Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vítalía segist hafa verið beitt ofbeldi í ástarsambandi: „Hann dúndrar símanum í hausinn á mér“

Vítalía segist hafa verið beitt ofbeldi í ástarsambandi: „Hann dúndrar símanum í hausinn á mér“
Vítalía Lazareva.

Vítalía Lazareva skrifar á Facebook-síðu sinni um sam­band sitt og ónefnds manns.

„Að þríf­ast í ofbeld­is­sam­bandi er meira en að segja það. Èg vissi aldrei í raun hvað orðið ofbeld­is­sam­band þýddi eða um hvað fólk ræddi, þegar maður hefur ekki verið þarna þá hrein­lega veit maður í raun ekki hvað hlut­irnir geta snöggt breyst úr hvítu í kol­svarta.

Að búa við ofbeldi í nánu sam­bandi er meira en að segja það. Það góða er svo gott en það slæma er svo hrika­lega slæmt. Ofbeldið vindur uppá sig, það byrjar oft með and­legu en fer yfir í lík­am­legt.“

Hún bætir því við að „ég varð ekki fyrir höggi fyrr en síð­asta sumar í fyrsta skipti, og ég taldi mér trú um það að aðil­inn hafi verið fullur og reiður, að hann myndi ekki leggja hendur á mig aftur. Tíminn leið og ég flutti inn með honum, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, flutn­ingar fram og til­baka.

Ofbeldið varð meira og byrj­aði ég að skrifa niður í sím­anum mínum þegar ofbeldið átti sér stað, hrein­lega til að minna mig á að ég hef rétt fyrir mér-manni er jú oft sagt að maður rann sjálfur til á mott­unni eða hrein­lega neitað fyrir það að hafa lagt á mann hendur.

Ég vildi alltaf trúa að aðil­inn gæti breyst, því ég elskaði hann svo mikið og vildi svo inni­lega trúa að allt myndi verða betra, en það varð það ekki.“

Vítalía segir að hún muni aldrei gleyma „deg­inum sem við liggjum saman og erum að fara að sofa, ég segi eitt­hvað sem honum misslíkar og hann dúndrar sím­anum í haus­inn á mér, ég geng með kúlu í nokkra dagaa eftir þetta en læt samt eins og þetta hafi verið mér að kenna, með­virknin var orðin svo mikil.

Lygarnar og lyga­vef­ur­inn sem mynd­ast í svona hringjekku er stór­hættu­legur, ég hef logið að fólki sem stendur mér næst með þeirri trú um að ég væri að hlífa þeim. Það er jú frá­bært þegar maður lokar á vini og fjöld­skyldu til að aðil­inn geti ein­angrað þig sem mest og stjórnað þér með ákveðnum hætti. Það hefur verið talið mér trú um að stundum þarf að ljúga til að halda öllum góðum.. eða sagt þetta kemur engum við og svo fram­vegis.“

Vítalía segir að hún biðj­ist „afsök­unar að hafa ekki staðið í báðar lappir all­ann tím­ann. Ég þorði aldrei að fara, ég var alltaf hrædd, ég fór til­baka sjálf­viljug,ég hugs­aði oft­ast að ég myndi ekki finna neitt betra og þetta væri alvöru ást. Ég vissi ekki betur og hlust­aði ekki á neinn sem ráð­færði mér annað, lög­fræð­ingar, sér­fræð­ingar og fólk sem stendur mér næst, ekk­ert og eng­inn náði til mín nema hann.

Daginn í dag hefur ofbeldið verið and­legt, lík­am­legt og byrjað að þró­ast i fjár­hags­lega hluti með stjórn­semi. Ögrun og hót­anir fylgja alltaf eftir. Allir sem hafa verið í svona aðstæðum vita að þetta dregur fram það versta í manni, maður ver sig með kjafti og klóm og hrein­lega verður við­bjóðs­legur.“

Hún segir það „að búa við þannig aðstæður að þú myndar allt sem þér er sent og safnar saman alls­konar gögnum til að vera við­bú­inn til þess að einn dag­inn springur allt, ég óska engum þess að búa við það að reyna að spila eitt­hvern svona klikk­aðan leik um full­komið heim­ili sem síðan er að rotna að innan.

Ég var beðin um að skrifa að ég myndi aldrei ræða nein mál opin­bert og kvitta með minni und­ir­skrift, ég var beðin um að stíga fram og segja að við­talið sem ég fór í var ýkt og var ég beðin um að biðja hans fjöld­skyldu afsök­unar á við­tal­inu. Ég gerði það aldrei.

Ég stend með minni frá­sögn og læri enn eina ferð­ina að mann­eskjan sem stóð mér næst var mann­eskjan sem síðar lagði á mig hendur, og mann­eskjan sem sagði stuttu eftir okkar kynni að hann ætl­aði að sofa hjá mér fyrir framan vini sína og leyfa þeim að horfa á. Þessi mann­eskja hefur safnað ótelj­andi myndum af mér eins og nekt­ar­myndum og geymt þær í leyf­is­leysi, hefur lekið gögnum úr sím­anum mínum og sagt tvennar mis­mun­andi sögur hvað varðar öll málin sem hafa verið til umfjöll­unar sem og fólki sem stendur honum næst, ég hef lært það að eng­inn fær að vita hreinan og beinan sann­leikan frá honum, sama hvort það sé fjöld­skylda eða vinir, það er sagt það sem hentar hverju sinni. Lyga­vef­ur­inn er orð­inn svartur eins og svart­hol.“

Vítalía segir að end­ingu að „alltaf þegar koma fréttir um sam­búð okkar þá er logið og haldið því fram að ekk­ert um það sé satt. En stað­reyndin er sú að ég bjó þarna og margir sem vita það. Maður grætur og brotnar niður, hugsar afhverju þarf alltaf að nið­ur­lægja mann með þeim hætti að neita fyrir eitt­hvað sem hreini­elga er ekki hægt að neita fyrir. Ég veit ástæð­una og hún er sú að það þarf að halda lyga­vefnum í kringum sig gang­andi. Ég er fegin að dag­ur­inn í dag varð til þess að aðil­inn eyddi mér af miðl­inum eftir að ég neit­aði að tweeta eða hringja í frétta­mið­il­inn. Þetta hefur verið stans­laust í umfjöllun og allir komnir með upp í kok að lesa um þessi mál. Ég biðst afsök­unar á því og biðst afsök­unar á að hafa ekki staðið með sjálfri mér alla leið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við