Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skólastjórinn Friðþjófur glímir við geðhvarfasýki og fordóma: „Ég ætla ekki að láta það brjóta mig“

Skólastjórinn Friðþjófur glímir við geðhvarfasýki og fordóma: „Ég ætla ekki að láta það brjóta mig“

Skóla­stjóri Háa­leit­is­skóla í Reykja­nesbæ og fyrrum bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði, Frið­þjófur Helgi Karlsson opnar sig upp á gátt varð­andi and­lega heilsu sína sem og for­dóma í ein­lægri og fal­legri færslu á Facebook.

Ber færsla hans yfir­skrift­ina:

Að verða fyrir for­dómum í kjöl­far þess að hafa ber­skjaldað sig.

„Í lok sum­ars í fyrra veikt­ist ég illa og þurfti að leggj­ast inn á eina af geð­deildum Land­spít­al­ans eins og þið vitið mörg. Í kjöl­far þess tók við end­ur­hæf­ing sem stendur enn. Ég hef ekki mætt öðru en mik­illi fag­mennsku míns teymis á göngu­deild Geðsviðs. Ynd­is­legt fólk sem vill allt fyrir mig gera. Ég hef verið mjög virkur í mínu bata­ferli og gengið mjög vel að ná kröftum aftur. Það var ákveð­inn léttir að fá „stimp­il­inn“ að ég væri með Bipolar 2. Nú veit ég betur við hvað ég er að kljást, eitt­hvað sem er búið að vera föru­nautur minn síð­ast­lið­inn 30 ár.“

Frið­þjófur er hug­rakkur og vill opna umræðu um and­lega heilsu fólks hér á landi:

„Ég hef á þessum tíma tek­ist á við krefj­andi verk­efni sem stjórn­andi í grunn­skóla. Sá tími spannar rúm 20 ár. Þar hef ég vaxið og dafnað í starfi og gengið vel í gegnum tíð­ina. Lagt mitt lóð á vog­ar­skál­arnar svo eftir því hefur verið tekið. Ég hef einnig tekið ríkan þátt í því að bæta nær­sam­fé­lag mitt m.a. með því að taka þátt í starfi frjálsra félaga­sam­taka og í stjórn­málum frá unga aldri. Þar hef ég einnig náð góðum árangri í gegnum tíð­ina. Og allt þetta um leið og ég hef verið að kljást við þennan lífs­föru­naut minn. Án þess að neinn vissi.“

Hann segir að „það eru ekki allir sem glíma við geð­hvörf sem geta tekið virkan þátt í sam­fé­lagi sínu, hvort sem það er í vinnu eða félags­málum. En ég hef borið gæfu til þess með góðum stuðn­ingi fjöl­skyldu, vina, ætt­ingja og vinnu­fé­laga (ekk­ert ger­ist í tóma­rúmi eða er einum manni að þakka) að stunda vinnu og taka virkan þátt í sam­fé­lagi mínu. Fyrir það er ég óend­an­lega þakk­látur því það er ekk­ert sjálf­sagt.

Mér fannst mik­il­vægt að stíga fram í haust segja frá að ég væri og hefði verið að glíma við þennan lífs­föru­naut minn, sem geð­hvarfa­sýkin (Bipolar 2) hefur verið. Mér fannst það mik­il­vægt fyrir mig í bata­ferl­inu og mér fannst líka mik­il­vægt að sjúk­dóm­ur­inn fengi and­lit ef það myndi hjálpa ein­hverjum sem er að stíga dans­inn við þennan föru­naut líkt og ég.

Við sem glímum við geð­hvörf á hverjum degi erum svo sann­ar­lega þver­skurður af sam­fé­lag­inu, sjúk­dóm­ur­inn fer ekki í mann­greina­á­lit. En ég vissi það þegar ég steig fram að ég væri að ber­skjalda mig. Það hefði lík­lega bæði jákvæðar og nei­kvæðar afleið­ingar í för með sér. En ég trúði í blindni á það að áhrifin væru frekar jákvæð frekar en nei­kvæð. En nú hafa runnið á mig tvær grímur.“

Frið­þjófur segir að „ég hef frá því að ég steig fram fundið fyrir for­dómum. Og það all­nokkrum. Og það er afskap­lega erfitt. Ekki síst vegna þess að ég hélt að við sem sam­fé­lag værum komin lengra. Ég hef t.d. heyrt það að ég væri ekki hæfur til að stýra stóru skóla­sam­fé­lagi vegna þessa lífs­föru­nautar míns. Það var virki­lega erfitt að heyra það. Vita til þess að ein­ungis vegna þessa lífs­föru­nautar míns væri ég ekki hæfur til að gegna ábyrgð­ar­stöðu í sam­fé­lagi mínu. En vitið þið hvað. Ég ætla ekki að láta það brjóta mig! Ég hef bognað en ég mun aldrei gera þessum ein­stak­lingum eða hópi fólks það til geðs að brotna.“

Styrk­ur­inn er mik­ill hjá Frið­þjófi eins og lesa má út úr orðum hans hér að ofan. Og hann er þakk­látur fyrir stuðn­ing sem hann hefur hlotið og ætlar ekki að láta for­dómana sigra sig:

„Ég hef sinnt starfi mínu af alúð, sam­visku­semi og af miklum krafti. Og enn og aftur náð árangri svo eftir því er tekið. Það er ekk­ert sann­gjarnt við þessar skoð­anir fólks á mér og mínum störfum, sem dæma mig út frá sjúk­dómi þeim sem ég lifi með. Ég er ég og mun aldrei vera sjúk­dóm­ur­inn. Hann er ekki ég. Ég er ég og hef margt fram að færa og get nýtt reynslu mína til góðra verka. Til ykkar sem hafið stutt mig, vil ég af kær­leika þakka það. Án ykkar hefði ég brotnað!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina