Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Jón komst í klappfæri við ísbjörn: „Við vorum með byssuna inni hjá okkur en skotin fyrir utan“

Jón komst í klappfæri við ísbjörn: „Við vorum með byssuna inni hjá okkur en skotin fyrir utan“
Ísbjörn­inn allur

Dýralíf á Íslandi er ekk­ert sér­stak­lega spenn­andi þannig séð. Við erum með fal­leg dýr eins og hrein­dýr, refi og seli svo nokkur séu nefnd en ekk­ert þeirra er sér­stak­lega hættu­legt. Sem betur fer auð­vitað. Helsti skelfir­inn er senni­lega minnk­ur­inn eða þá bölvað lús­mýið. En annað slagið flæk­ist hingað ansi hreint hættu­legt dýr, ísbjörn­inn.

Árið 1974 komust nokkrir ein­stak­lingar í hann krapp­ann þegar ísbjörn gerði sig gest­kom­inn við slysa­varn­ar­skýli við Fljóta­vík. Komst bjarn­dýrið svo nálægt þeim að það hefði verið hægt að klappa honum. Sem betur fer gerðu þau það ekki. Árið 1988 rifj­aði Jón Gunn­ars­son, einn af ein­stak­ling­unum, upp þessa ótrú­legu sögu. Hér fyrir neðan má lesa um þessa hættu­legu heim­sókn:

Dýrið lá fyrir framan dyrnar og át nestið mitt -segir Jón Gunn­ars­son, smiður á Ísafirði, sem kom­ist hefur í klapp­færi við bjarn­dýr

„Við vorum fjögur full­orðin, ég, Helgi Guð­munds­son, Ingólfur Egg­erts­son, sonur hans, Hörður, og Bogga Vern­harðs auk þriggja krakka, á leið norður í Fljóta­vík með jeppa­vél sem verið hafði í end­ur­hæf­ingu hjá okkur. Þetta var seinni­part­inn í maí árið 1974,“ sagði Ísfirð­ing­ur­inn Jón Gunn­ars­son í sam­tali við DV um aðdrag­and­ann að fyrstu kynnum hans af bjamdýri. „Við fórum í land í norð­an­verðri Fljóta­vík, á stað sem kall­aður er Atla­staðir en þar eigum við sum­ar­bú­stað. Þegar allir voru komnir í land og við höfðum borið bíl­vél­ina upp að slysa­varna­skýli, sem þarna er, urðum við vör við björn­inn sem var alveg við hlið­ina á okkur. Það má segja að hann hafi verið í klapp­færi við okkur.“ – Var dýrið alveg mein­laust? „Ja, við vorum ekk­ert að athuga það. Við flúðum öll inn í slysa­varna­skýlið og gengum þar um á tánum. Þar nötr­uðum við af hræðslu því við héldum að hann bryti upp hurð­ina og æti okkur öll. Það sem gerði okkur líka skelk­aða var að Magnús sonur minn og sonur Helga Guð­munds­sonar voru í sum­ar­bú­staðnum okkar og voru á leið yfir í skýlið til að kalla á okkur í mat­inn. Drengirnir, sem voru tíu ára, höfðu ekki hug­mynd um bjarn­dýrið. Þeir hefðu getað gengið beint í flasið á dýr­inu þannig að þetta var mikil spenna hjá okkur.“ – Hvað tókuð þið til bragðs? „Við fórum nátt­úr­lega að spek­úlera í hlut­unum, hvað væri nú best að gera því við vorum með byss­una inni hjá okkur en skotin fyrir utan og þar var björn­inn. Það komu ýmsar upp­á­stungur um hvernig best væri að góma björn­inn, m.a. sú að reyna að nota net sem við höfðum utan um bíl­vél­ina, kom­ast með það upp á þakið og kasta yfir björn­inn. Við köll­uðum líka í Ísa­fjarð­ar­radíó en þar fengum við bara skammir. Okkur var sagt að bannað væri að nota stöð­ina nema í neyð­ar­til­fellum og þetta teld­ist ekki neyð­ar­til­felli að þeirra mati.“ – Var björn­inn alltaf í færi við ykkur? „Nei, hann var lengst af fyrir framan dymar hjá okkur að éta nestið mitt. Endirinn var sá að við komumst út til að ná í skotin, brutum síðan rúðu á skýl­inu og skutum björn­inn. Þannig fór betur en á horfð­ist.“ – Var þetta stórt dýr? „Hann var tveir og hálfur metri á lengd og um 150 kíló á þyngd. Senni­lega hefur hann verið tveggja ára.“ – Hvað varð um björn­inn? „Hann fór á íslenska dýra­safnið í Reykja­vík þar sem hann var stoppa­öur upp og núna er hann á safni á Selfossi. Það var ekki mikið fjallað um þessa lífs­reynslu okkar á þessum tíma. Þó man ég eftir því að ein­hver,jóla­kálfur“ úr Háskól­anum skrif­aði grein og skamm­aði okkur fyrir að hafa skotið greyið. Þessum manni var aldrei svarað því ég held að það sé eng­inn svo vit­laus að klappa bjarn­dýri til að vita hvort það bíti. Ég hafði heyrt að bjarn­dýr gætu brotið niður hús og étið menn þannig að það var ekk­ert sér­lega geðs­legt að vera norður í Fljóta­vík með bjarn­dýr fyrir framan dyrnar og börnin sín í nálægð við það,“ sagði Jón Gunn­ars­son.

Ísbjörn­inn allur

Bak­sýn­is­speg­ill­inn birt­ist áður í nóv­em­ber 2022 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina