Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur Hrafn hélt eldræðu á Austurvelli: „Við megum aldrei gefast upp, aldrei!“

Guðmundur Hrafn hélt eldræðu á Austurvelli: „Við megum aldrei gefast upp, aldrei!“
Guð­mundur Hrafn á Aust­ur­velli í dag. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður sam­taka leigj­enda á Íslandi flutti eldræðu á Aust­ur­velli í dag en þar var sam­an­komnir blautir og óánægðir mót­mæl­endur en boðað hafði verið til mót­mæla á Facebook og í fjöl­miðlum.

Margt var um mann­inn þrátt fyrir hellidembu.

Tals­verður hiti var í mót­mæl­endum voru dug­legir að kalla slag­orð og gíf­ur­yrði. Þá köll­uðu mót­mæl­endur reglu­lega í takt: „Rísum upp!, Rísum upp!, Rísum upp!“. Minnti hit­inn í mót­mæl­endum blaða­mann Mannlífs örlítið á byrjun Búsa­halda­bylt­ing­ar­innar árið 2008 en í hópnum mátti sjá Hörð Torfason tón­list­ar­mann og eina af aðal for­sprökkum Bús­á­halda­bylt­ing­ar­innar. Ekki fyllt­ist Aust­ur­völlur alveg enda mikil bleyta í mið­bænum í dag en stefnt er á önnur mót­mæli eftir viku.

Hörður Torfa.

Í ræðu sinni tal­aði Guð­mundur Hrafn um vandan sem blasir við leigj­endum á Íslandi og sagði hann meðal ann­ars að alþjóða­sam­fé­lagi leigj­enda blöskri hvernig leigu­mark­að­ur­inn hefur þró­ast hér á landi. „Hvað gerð­ist eig­in­lega á hús­næð­is­mark­aði hjá ykkur? Spurðu margir full­trúar leigj­enda á heims­þing­inu, en þeir komu hvaðanæva úr heim­inum.“

Ræðuna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Takk fyrir að koma hingað kæru félagar, takk fyrir að standa upp fyrir sjálfum ykkur og sam­ferða­fólki. Takk fyrir að taka afstöðu með heim­ilum og fjöl­skyldum lands­ins. Takk fyrir að sýna ábyrgð og sam­kennd. Takk fyrir að leyfa ykkur ekki að sog­ast inn í and­rúms­loft skeyt­ing­ar­leysis, doða og aðgerð­ar­leysis.

Eina leiðin til breyt­inga er að hafna með öllu því sem leiðir af sér hrak­andi vel­ferð almenn­ings, upp­lausn vel­ferð­ar­kerf­is­ins og áfram­hald­andi ein­ræði fjár­magns­ins.

Aust­ur­völlur er eini almenni lýð­ræð­is­vett­vangur þjóð­ar­innar. Ráðandi öfl í þeirri stofnun sem er hér handan göt­unnar hafa sagt sig úr sam­fé­lagi við almenn­ing og þjóna í síauknum mæli hags­munum alþjóða­sam­fé­lagi fjár­magns og stjórn­mála en þar liggur holl­usta þeirra miklu frekar en við almenn­ing sem hafa þó svarið þess eið að vinna fyrir.

Íslensk stjórn­völd hafa lengi þjónað inn­lendum fjár­magns­öflum en nú hefur keyrt um þver­bak. Gróða­verð­bólga og sjúk­leg árátta þeirra til að mylja undan fjöl­skyldum lands­ins bæði með ámæl­is­verðu sinnu­leysi á víð­sjár­verðum tímum og með beinum og með­vit­uðum aðgerðum.

En það er héðan sem gagn­sóknin gegn þessu félags­lega og efna­hags­lega órétt­læti hefst. Við fólkið í land­inu eigum þennan stað og héðan munum við stuðla að nauð­syn­legum breyt­ingum, vinnum að því að lög­bundin rétt­indi almenn­ings séu virt og að nýjum mann­úð­legum sam­fé­lags­sátt­mála.

Við hefjum héðan gagn­sókn gegn grimmi­legri aðför að heim­ilum lands­ins, aðför sem staðið hefur sleitu­laust í tvo ára­tugi.

Það var ekki nóg fyrir her­deild fjár­magns­ins á alþingi að vinna fulln­að­ar­sigur á tug­þús­undum fjöl­skyldna við banka­hrunið og á sama tíma setja sam­fé­lags­sátt­mál­ann í tæt­ar­ann á skrif­stofu Viðksipta­ráðs og heita því full­komna holl­ustu.

Það var ekki nóg að valda félags­legum og fjár­hags­legum harm­leik með ang­ist og örvænt­ingu íbúa lands­ins eftir sjúk­lega sam­fé­lags­til­raun, heldur hefur stjórn­völdum síðan fund­ist þau þurfa að nið­ur­lægja og smána hina sigr­uðu allar götur síðan.

Við sem hér stöndum, ásamt öllum þeim sem hafa fengið sig fullsadda rísum nú upp og segjum nú er komið nóg. Við líðum ekki augna­bliki lengur að fjöl­skyldur lands­ins séu eins og blóð­merar fyrir hið sjúk­lega sam­fé­lag stjórn­mála og fjár­magns­ins.

Við megum aldrei gef­ast upp, aldrei! Við verðum að halda lífi í glæðum rétt­lætis og mann­úðar því við vitum aldrei hvenær gustur sama­stöð­unnar blæs yfir tún og engi.

Við getum þakkað mörgum full­trúum okkar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, sönnum banda­mönnum almenn­ings sem reynt hafa af öllum mætti að athafna sig inn á alþingi, ótal hus­gjóna­fólki og eld­hugum bæði nútíðar og for­tíðar sem aldrei misstu trúnna á að hið þunga fljót mann­úðar og sam­kenndar myndi rjúfa múra fjár­magns og sam­trygg­ingar.

Við sem störfum að hags­muna­bar­áttu leigj­enda eigum for­verum okkar mikið að þakka. Við getum þakkað öllu því hug­sjóna­fólki sem vék sínum eigin högum og vel­ferð til hliðar í and­styggi­legu and­rúms­lofti sjálf­hygli og skeyt­ing­ar­leysis. Við minn­umst Jón frá Pálm­holti, frum­kvöð­uls í hags­muna­bar­áttu leigj­enda sem um tveggja ára­tuga­skeið barð­ist fyrir því að heim­ilum á leigu­mark­aði væri tryggð öryggi og vel­ferð. 

Staðan á leigu­mark­aði er hættu­leg, og hefur verið um nokk­urra ára skeið. Við sjáum mik­inn fjölda fjöl­skyldna, ein­stæðra for­eldra og ungt fólk verða heim­il­is­laust um þessar mundir. Gíf­ur­lega streita og örvænt­ing hefur hreiðrað um sig í sam­fé­lagi leigj­enda vegna hús­næð­is­skorts og sífelldra hækk­ana á húsa­leigu. 

Leigj­endur búa ítrekað við yfir­vof­andi hús­næð­is­missi og sífellda flutn­inga. Stór hluti þeirra búa við fátækt sem er til komin vegna hárrar húsa­leigu og margir verða fyrir langvar­andi heilsu­bresti af þeim völdum með alvar­legum per­sónu­legum afleið­ingum.

Staðan á íslenskum leigu­mark­aði er svo slæm að þrátt fyrir að leigj­endur eigi undir högg að sækja víða í okkar heims­hluta þá blöskrar alþjóða­sam­fé­lagi leigj­enda hvernig leigu­mark­að­ur­inn hér hefur þró­ast. 

Á nýliðnu heims­þingi alþjóða­sam­taka leigj­enda sem full­trúi íslenskra leigj­enda sótti kom fram að staða leigj­enda er hvergi verri í álf­unni. Blöskr­aði þeim svo mikið að alþjóða­sam­tökum leigj­enda þykir til­efni til að athuga hvort ekki sé farið eftir mann­rétt­inda­sátt­málum og til­skip­unum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hvað gerð­ist eig­in­lega á hús­næð­is­mark­aði hjá ykkur? Spurðu margir full­trúar leigj­enda á heims­þing­inu, en þeir komu hvaðanæva úr heim­inum. Það er auð­vitað of langt mál að fara yfir það hér, en það snýst fyrst og fremst um fjár­mála­væð­ingu á hús­næði und­an­farna tvo ára­tugi sem hefur valdið umpólun í eign­ar­haldi.

Tæp 70% allra íbúða sem hafa bæst hafa við íslenskan hús­næð­is­markað frá árinu 2005 hafa verið keyptar af fjár­festum sem vilja maka krók­inn á verð­hækk­unum og leigj­endum. Aðeins 30% íbúð hafa verið keyptar af fjöl­skyldum og ein­stak­lingum sem hafa verið að leita sér að heim­ili.

Það eru ekki fjöl­skyldur í heim­il­is­leit sem hafa valdið for­dæma­lausum hækk­unum á hús­næði sem er aðal­or­sök þeirrar verð­bólgu sem við búum við, heldur eru það fjár­sterkir ein­stak­lingar og fjár­festar sem hafa leikið sér að því. Þeim er alveg sama hvað hús­næðið kostar þeir munu ekki þurfa greiða fyrir það sjálfir, því það munu leigj­endur að gera fyrir þá. En leigj­endur munu samt aldrei eign­ast neitt í hús­næð­inu þrátt fyrir að borga fyrir það með striti sínu og fórnum, og þeir munu heldur aldrei geta eign­ast sparnað.

Verð á hús­næði hefur tífald­ast á rúmu tveimur ára­tugum, á sama tíma hefur skipu­lega verið unnið að því að mylja undan val­kostum lands­manna í búsetu. Stjórn­völd hafa beitt fyrir sér spilltri stjórn­sýslu til þess að skapa hér ófremd­ar­á­stand, ástand sem verður að skrif­ast að fullu á þá sem ein­hvern tím­ann hafa haft tæki­færi til að beygja af þess­ari leið hörm­ungar, en látið það ógert. Við þurfum hins­vegar ekki að tíunda hver þau öfl eru sem hafa haft skipu­lega unnið að því að skapa núver­andi ástand og haft það að mark­miði sínu, þau öfl þekkjum við öll.

Það er ekki und­ar­legt að 90% leigj­enda vilja alls ekki vera á leigu­mark­aði þar sem ríkir algjör sjálf­taka, hömlu­leysi og grimmd. Þar sem skorti á hús­næði er með­vitað við­haldið af ráð­andi öflum, bæði af fjár­festum og yfir­völdum. Þar sem félags­lega rekið leigu­hús­næði er í mýflugu­mynd og öllum meinuð sjálfs­björg í hverri mynd sem er.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem líðir það að fjör­tíu þús­und heim­ili á leigu­mark­aði séu föst þar gegn vilja sínum. Það eru til dæmis meiri líkur á því að lækn­ast ef ebólu, skæð­ustu pest líf­rík­is­ins en fyrir leigj­endur yfir þrí­tugu að kom­ast af leigu­mark­aði.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem ýtir undir fátækt á meðal leigj­enda. Sem dæmi er fátækt meðal leigj­enda vegna hús­næð­is­kostn­aðar nærri sexfalt algeng­ari en hjá þeim sem eru að eign­ast eigið hús­næði. Það sama skapi eru þeir sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna fram­færslu eru næstum því allt leigj­endur.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem með­vitað veldur leigj­endum bæði skaða og skelf­ingu til þess eins að þjóna fjár­festum.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem á sama tíma og vel­ferð leigj­enda hrakar er  við­haldið hér einu lakasta reglu­verki á leigu­mark­aði sem fyr­ir­finnst á meðal sið­mennt­aðra ríkja. Stjórn­völd hafa ekki viljað bregð­ast við áskorun alls­herj­ar­þing sam­ein­uð­uðu þjóð­anna um að tryggja íbúum lands­ins þau rétt­indi sem kveðið er á um í lög­festum alþjóða­samn­ingi um efna­hags­leg, félags­leg og menn­ing­ar­leg rétt­indi, en hann inni­heldur vel skil­greindan “rétt til við­eig­andi hús­næðis”.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem sífellt veikir veik­burða rétt­ar­vernd fyrir leigj­endur þrátt fyrir aug­ljósar stað­reyndir um skelfi­lega stöðu þeirra.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem þrá­ast við að bregð­ast við ákalli leigj­enda um rétt­ar­bætur, öryggi og jafn­ræði.

Það er ömur­legt sam­fé­lag stjórn­valda sem bregður fyrir sig spilltri stjórn­sýslu til að afvega­leiða almenn­ing og umvefja sig rök­stuðn­ingi fyrir sinnu- og skeyt­ing­ar­leysi.

Hvað hafa leigj­endur eig­in­lega gert af sér?

Þetta ömur­lega sam­fé­lag stjórn­valda hefur með­vitað skapað þetta ástand, ástand þar sem leigj­endur eru auð­lind fyrir fjár­festa. Ástand sem veldur áhlaupi fjár­festa á hús­næði með til­heyr­andi hækk­unum og verð­bólgu. Ástand sem kemur í veg fyrir að leigj­endur og ungt fólk kom­ist í hús­næð­is­ör­yggi og ástand sem skapar fátækt, örvænt­ingu og heilsu­brest

Það verður að stöðva þessa galeiðu­för stjórn­valda með öllum til­tækum ráðum. Til þess erum við sam­an­komin hér í dag. Því nú rísum við upp, nú er komið nóg!

Ef þú togar, og ég ýti þá fellur staur­inn eins og segir í kvæð­inu.

Við getum þetta saman, við setjum heim­ilin í fyrsta sæti.!

Takk fyrir mig.

Guð­mundur Hrafn

Samtök leigj­enda á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi