Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tafir við þjóðveginn vegna hækkandi jarðhita – Grétar bakaði brauð í vegöxl á Hellisheiðinni

Tafir við þjóðveginn vegna hækkandi jarðhita – Grétar bakaði brauð í vegöxl á Hellisheiðinni
Brauðið bragð­að­ist glimr­andi vel að sögn Grétars. Mynd: Grétar Einarsson

Starfs­maður Vega­gerð­ar­innar bak­aði brauð í vega­öxl við þjóð­veg­inn í Hvera­dala­brekku en þar hefur hit­inn hækkað umtals­vert síð­asta árið.

„Hvað er ég búinn að koma mér út í í dag?“ sagði Grétar Ein­ars­son, starfs­maður Vega­gerð­ar­innar og hló, þegar Mannlíf heyrði í honum hljóðið í dag, vegna óvenju­legs bakst­urs sem hann stóð fyrir. Skessu­horn sagði frá því í morgun að Grétar hafi ákveðið að bregða á leik og baka hvera­brauð í MacIntosh dós sem hann gróf í vexa­öxl­ina, rétt undir yfir­borð­inu í Hvera­dala­brekku. Þar hefur aukin jarð­hita­virkni mælst að und­an­förun í og undir þjóð­veg­inum, skammt frá Skíða­skál­anum á Hell­is­heiði. Hiti í vegláum sunn­an­meg­inn í veg­inum sjálfum er 86 gráður við yfir­borðið.

Brauðið bak­að­ist hægt en örugg­lega.

Að því er fram kemur í frétt Skessu­horns er hit­inn við yfir­borðið það hár að hægt er að hægelda lamba­kjöt svo eitt­hvað sé nefnt. Grétar Ein­ars­son, starfs­maður Vega­gerð­ar­innar ákvað að bregða á leik í fyrra­dag og skellti í deig að hvera­brauði og bak­aði í MacIntosh dollu sem hann gróf í vegxöl­ina. Í sam­tali við Skessu­horn sagði Grétar að upp­skriftin sem hann not­aði sé háleyni­leg en að hún sé úr smiðju Valdi­mars Sig­ur­jóns­sonar, fyrrum starfs­manns Vega­gerð­ar­innar. Tók bakst­ur­inn sól­ar­hring en í gær brögð­uðu starfs­menn Vega­gerð­ar­innar á hinu dýr­indis brauði, með miklu smjöri. „Svona ger­ist þegar maður svíkst um að taka lyfin sín,“ sagði Grétar í sam­tali við blaða­mann Skessu­horns og skellti upp úr.

Mannlíf spurði Grétar hvernig brauðið hafi bragð­ast. „Alveg glimr­andi vel,“ svar­aði hann hress en bætti við: „En ég ætla að biðja menn að fara ekki að stoppa í brekkunni. Við fórum fyrir utan veg og á lög­gilt bíla­stæði. Það er helst að maður sé hræddur um að það fari í eitt­hvað svo­leiðis kjaftæði.“

En af hverju hefur hit­inn hækkað á svæð­inu? Tengist það virkj­un­inni? „Nei, ég held að það  sé kannski ein­hver hækk­andi hiti þarna. Það eru breyt­ingar þarna, við vorum búnir að sjá þetta í vetur að það hlán­aði í flá­anum. Þannig að þetta kom ekk­ert upp í gær alveg. Þegar þeir voru að moka í vetur, bíl­arnir þá sáu þeir að það voru alveg kaflar þarna þar sem snjór­inn losn­aði fyrr upp. En þetta var ekki svona í fyrri­vetur, við erum búnir að fletta í mynda­vélum og þetta sést ekki frá síð­asta vetri.“

Grétar segir að það hafi ekki áður mælst slíkur hiti við veg­inn í flá­anum og þeim hafi þótt viss­ara að skoða þetta betur en til stendur að setja upp mæla á svæð­inu. „Af því að ef við gerðum það ekki og svo myndi eitt­hvað ger­ast, þá værum við ekki taldir standa okkur í stykk­inu.“ Þá segir Grétar að það verði hugs­an­lega ein­hverjar tafir á svæð­inu seinna í dag því Vega­gerðin muni bora í veg­inn og setja upp mæla. Segir hann að það verði ein­hverjar tafir og þreng­ingar og jafn­vel verði lokað um tíma til Reykja­víkur. Biður Grétar að lokum fólk að sína starfs­mönnum stofn­un­ar­innar virð­ingu á meðan á vinn­unni stendur, virða merk­ingar og annað. „Það gleym­ist stundum að við erum úti á veg­inum fyrir þá sem eru að nota veg­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við