Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tinna komin með nóg af íslensku rugli: „Af hverju ætti ungt fólk að láta bjóða sér uppá þetta?“

Tinna komin með nóg af íslensku rugli: „Af hverju ætti ungt fólk að láta bjóða sér uppá þetta?“
Tinna Borg Arn­finns­dóttir, Viðreisn.

Langar mig að bjóða börn­unum mínum uppá þetta? er yfir­skrift greinar Tinnu Borg Arn­finns­dóttur, sem er for­maður Við­reisnar í Garðabæ, og hefst hún svona:

„Íslend­ingar eru töffarar, Íslenski vík­ing­ur­inn og harð­jaxl­inn, íslenska konan sem ber harm sinn í hljóði og fórnar sér fyrir fólkið sitt. Þarf þetta í alvöru að vera svona? Þarf maður alltaf að fara allt á hnef­anum og klappa sér svo á bakið fyrir það hvað maður er dug­legur og harður af sér að standa í lapp­irnar lægð eftir lægð hvort sem hún kemur fram í veðri eða efna­hag. Mig langar ekki að bjóða börn­unum mínum uppá þetta.“

Hún bætir því við að „eng­inn virð­ist geta tekið ákvarð­anir sem fyr­ir­byggja enda­lausar sveiflur í efna­hags­líf­inu okkar, við búum ann­ars­vegar við svo mikið góð­æri að nú erum við sko búin að mastera þetta og hins vegar við svo mikla óvissu, verð­bólgu, ofur­vexti og ólgu að allt fer á hlið­ina.“

Tinna nefnir að hún sé „34 ára og hef lifað í gegnum hrun og núna sé ég ekki stefna í neitt annað fyrir íslenskan almenn­ing. Tvisvar á 15 árum þar sem fjöl­skyldur í land­inu standa frammi fyrir því að missa heim­ilin sín, þetta er ekki í lagi.

Jú, ég var 19 ára í hrun­inu en ég var flutt að heiman, byrjuð að leigja og með mynt­körfu bíla­lán svo ég fann fyrir hrun­inu á eigin skinni, en slapp þó mun betur en þeir sem komnir voru lengra af stað inn í lífið. Það breytir því ekki að ég nenni þessu ekki! Ég nenni ekki að þurfa að stíga öld­una á 15 ára fresti og tíma­setja mig full­kom­lega með því að rýna í „veð­ur­spá“ mark­að­ar­ins með til­liti til þess hvort ég eigi að end­ur­fjár­magna núna, festa vexti núna, greina mark­að­inn á þann hátt sem mark­að­ur­inn getur ekki einu sinni greint sig sjálfur.“

Hún færir í tal að „óneit­an­lega er það alltaf þannig að maður á að kynna sér mark­aðs­að­stæður og taka upp­lýsta ákvörðun þegar verið er að taka stórar ákvarð­anir. Það er hins vegar ekk­ert að marka þessar svoköll­uðu upp­lýstu ákvarð­anir sem íslenskir neyt­endur taka. Hvenær á að festa vext­ina á lán­inu sínu? Við vitum það ekki fyrr en allt of seint hvort við festum vexti á réttum tíma, refs­ingin okkar er síðan ekki „ahh auk­inn vaxta­kostn­aður við hefðum getað sparað okkur“ heldur full­kom­inn for­sendu­brestur og meiri háttar end­ur­fjár­mögnun sem felst þá helst í því að lengja lán um tugi ára og jafn­vel breyta þeim úr óverð­tryggðum í verð­tryggð og treysta þá á að verð­bólgan næstu 40 ár hald­ist þó alla­vega stöðugri en vaxta­pró­sentan og vona að við náum að rétta okkur af fyrir næsta skell. Langar mig að bjóða börn­unum mínum uppá þetta? Nei! Mig langar það ekki – Ég kæri mig ekki um það að borga sam­visku­sam­lega af lán­inu mínu mánuð eftir mánuð, vit­andi það að for­sendur mark­að­ar­ins geti breytt öllum mínum per­sónu­legu fjár­mál­unum í einni svipan og borga þannig fyrir hag­kerfi sem helst ekki stöðugt í meira en 5 mín­útur.“

Tinna segir að „á þessum tíma­punkti þarf að stíga niður fæti og fara í gagn­gera end­ur­skoðun á því hvað við teljum eðli­legar sveiflur hag­kerfis, og hætta að klappa okkur á bakið fyrir hvað við erum dug­leg að lifa í þessu landi við þessar aðstæður. Að öðrum kosti mun ungt fólk ekki láta bjóða sér þetta mikið lengur og fólks­flótti frá land­inu verður mik­ill, senni­lega meiri en í hrun­inu og fólk ólík­legra til að snúa til baka.

Rann­sóknir hafa sýnt að ný kyn­slóð er ekki jafn helguð starf­inu sínu eða upp­á­halds vöru­merk­inu sínu, meiri kröfur eru gerðar til vinnu­veit­enda til að halda fólki í starfi og vöru­merki geta tapað fylgj­endum yfir nótt hafi þau sín mál ekki á hreinu. Landið okkar er ekki und­an­skilið þessu lög­máli, af hverju ætti ungt fólk að láta bjóða sér uppá þetta? Fyrir mína parta spyr ég sjálfa mig oft þess­arar spurn­ingar, og list­inn yfir kost­ina minnkar í hvert skipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við