Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Þessi taktík er að ganga frá stöðugleikanum hér, enginn í ríkisstjórn stendur vörð um velferðina“

„Þessi taktík er að ganga frá stöðugleikanum hér, enginn í ríkisstjórn stendur vörð um velferðina“
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar að „eitt stærsta vanda­mál okkar tíma er van­traust og van­trú í garð stjórn­mála­manna. Sú til­finn­ing að hvað sem er sé sagt, án ábyrgðar. Og að stöð­ug­leiki í stjórn­ar­fari sé keyptur með aðgerða­leysi í lands­mál­unum — eins og það skipti mestu máli að fólk í rík­is­stjórn haldi út, en ekki hvað það gerir á meðan það situr í emb­ætt­unum.“

Hún færir í tal að „upp á síðkastið hafa svo stjórn­ar­þing­menn, og raunar rík­is­stjórnin öll, sífellt oftar stillt sér upp í stöðu álits­gjafa — sem fylgist með og gerir athuga­semdir, án þess að taka nokkra ábyrgð. Líkt og þau lendi bara í aðstæðum. En séu ekki meiri­háttar ger­endur í lífi hins almenna Íslend­ings. Það er 10% verð­bólga, vextir nálg­ast 9% — og eng­inn vill bera ábyrgð.

Nú þarf nýja póli­tík til for­ystu.“

Kristrún nefnir  að „við í Sam­fylk­ing­unni skiljum nefni­lega sam­hengi hlut­anna, sam­hengi sem hæst­virt rík­is­stjórn neitar að horfast í augu við. Brestir hafa mynd­ast víða í vel­ferð­ar­kerf­inu okkar á und­an­förnum árum. Sama hversu oft hæst­virtir ráð­herrar þylja upp töl­fræði um kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna og ýmsa mæli­kvarða á tekju­jöfnuð, þá dylur það ekki þá til­finn­an­legu stað­reynd — sem blasir við flestum Íslend­ingum með reglu­bundnum hætti — að opin­ber þjón­usta hefur versnað. Það er ekki vegna þess að starfs­fólkið standi sig verr heldur vegna þess að aðgengið hefur minnkað, vegna álags, mann­aflaskorts og kostn­að­ar­þátt­töku. Þessi verri gæði vel­ferð­ar­þjón­ustu mæl­ast þó ekki í kaup­mætti. Þetta er meiri­háttar mál — enda stór hluti af vel­sæld fólks í vel­ferð­ar­sam­fé­lagi.“

Hún segir einnig að „almenn­ingur finnur líka fyrir brestum á hús­næð­is­mark­aði. Það finnur fyrir því að í dag kostar með­al­hús­næðið 14-faldar með­al­ráð­stöf­un­ar­tekjur í land­inu, m.v. 8-faldar tekjur á síð­asta ára­tug. Þetta er helsta ástæða þess að vaxta­hækk­anir eru svona sárs­auka­fullar — fólk skuldar svo mikið í hús­næði sínu að hvert pró­sentu­stig vegur þyngra. Og fólk finnur fyrir því að leigu­mark­að­ur­inn hér er einn sá óreglu­vædd­asti meðal þeirra landa sem við berum okkur saman við. Hér er leigu­hús­næði sem rekið er á sam­fé­lags­legum grunni í lág­marki miðað við nágranna­löndin og leigu­vernd af skornum skammti; hömlu­leysið á hús­næði­mark­aði er rót verð­bólg­unnar í dag og helsta ástæðan fyrir ólgu á vinnu­mark­aði.“

Hún bendir á að „nú hefur hæst­virt rík­is­stjórn kynnt fjár­mála­á­ætlun til næstu ára og það er orðið ljóst að öll fyr­ir­heit um stór­kost­lega upp­bygg­ingu í hús­næð­is­málum eru brostin – hér á ekki að byggja þann fjölda hag­kvæmra íbúða sem lofað var fyrr en eftir að kjör­tíma­bil­inu lýkur. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hefur sjálfur ítrekað haft orð á því að fólkið í land­inu hafi ekki trú á því að rík­is­stjórnin geti náð tökum á ástand­inu. Það sé sjálf­stæður vandi. Af hverju ætli það sé? Hér ættu menn e.t.v. að líta í eigin barm og spyrja sig hvers vegna illa gengur að ala á sam­stöðu meðal þjóð­ar­innar til að takast á við verð­bólg­una.

Fólk trúir ein­fald­lega ekki for­svars­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar. Enda hefur hún brugð­ist í þessum grund­vall­ar­mála­flokki; brugð­ist þegar kemur að því að tryggja hús­næð­is­ör­yggi fólks; þá hafa stjórn­völd brugð­ist þegar kemur að því að tryggja ákveðið öryggi í heil­brigð­is­málum. Samn­ings­leysið við sér­fræði­lækna hefur kallað yfir við­kvæm­asta hóp­inn í sam­fé­lag­inu, öryrkja, margra millj­arða króna auka­reikn­ing sem borga þarf af lægstu tekj­unum í land­inu. Fyrir þessu finnur reyndar allur íslenskur almenn­ingur. Fólk þarf nú að borga fyrir öryggi sitt beint úr eigin vasa og það birt­ist meðal ann­ars í auknum launa­kröfum.“

Bætir við:

„Rík­is­stjórnin hefur brugð­ist þegar kemur að því að skilja að úrbætur í vel­ferð­ar­kerf­inu okkar, í til­færslu­kerfum – barna­bótum, vaxta­bótum, betri heil­brigð­is­þjón­ustu – allt eru þetta þættir sem eru betur til þess fallnir að styðja við fólk eftir þörf og tíma­bili í líf­inu en almennar launa­hækk­anir. Það er ástæða fyrir því að í vel­ferð­ar­sam­fé­lögum í kringum okkur hefur gengið betur að semja um hóf­legar launa­hækk­anir, jafnt og þétt; því grunn­vel­ferðin og grunn­til­færslu­kerfin eru sterk­ari þar en hér. Þetta skilja líka atvinnu­rek­endur á Norð­ur­lönd­unum. Sam­trygg­ingin dreifir fjár­magni með skil­virk­ari hætti þegar áföll dynja yfir en almennar launa­hækk­anir. En þegar sam­trygg­ingin er veik þá er lítið annað hægt að gera en að krefj­ast launa­hækk­ana.“

Segir að „á þessu ástandi, og sam­hengi hlut­anna, ber hæst­virt rík­is­stjórn ábyrgð. En í stað þess horfast í augu við það bendir hún á vinnu­mark­að­inn — hneyksl­ast á launa­fólki fyrir að bæta sér upp brest­ina í vel­ferð­ar­kerf­inu með hærri kaup­kröfum. Og í stað þess að axla sína ábyrgð, þá eft­ir­lætur rík­is­stjórnin ókjörnum emb­ætt­is­mönnum í Seðla­bank­anum einum að taka risa­stórar ákvarð­anir sem hafa veru­lega áhrif á dag­legt líf fólks. Virðu­legi for­seti. Vextir eru mjög breitt tól. Vaxta­hækkun spyr ekki um stöðu fólks. Vaxta­hækkun á vissu­lega að hafa þau áhrif að efla sparnað — en ekki með því að gera fólki ókleift að borga fyrir nauð­synjar eða með því að draga úr hús­næð­is­ör­yggi fólks. Seðla­bank­inn hefur lög­bundið hlut­verk — sem er að tryggja verð­stöð­ug­leika — en hann hefur tak­mörkuð tól til að tryggja jöfnuð í land­inu. Og hefur reyndar ekki einu sinni umboð til þess. Til þess eru kjörnir full­trúar hins vegar.

Hlutverk rík­is­ins er að huga að stóru mynd­inni. Ekki eft­ir­láta ókjörnum emb­ætt­is­mönnum að ákvarða hvernig sam­fé­lagið þró­ast hérna.

Staðan í okkar vel­ferð­ar­sam­fé­lagi er sú að rík­is­stjórnin hæst­virt hefur farið þá leið að sann­færa íslenskan almenn­ing um ágæti þess að lækka skatta. En á móti hefur hún tekið tugi millj­arða út úr vel­ferð­ar­kerf­inu okkar. Félags­hyggju­flokk­arnir svoköll­uðu sem gengu inn á efna­hags­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins — sem tekur stærstu stefnu­mót­andi ákvarð­anir og hefur gert það í ára­tug — stæra sig jafnan af þeirri skatta­lækk­un­ar­veg­ferð sem ráð­ist var í.

Enginn stendur vörð um vel­ferð­ar­sam­fé­lagið í þess­ari rík­is­stjórn; eng­inn stendur vörð um sam­stöð­una. Það er nefni­lega ábyrgð­ar­hluti að ala ekki á hólfa­skipt­ingu sam­fé­lags­ins – að sjá stóru mynd­ina á meðan heim­ili lands­ins, eðli­lega, hugsa um heim­il­is­bók­haldið sitt og treysta ráða­mönnum fyrir heild­ar­sam­hengi hlut­anna.

Já, rík­is­stjórnin hæst­virt fjölg­aði skatt­þrepum — en það var allt í takt við vilja hæst­virts fjár­mála­ráð­herra; með því að fjar­lægja tugi millj­arða króna út úr tekju­stoðum rík­is­ins og með til­heyr­andi áhrifum á vel­ferð­ar­kerfið okkar. Enginn vilji hefur verið fyrir því að mæta þess­ari skatta­lækkun með auk­inni skatt­heimtu ann­ars staðar — þó að sjóðir séu víða digrir. Og keyrt hefur verið á þeirri mön­tru, með stuðn­ingi allra rík­is­stjórn­ar­flokka, að ráð­stöf­un­ar­tekjur fólks hafi auk­ist og þar með vel­sæld meðal-Íslend­ings vegna þess­arar aðgerðar.

Minna fer fyrir umræðu, sem sannir vel­ferð­ar­sinnar myndu halda á lofti, að þessi aðgerð og þetta hug­ar­far hafi orðið til þess að kljúfa þjóð­ina í marga hluta — hólfa fólk af. Þar sem auknar tekjur fólks eftir skatta veiktu opin­bera þjón­ustu og getu hins opin­bera til að veita hús­næð­is­mark­aði aðhald. Þau sem skilja þetta skilja hvers vegna auk­inn kaup­máttur fólks, að með­al­tali, hefur ekki aukið ánægju hins almenna Íslend­ings, hvað þá þeirra sem helst þurfa að reiða sig á vel­ferð­ar­þjón­ust­una.“

Kristrún er ekki ánægð með stöðu vel­ferð­ar­mál á Íslandi:

„Vel­ferð­ar­þjón­ustan sem eykur lífs­gæði fólks hefur versnað. Og auknar ráð­stöf­un­ar­tekjur hverfa í auknum hús­næð­is­kostn­aði hjá stórum hluta almenn­ings. Þetta sam­hengi hlut­anna skiptir máli, því að eng­inn í þess­ari rík­is­stjórn stendur vörð um vel­ferð­ina. Enginn vill skilja þetta sam­spil hins opin­bera, vinnu­mark­aðar og atvinnu­lífs — og svo er fólk hissa á að það sé ekki sátt meðal almenn­ings í núver­andi umhverfi.“

Kristrún segir að það sé „ennþá tæki­færi til að grípa til aðgerða fyrir þing­lok; ég vil benda á að þó að jafn­að­ar­fólk sé ekki við for­ystu í land­inu og í vel­ferð­ar­kerf­inu — og þó að stefnu sam­fé­lags­ins verði ekki breytt yfir nóttu — þá er samt ennþá tæki­færi til að grípa inn í fyrir þing­hlé í sumar; til að sýna fólki að það sé skiln­ingur hérna á því að ef ekki bæt­ast við aðgerðir fyrir heim­ilin; aðgerðir sem vel er hægt að fjár­magna og koma þannig í veg fyrir þenslu­á­hrif – þá eykst hérna klofn­ing­ur­inn og hólfa­skipt­ingin sem rík­is­stjórnin hefur alið á. Þá veik­ist sam­staðan enn meira.“

Hún nefndi að lokum að „kjara­samn­ings­við­ræður hefj­ast á verri stað í haust. Það gengur nefni­lega ekki til lengdar, líkt og for­seti ASÍ benti á um dag­inn, að rík­is­stjórnin beiti sjálf­sögðum umbótum í vel­ferð­ar­kerf­inu alltaf sem skipti­mynt á loka­metrum kjara­samn­inga.

Sú taktík sem stunduð hefur verið hér öll ár þess­arar rík­is­stjórnar hæst­virtrar: að ýta undir ósætti og mæta stefnu­laus ár eftir ár með fjár­lög inn í þingið — til þess eins að skapa vanda sem hægt er að bjarga fyrir horn á síð­ustu stundu. Þessi taktík er að ganga frá stöð­ug­leik­anum hér í land­inu. Ekki nema von að fólk van­treysti póli­tík­inni og trúi svo ekki ráða­mönnum þegar þeir fara að tala hér um þjóð­ar­sátt. Það stendur ekki á okkur í Sam­fylk­ing­unni að koma með lausnir. Við setjum okkur ekki upp á móti öllu né gerum við mál úr hverju sem er.

En þegar kemur að kjörum fólks, efna­hag og vel­ferð — þá höfum við skýra sýn og skiljum hvers vegna fólk vill sjá breyt­ingar. Við munum leggja fram til­lögur um vaxta­bætur á næstu dögum og höfum ítrekað beðið rík­is­stjórn­ina að setj­ast niður með verka­lýðs­hreyf­ing­unni sem fyrst til að útfæra tíma­bundna leigu­bremsu. Og við biðlum til rík­is­stjórn­ar­innar að ekki sé gefið eftir í upp­bygg­ingu hús­næðis. Ef farið verður inn í sum­arið án þess að rík­is­stjórnin sýni að hún skilji hér sam­hengi hlut­anna þá bíður okkar erf­ið­ari kjara­vetur en ella.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina