Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Saga Sigmundar – Glímdi við hjartavandamál og greindist á sama tíma með krabbamein: „Er þakklátur“

Saga Sigmundar – Glímdi við hjartavandamál og greindist á sama tíma með krabbamein: „Er þakklátur“

Sig­mundur Stef­áns­son segir lækna hafa sagt sig kol­rugl­aðan eftir að hann ákvað að hlaupa ítrekað mara­þon í kjöl­far hjarta­á­falls og krabba­meins. Sig­mundur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar hefur afrekað ótrú­lega hluti á efri árum þrátt fyrir mikið mót­læti:

„Þegar ég var að und­ir­búa mitt fyrsta mara­þon 47 ára gam­all var ég stopp­aður snögg­lega af. Það var í hádeg­inu á venju­legum mið­viku­degi sem ég ætl­aði að hlaupa 7 kíló­metra að eitt­hvað gerð­ist. Ég kláraði hlaupið, en fann að ég var óvenju­lega slappur. Ég fór í búð­ina að ná mér í mat, en þegar ég ætl­aði að byrja að vinna aftur fann ég að eitt­hvað var ekki alveg í lagi. Ég fór heim og ætl­aði að leggja mig, en fann að ég yrði að láta líta á mig og fór á heilsu­gæsl­una eftir að hafa talað við kon­una mína. En það end­aði á því að ég var fluttur með bláum ljósum til Reykja­víkur í sjúkra­bíl. Þá hafði ég fengið hjarta­á­fall og æðin var orðin alveg stífluð.

Eftir þræð­ingar og fleira til­heyr­andi var mér sagt að ég ætti að leggja draum­inn um að hlaupa mara­þon alveg á hill­una og lækn­arnir voru alveg harðir á því að það myndi ekki ger­ast. Mér var sagt að ég myndi aldrei hlaupa mara­þon og ekki heldur hálf­mara­þon, ég gæti í mesta lagi hlaupið 10 kíló­metra rólega,” segir Sig­mundur, sem hefur heldur betur sýnt fram á að það er ýmis­legt hægt:

,,Ég ákvað mjög fljótt að ég ætl­aði að gefa mér það í fimm­tugs­af­mæl­is­gjöf að hlaupa mara­þon og gefa mér þannig þessi þrjú ár til að ná mark­mið­inu. Það tókst og núna er ég búinn að hlaupa á milli 30 og 40 heil mara­þon og enn fleiri hálf­mara­þon og þannig hef ég í raun sýnt fram á að það er hægt að gera ýmis­legt ef vilj­inn er fyrir hendi.”

Sig­mundur byrj­aði að hlaupa reglu­lega eftir að hafa greinst með sýk­ur­sýki 2 upp úr fer­tugu og hann vildi ekki sjá þá hug­mynd að hann myndi leggj­ast flatur eftir hjarta­á­fallið og hætta lífs­stílnum:

,,Ég hafði byrjað að hreyfa mig mikið eftir að ég var greindur með syk­ur­sýki og fannst það hjálpa mjög mikið. Þannig að ég var búinn að venj­ast þeim lífs­stíl að hreyfa mig og gat ekki hugsað mér að hætta því. Fyrst sögðu lækn­arnir við mig að ég væri rugl­aður að taka þessa áhættu og hlaupa þessi mara­þon eftir hjarta­á­fallið. En svo hafa árin liðið og núna segj­ast lækn­arnir nota mig sem skóla­bók­ar­dæmi um það sem er hægt að gera ef fólk lendir í mót­læti. Í raun geti fólk gert það sem það vill, svo fram­ar­lega að það þekki sín eigin tak­mörk. Það er nákvæm­lega það sem ég geri. Ég fer upp að þeim mörkum sem ég tel mig þola og rúlla áfram á því. Það hefur alltaf verið mitt leið­ar­ljós og hefur gengið vel hingað til. Ég hef alltaf verið mik­ill keppn­is­maður og finnst fátt betra en að sigra sjálfan mig og það gefur mér mikla sátt. En að sama skapi þekki ég mín mörk og það er lyk­il­at­riði í þessu öllu. En ég segi við alla þá sem hafa lent í ein­hverju svona lög­uðu að hreyf­ingin er allra meina bót.”

Þegar tveir ára­tugir voru liðnir frá hjarta­á­fall­inu fór hann aftur að finna fyrir eymslum, en eftir þrjár til­raunir á hjarta­þræð­ingu var hann sendur í opna hjarta­að­gerð. Það var ekki allt, því að á meðan leitað var lausna á hjarta­vanda­málum hans, greind­ist hann með krabba­mein í blöðru­háls­kirtli. En eftir geisla­með­ferð og aðgerð á hjarta náði hann aftur heilsu. Sig­mundur er sann­færður um að það hafi hjálpað sér að takast á við þessi áföll að vera í góðu lík­am­legu formi:

,,Þegar menn eru búnir að fara í hjarta­að­gerð eru manni í raun allir vegir færir, af því að þá er búið að opna vel fyrir allt saman. Ég er alveg sann­færður um að það sé lyk­il­at­riði að vera í góðu formi þegar maður lendir í svona mót­læti. Ef þú ert í góðu formi verður þetta mun auð­veld­ara á allan hátt. Ef maður er á núll­inu í slæmu formi er örugg­lega mjög erfitt að koma sér af stað og ætla að kom­ast í form eftir hjarta­á­fall. Það hjálpar mikið ef þú hefur reynt á lík­ams­kerfin og lík­am­inn er almennt í góðu formi.”

Sig­mundur hefur nú hlaupið mara­þon, farið í þrí­þrautir og járn­kalla um allan heim. Auk þess hefur hann gengið um Grænland með allt á bak­inu, skíðað niður Hvanna­dals­hnjúk og fjöl­margt fleira. Hann segir að mara­þon­hlaup á Kína­m­úr­num standi upp úr:

,,Það var allt öðru­vísi en að hlaupa venju­legt mara­þon. Það var farið á múr­inn rúm­lega klukku­tíma fyrir utan Peking og hlaupið um svæði sem eru fyrir utan þessa mestu túrista­staði. Þrepin eru mishá og mis­djúp og mikið um ójöfnur, þannig að maður verður að vera með mikla athygli allan tím­ann. Það var alveg stór­kost­leg upp­lifun að hlaupa þarna á þessu ævaforna mann­virki og fara svo um sveit­irnar. Það var eins og maður væri kom­inn 100 ár aftur í tím­ann. Þetta var eitt það magn­að­asta sem ég hef upp­lifað á allri minni ævi,” segir Sig­mundur, sem er þakk­látur fyrir öll ævin­týrin:

,,Ég er með fullt af félögum, maka og börn og fleiri sem hafa stutt við bakið á mér í þessu öllu saman. Þannig að maður gerir þetta ekki einn, en þetta hefur gefið mér og kon­unni minni gríð­ar­lega mikið og ég get ekki verið annað en þakk­látur. Að fara í öll þessi ferða­lög og takast á við okkur sjálf og nátt­úr­una. Það er topp­ur­inn á til­ver­unni.”

Viðtalið við Sigmund og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina