Hafn­ar­fjarðar. Við fáum fyrst beiðni um að hjálpa bátnum að ná aftur kvínni en hann hafði misst hana aftan af sér, ég veit ekki hvað hann var búinn að vera lengi að draga hana þegar hann missti hana en það spól­ast út af spil­inu hjá þeim, eitt­hvað svo­leiðis. Misstu vír­inn út. Og þeir náðu ekki end­anum aftur, þeir komust ekki um borð í kvína til að gera neitt. Þeir voru búnir að remb­ast við þetta í ein­hverja daga áður en þeir biðja um aðstoð.“

Þegar Vil­bergur og félagar mæta á stað­inn á varð­skip­inu Óðni, byrja þeir á að sigla í kringum þurrkvína og reyna að átta sig á hvernig hægt sé að snúa sér í þessu. „Það var svona aðeins kaldi en samt ekk­ert slæmt veður þannig. Hún var þannig að það var opið í aft­ur­endan þar sem er siglt inn en lokuð að framan. Þannig að hún sigldi bara undan vind­inum, bara eins og skúta.“

Eftir svolitla skoðun var ákveðið að best væri að reyna að kom­ast upp á kvína að aft­an­verðu. „Það var pínu erfitt að eiga við það en þegar við vorum búnir að horfa á þetta í ákveðin tíma ákváðum við að reyna þetta. Og það tókst, við komumst um borð í hana,“ sagði Vil­bergur en þeir voru nokkrir sem fóru um borð. „Þeir fóru um borð og við höfðum tengt í vír sem var aftan í kvínni, höfðum tengt okkar drátt­ar­búnað þar í. Og haldið við hana og dregið hana aftur á bak í raun­inni. Þannig að drátt­ar­bún­aður báts­ins sem var framan í henni var í svona hana­fæti og hann lá alltaf undir kvínni, þess vegna náðu þeir aldrei á hann.“

Eftir dágóða stund var búið að ráða fram úr þessu með hana­fót­inn og bát­ur­inn gat haldið áfram að draga kvína til Hafn­ar­fjarðar. Vil­bergur og félagar hans á varð­skip­inu ákváðu þá á að skilja við drátt­ar­bát­inn og halda áfram sínu eft­ir­lits­starfi. En nokkrum dögum síðar dróg aftur til tíð­inda en þá barst Gæslunni boð um að drátt­ar­bát­ur­inn hafi aftur misst kvína en þeir höfðu verið komnir upp yfir Reykja­nesið og voru þá fyr­ir­mælin þau að nú skyldi varð­skipið sækja kvína. Að sögn Vilbergs var kvíin komin á rek í vestur átt en varð­skipið Ægir var einnig kallað til aðstoðar. Þegar Vil­bergur og félagar koma að kvínni var veðrið orðið leið­in­legt og hafði ýmis­legt gengið á en til dæmis var annar kran­inn sem var á kví­ar­veggnum dott­inn af og lóðin sem voru aftan á honum sem mót­vægi við kran­ann hafði dottið inn í kvína og gert gat á botn­inn.

Vil­bergur lýsir því fyrir Reyni hvernig áhafn­irnar báru sig að við að reyna að tryggja að hægt væri að draga kvína en þegar nokkrir menn eru komnir um borð í kvína kom babb í bát­inn, ef svo má að orði kom­ast. „Og við vorum rétt byrj­aðir að draga en þá var aftur komið leið­ind­ar­verður þannig að við þorðum ekki að taka karl­ana frá borði. Þeir voru um fimm til sex menn um borð í kvínni. Og það sem gerð­ist líka var það að þegar við vorum komnir með kvína upp í vind og öldu, þá kemur svo­lítið ólag framan á hana og pall­ur­inn sem menn­irnir höfðu staðið á brotnar niður. Þeir voru bara nýfarnir inn og höfðu lokað á eftir sig þegar ólagið kom á kvína og pall­ur­inn leggst niður.“ Reynir spurði Vilberg hvort ein­hver aðstaða hafi verið fyrir menn­ina í kvíni en því svarar Vilberg: „Þetta var allt bara kalt, ekk­ert raf­magn eða neitt. En það eru ein­hverjir klefar þarna fyrir áhafnir, þetta er svokölluð kaf­báta­kví, þannig að það var greini­lega aðstaða þar fyrir áhafnir og svo­leiðis. En þeir gátu ekk­ert nýtt sér það. Þegar það var fyr­ir­séð að þeir yrðu að vera þarna eitt­hvað, þá fóru þeir upp í stjórn­stöð upp á öðrum kví­ar­veggnum og komust þar inn. Þar var hægt að vera þó það hafi ekki verið nein aðstaða. Og svo var farið að huga að því að koma í gang ljósa­vél sem var þar um borð til að fá eitt­hvað raf­magn og ein­hvern hita. Það var gervi­hnatta­sími um borð í Ægi þannig að þeir gátu hringt í þá sem áttu kvína og fengið leið­bein­ingar um það hvernig ætti að bera sig að.“

Þetta tókst hjá þeim og fengu þeir ljós og hita upp í rýmið sem þeir biðu í. Áhafn­ar­með­limir Ægis útbjuggu síðan dunk með teppum og mat og fleira nauð­syn­legt til að koma yfir til mann­anna sem voru fastir í kvínni. „Svo skutu þeir línu aftan í kvína og þeir náðu að draga til sín þennan dunk með mat­ar­leyfum og svo­leiðis,“ sagði Vil­bergur hlæj­andi. Eftir um þrjá sól­ar­hringa tókst að koma mönn­unum úr kvínni með því að kasta til þeirra línu sem þeir kræktu framan á gall­ann sinn. „Svo var bara siglt á ferð og þeim bara kippt út. Þeir hopp­uðu bara,“ útskýrði Vil­bergur og hló. „Af því að það er svo mikið sog undir henni að aftan.“

Við­ur­kennir Vil­bergur að staðan var vara­söm á tíma­bili. „Svona eftir á að hyggja þá var þetta alveg stór­hættu­legt.“

Viðtalið í heild sinni er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina