Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Erlendir betlarar sviku fé af fólki á Akureyri – Lögreglan skoðar skipulagða glæpastarfsemi

Erlendir betlarar sviku fé af fólki á Akureyri – Lögreglan skoðar skipulagða glæpastarfsemi
Akureyri

Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra óskar eftir upp­lýs­ingum um vafa­samar pen­inga­safn­anir eftir afskipti af tveimur erlendum karl­mönnum sem betl­uðu pen­ing á Akureyri. Menn­irnir létu sem svo að þeir stæðu fyrir söfnun til styrktar heyrna­daufum. Annar þeirra þótt­ist tala tákn­mál. Eftir ábend­ingu frá konu sem sá í gegnum svind­lið kom í ljós að menn­irnir væru ekki að safna fyrir nein sam­tök né hefðu nokk­urt leyfi til þess. Lög­reglan segir þá vera í lög­legri dvöl hér á landi og skoðar nú hvort um sé að ræða skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

„Í gær­kvöldi höfðum við afskipti af tveimur karl­mönnum af erlendum upp­runa, sem voru við versl­anir á Akureyri, að betla pen­inga af fólki undir því yfir­skini að þeir væru að safna fé til styrktar heyrn­ar­daufum. Þóttist annar mann­anna tala tákn­mál en kunn­áttu­leysi hans á því sviði var afhjúpað þegar hann vatt sér að konu sem kann tákn­mál. Við nán­ari skoðun á þessum mönnum kom í ljós að þeir voru ekki að safna fé fyrir nein sam­tök og höfðu því vissu­lega engin leyfi til slíks. Þeir voru því að svíkja fé af fólki en virð­ast þó ekki hafa haft mikið upp úr krafs­inu að þessu sinni. Þeir eru í lög­legri dvöl hér á landi en við erum nú að skoða hvort þeir kunni að hafa tengsl við fleiri við sömu iðju og þá hvort þetta er stundað með skipu­lögðum hætti.

Þess vegna viljum við gjarnan fá að vita af því ef þið verðið vör við vafa­samar pen­inga­safn­anir af þessu tagi. Þá er hægt að senda til­kynn­ingu á net­fangið [email protected] og til­greina þar stað og stund, lýs­ingu á aðilum o.s.frv. Ef þið eruð viss um að verið sé að betla fé undir fölsku yfir­skini er hægt að hringja í 112 og óska eftir lög­reglu á stað­inn.

Við skulum samt hafa í huga að félaga­sam­tök geta fengið leyfi til opin­berra safn­ana, sölu á happ­drætt­is­miðum og þess­háttar en eðli­legt er að þeir sem það gera séu merktir félag­inu og geti fram­vísað leyf­is­bréfi fyrir söfn­un­inni.

Takk fyrir og megi dag­ur­inn vera ykkur ljúfur í alla staði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina