Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segist hafa rökstuddan grun um njósnir Bandaríkjamanna: „Þetta er nú ekki alveg sanngjarnt“

Segist hafa rökstuddan grun um njósnir Bandaríkjamanna: „Þetta er nú ekki alveg sanngjarnt“
Sendiráð Banda­ríkj­anna Mynd: Trausti Hafsteinsson

Kristinn Hrafns­son seg­ist hafa rök­studdan grun um að Banda­ríkja­menn stundi njósnir hér á landi.

Rík­is­lög­reglu­stjóri kom fram á dög­unum og lýsti yfir áhyggjum sínum yfir auknum njósnum hér á landi, sér í lagi njósnir á vegum Rússa en er ku hafa aukið njósnir sínar í Evrópu. Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann seg­ist gruna Banda­ríkja­menn um njósnir.

„Ábending til Rík­is­lög­reglu­stjóra: Ég hef rök­studdan grun um að erlendir njósn­arar séu með aðstöðu að Engja­teigi 7, 105 Reykja­vík. PM fyrir frek­ari upp­lýs­ingar,“ skrif­aði Kristinn en sendi­ráð Banda­ríkj­anna er stað­sett á heim­il­is­fang­inu.

Færslan vakti mikla athygli og tjáðu sig nokkrir í athuga­semdum, þar á meðal Stefán Pálsson, bjór­sér­fræð­ingur, spurn­inga­höf­undur og margt fleira. „Hug­myndir rík­is­lög­reglu­stjóra um njósn­a­starf­semi virð­ast fengnar úr Spy vs. Spy mynda­sög­unum. Mér er stór­lega til efs að heppi­leg­ustu njósn­ar­arnir séu útlend­ingar með sól­gler­augu í ryk­frökkum, jafn­vel á diplómatapassa. Ætli það sé ekki mun heppi­legra að fá Íslend­inga í djobbið, hvort heldur sem er gegn greiðslu eða í sjálf­boða­vinnu eins og þegar BNA fékk Styrmi Gunn­ars­son til liðs við sig?“

Þessari athuga­semd svar­aði Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður en honum þótti Stefán ósann­gjarn. „Þetta er nú ekki alveg sann­gjarnt. Það er greini­lega verið að kanna hvort hér séu svo­kall­aðir „illegals“ (útsend­arar undir fölsku flaggi) sem er allt annað en „legals“ (sendi­ráðs­starfs­menn) eða inn­lendir upp­lýs­inga­gjafar af hvaða tagi sem er. Það getur vel verið að lög­reglan sé mjög hlægi­leg, en það er samt ekk­ert óeðli­legt við að þessi hug­mynd vakni. Ég efast um að Banda­ríkja­menn við Engja­teig þurfi nokkuð á illegals að halda (þeirra menn í sendi­ráð­inu afla eflaust auð­veld­lega allra upp­lýs­inga sem þeir hafa áhuga á, með hjálp íslenskra „vina“) en það væri bein­línis óeðli­legt af Rússum að hug­leiða ekki að senda hingað illegals til að afla upp­lýs­inga sem legals eiga ekki hægt með. Við erum þrátt fyrir allt NATO-ríki með aðgang að alls konar upp­lýs­ingum sem Rússum þættu hnýsi­legar, sér í lagi á stríðs­tímum. Sjálf­sagt af Rússum að stunda hér njósnir og líka sjálf­sagt fyrir yfir­völd hér að reyna að átta sig á því.“

Elías nokkur benti Stefáni Pálssyni á eitt: „hér er líka iðkuð umfangs­mikil und­ir­róð­ur­starf­semi á vegum Rússa.“

Þegar einn aðili spurði Kristinn hvort hann vilji ekki láta taka sig alvar­lega sem blaða­mann svar­aði Kristinn í nokkuð löngu máli. „Það er almennt gert ráð fyrir því að í utan­rík­is­þjón­ustu allra helstu ríkja sem eru með aðstöðu erlendis, séu ein­stak­lingar sem stunda upp­lýs­inga­söfnun sem kalla má njósnir. Hvað varðar það ríki sem nú er með aðstöðu í því heim­il­is­fangi sem ég birti, höfum við birt trún­að­ar­skjöl sem stað­festa slíka upp­lýs­inga­söfnun. Ég geri fast­lega ráð fyrir því að sami háttur sé hafður á hjá öðrum erind­rekum erlendra ríkja. Það er svo þitt val hvort þú tekur því alvar­lega eða ekki. Per­sónu­lega missi ég ekki svefn yfir því og legg hóf­samt mat á frétta­gildi svefn­leysis Rík­is­lög­reglu­stjór­ans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina