Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ríkisstjórnin hafði stór orð um að ráðast í aðgerðir gegn verðbólgu, þar var mikið gert úr engu“

„Ríkisstjórnin hafði stór orð um að ráðast í aðgerðir gegn verðbólgu, þar var mikið gert úr engu“
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði til ívilnun til upp­bygg­ingar á Alþingi í dag — að hús­næð­is­fé­lög án hagn­að­ar­sjón­ar­miða fái 60% nið­ur­fell­ingu á virð­is­auka­skatti af upp­bygg­ingu nýrra íbúða.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra tók vel í hug­mynd Kristrúnar.

Fyr­ir­spurn Kristrúnar og svar Bjarna má lesa hér fyrir neðan:

Fyr­ir­spurn Kristrúnar til fjár­mála­ráð­herra:

Kristrún Frosta­dóttir.

„Virðu­legi for­seti. Þegar rík­is­stjórnin hafði stór orð um það í vetur að nú ætti loks­ins að ráð­ast í aðgerðir gegn verð­bólgu, þá kom á dag­inn að þar var mikið gert úr engu. Aðeins ein aðgerð sem var kynnt átti að taka gildi á þessu ári. Og það var lækkun á end­ur­greiðslum virð­is­auka­skatts vegna fram­kvæmda við íbúð­ar­hús­næði — úr 60% í 35% — sem á að taka gildi núna um mitt ár. Þetta felur í sér ákveðið aðhald á rík­is­fjár­mála­hlið­inni. En hægir um leið á upp­bygg­ingu hús­næðis — og vinnur meðal ann­ars gegn mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar um upp­bygg­ingu á hag­kvæmum íbúðum. Mark­miðum sem eru reyndar víðs fjarri því að nást.

Og nú sjáum við skýr merki um sam­drátt í hús­næð­is­upp­bygg­ingu í nýj­ustu hag­tölum — enda bæt­ist þetta ofan á hækkun vaxta og hækkun á ýmsum kostn­aði. Þannig að — virðu­legi for­seti: Það eina sem rík­is­stjórnin getur náð saman um til að taka á verð­bólg­unni, núna, er að grípa til aðgerða sem draga úr hvata til hús­næð­is­upp­bygg­ingar. Og það bítur auð­vitað í skottið á sér — því að hömlu­leysið á hús­næð­is­mark­aði er bæði rót verð­bólgu í dag og helsta ástæðan fyrir ólgu á vinnu­mark­aði.

Þetta höfum við í Sam­fylk­ing­unni ítrekað bent á og kallað eftir mark­vissum aðgerðum til að taka á verð­bólg­unni og til að verja heim­il­is­bók­haldið. Við höfum biðlað til rík­is­stjórn­ar­innar að beita aðhald­inu þar sem þenslan er í raun og veru og hörfa ekki frá íbúða­upp­bygg­ingu.

Virðu­legi for­seti. Við höldum áfram að leggja til lausnir, og vil ég því kanna hug fjár­mála­ráð­herra til eft­ir­far­andi til­lögu Sam­fylk­ing­ar­innar: Við viljum leggja til ívilnun til upp­bygg­ingar: Að hús­næð­is­fé­lög án hagn­að­ar­sjón­ar­miða, eins og til dæmis Bjarg íbúða­fé­lag og aðrir upp­bygg­ing­ar­að­ilar í almenna íbúða­kerf­inu, fái áfram ívilnun með 60% end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti. Svo hús­næð­is­mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar fær­ist ekki enn fjær. Þetta er hug­mynd sem stjórn­ar­þing­menn hafa skrifað um í greinum. Gætum við mögu­lega náð saman um þetta, ívilnun til upp­bygg­ingar á almennum íbúðum?“

Svar Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kristrúnar:

Bjarni Bene­dikts­son.

„Virðu­legi for­seti, ég verð nú fyrst að bregð­ast við þessum stóru orðum um að rík­is­stjórnin hafi skilað í raun og veru bara auðu í þeim aðstæðum sem eru uppi og rifja það upp að núna um ára­mótin þá hækk­uðum við bætur almanna­trygg­inga um 9% ofan á 7,4% hækkun í fyrra; að við hækk­uðum frí­tekju­mark atvinnu­tekna örorku­líf­eyr­is­þega um ára­mótin um helm­ing upp í 200.000 krónur; að húsa­leigu­bætur voru hækk­aðir um fjórð­ung frá miðju síð­asta ári og tekju­mörkin hækkuð; að eigna­mörk voru hækkuð í vaxta­bóta­kerf­inu um 50%; að barna­bóta­kerf­inu var breytt — það var fært yfir í sam­tíma­greiðslur og greiðslur hækk­aðar; fleiri njóta bóta; per­sónu­af­sláttur hækk­aður um 10,7% um ára­mótin.

Þetta var að ger­ast núna í jan­úar á þessu ári. Og þar fyrir utan þá já, lögðum við fram fjár­mála­á­ætlun þar sem við aukum aðhaldið og bætum afkom­una. Við boðum frek­ari aðhalds­að­gerðir í opin­bera rekstr­inum, setjum aukið aðhald á Stjórn­ar­ráðið og ætlum áfram að vinna að bata í rík­is­fjár­mál­unum þannig að rík­is­fjár­málin haldi áfram að styðja við mark­mið um lækk­andi verð­bólgu.

Þannig að það er alrangt þegar sagt er að það sé ekki neitt í gangi. Ein aðgerðin sem við höfum lagt til við þingið er að draga úr end­ur­greiðslum vegna nýbygg­inga og við­halds á íbúð­ar­hús­næði og það er aðgerð sem m.a. teng­ist því að eins og hlut­irnir stóðu núna á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs þá var mjög mik­ill kraftur í upp­bygg­ingu nýrra íbúða og fram­legðin af bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis hefur verið mjög há.

Hvort það kemur til greina að und­an­skilja þennan hluta íbúða­mark­að­ar­ins? Ég er alveg til í að hugsa það og það getur vel verið að það geti gagn­ast fyrir þennan hluta. En það er fleira sem mundi gagn­ast fyrir þennan hluta. Það væri t.d. það ef Reykja­vík­ur­borg mundi skila lóðum til að það væri hægt að byggja slíkar íbúðir. Og síð­ast í dag þá sjáum við fréttir af því að Reykja­vík­ur­borg er ekki að greiða fyrir hug­myndum um að stór­auka fram­boðið af ódýru hús­næði í borg­inni, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þvert á móti hefur Sam­fylk­ingin í Reykja­vík fyrst og fremst verið að beita sér fyrir þétt­ing­ar­stefna sem er allt annað heldur en að tryggja mikið fram­boð á ódýru hús­næði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina