Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lestu allt um lygilegt lífshlaup Ólafs: „Ég var farinn að sprauta mig 15 ára gamall“

Lestu allt um lygilegt lífshlaup Ólafs: „Ég var farinn að sprauta mig 15 ára gamall“
Ólafur Hall­dórs­son. Mynd / Skjáskot af RÚV.

Ólafur Hall­dórs­son gjör­beytti lífi sínu eftir bak­poka­ferða­lag um Afríku sem end­aði með því að hann stofn­aði mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í Kenýa sem hann rekur enn.

Ólafur er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar:

,,Ég hef stundum sagt að ég hafi ein­fald­lega fengið köllun. Ég átti í raun ekk­ert val eftir að þessi hug­mynd var komin í haus­inn á mér. Ég var upp­haf­lega kom­inn þarna bara til að ferð­ast og ætl­aði að skoða Afríku betur þegar ég fékk gist­ingu á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili nálægt Vikt­or­íu­vatni.

Ég vakn­aði umkringdur vannærðum og illa höldnum börnum allt í kringum mig. Það var einn lít­ill strákur frá Uganda sem algjör­lega töfraði mig og eftir það var ekki aftur snúið. Ég hætti við öll frek­ari áform um ferða­lög og ákvað að nota ferða­pen­ing­inn frekar í að reyna að bæta aðbúnað þess­arra barna. Svo þegar ég kvaddi gerði ég sam­komu­lag við for­stöðu­mann­inn um að ég myndi senda pen­ing í hverjum mán­uði sem færi í morg­un­mat.

En pen­ing­ur­inn myndi bara koma gegn því skil­yrði að aldrei yrðu lagðar hendur á börnin, sem er því miður allt of algengt.

Næsta ár kom ég aftur og sá strax að pen­ing­ur­inn var ekki að fara í rétta hluti og með­ferðin á börn­unum var ekki nógu góð. Þá fann ég að ég yrði að gera eitt­hvað drastískt í þessu af því að það var ekki val fyrir mig að yfir­gefa bara þessi börn án þess að gera neitt í mál­unum. Ég sagði við sjálfan mig:

,,Ef þú gerir ekk­ert í þessu skalt þú hundur heita,” segir Ólafur og heldur áfram:

,,Ég náði að fá öll leyfi til þess að stofna mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili sjálfur án þess að múta neinum, sem þykir merki­legt í þessum heims­hluta. Ég hef lík­lega verið í hálf­gerðu geð­rofi þegar ég ákvað að gera þetta og í raun er ótrú­legt að ég hafi náð að koma þessu í gegn af því að ég vissi ekk­ert hvað ég var að fara út í. Rekstur á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilum er því miður oft á tíðum bara stór bis­ness í þriðja heim­inum.

Þá er eng­inn hvati að ná að bæta aðbúnað barn­anna eða koma þeim út í lífið. Dæmið gengur bara út á að sýna illa haldin börn og fá reglu­legt fjár­magn sem fer síðan bara í allt aðra hluti en það sem þeir eiga að fara í.”

Ólafur hefur átt ótrú­legt lífs­hlaup, sem meðal ann­ars leiddi hann til Marokkó og Pakistan til þess að kom­ast í hrein­ustu fíkni­efni heims á meðan hann var í neyslu:

,,Ég fór á sjó­inn mjög ungur eftir að hafa hætt í Haga­skóla og 13-14 ára gam­all var ég bara kom­inn í þann heim. Ég var föð­ur­laus og sjó­ar­arnir voru í raun mín föð­urí­mynd og ég tók við því sem þeir réttu mér. Hvort sem það voru síga­réttur, víski­glas eða annað.Ég byrj­aði að drekka 13 ára gam­all og fór mjög fljótt að drekka illa. Svo kom hassið inn þegar ég var 14 ára og ég var far­inn að sprauta mig 15 ára gam­all. Þannig að þetta var mjög hröð þróun sem vatt síðan bara enn frekar upp á sig.

Ég var til skiptis á sjónum eða á flakki um heim­inn í áraraðir. Ég veit ekki alveg hverju ég var að leita að, en ég var í það minnsta að leita að góðum fíkni­efnum. Þegar ég komst að því að besta hassið væri í Marókkó fór ég þangað í margar ferðir og bjó þar til að vera nálægt besta efn­inu,” segir Ólafur, sem segir að svo hafi leiðin legið austur á bóg­inn.

,,Þegar ég fór svo að fara í harð­ari efni lá leiðin svo austur, fyrst til Indlands, en síðar Burma, Kína og Pakistan. Ég var ópíóða­fík­ill í mjög mörg ár og í þessum löndum var hægt að fá bestu efnin mjög ódýrt. Fyrir mér var hrein­lega ekk­ert vit í því að vera í neyslu á Íslandi. Bæði mun verri efni, allt of dýr og svo var líka skömm yfir því. Það var auð­veld­ara að vera bara einn af öllum hinum fíklunum í þessum löndum og maður hvarf í fjöld­ann.”

Ólafur náði á ótrú­legan hátt að kom­ast á beinu braut­ina eftir áraraðir af mik­illi neyslu:

,,Í rest­ina var ég orðin algjör alæta á fíkni­efni, hvort sem það var lækna­dóp eða ólög­leg efni og það var versti stað­ur­inn. Á þessum tíma kunni eng­inn á Íslandi að eiga við fíkla sem voru komnir svona langt. Á end­anum komst ég í með­ferð í Danmörku, en klúðr­aði því mjög hratt, en eftir þriðju atrenn­una náði ég loks­ins vopnum sem náðu að koma mér burt frá áfeng­inu og öllum sterku efn­unum. Það tók aðeins lengri tíma að losna við grasið. En lík­am­legu frá­hvörfin frá öllum þessum efnum voru gríð­ar­leg í mínu til­felli. Ég var með haus­verk og maga­krampa meira og minna í heilt ár og ég hélt að það yrði alltaf þannig, en það var samt skárra en ástandið á mér í neysl­unni. En smátt og smátt fór ég að lag­ast. Eitt af því sem hjálp­aði mér var trúin og ég tók út mikið af frá­hvör­f­unum með haus­inn í jörð­inni þar sem ég bað mörgum sinnum á dag.”

Ólafur hefur sem fyrr segir ákveðið að helga líf sitt mun­að­ar­leys­ingja­heim­il­inu sem er rekið undir nafn­inu Björt Sýn. Hann segir rekst­ur­inn ekki alltaf auð­veldan, en ein­hvern vegin haf­ist það alltaf:

,,Ég fékk sann­girn­is­bætur fyrir ein­hverjum árum vegna slæmrar með­ferðar og ofbeldis sem ég sætti sem barn í Landa­kots­skóla. Það kom sér vel að geta nýtt stóran hluta af þeim í að byggja upp mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilið og var í raun það sem gerði mér kleyft að láta þetta ger­ast. Mér fannst það tákn­rænt eftir mína æsku að geta notað þetta fjár­magn fyrir börnin í Kenýa. Það hefur tekst núna að búa til betra líf fyrir um 70 börn sem eru þarna núna og það er alveg frá­bært. Þetta starf hefur gefið mér alvöru til­gang í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki lengur tíma til að vera fastur í eigin rassi dag­inn út og inn, af því að núna er eitt­hvað mik­il­væg­ara sem þarf að gera.

Það er engin smá gjöf sem ég hef fengið til baka frá þessum börnum. Rekst­ur­inn er stundum erf­iður frá mán­uði til mán­aðar, en sem betur fer hefur verið að koma fjár­magn úr alls kyns áttum á Íslandi og ég er alltaf jafn­þakk­látur fyrir það.”

Viðtalið við Ólaf og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á sol­vi­tryggva.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við