Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fulltrúi sýslumanns varð fyrir lífshættulegri árás á heimili sínu: „Hann kallaði okkur dópista“

Júlíus Magn­ús­son, þáver­andi full­trúi sýslu­manns á Eski­firði, varð fyrir hrotta­legri lík­ams­árás á heim­ili sínu í jan­úar árið 1994. Árás­armað­ur­inn tók síma Júlíusar úr sam­bandi og missti hann með­vit­und í til­raun sinni til þess að kalla á hjálp. Honum var naum­lega bjargað og þurfti tveggja klukku­tíma aðgerð á Borg­ar­spít­ala.

„Eftir að árásin á Júlíus Magnússon, full­trúa sýslu­manns á Eski­firði, var yfir­staðin á heim­ili hans snemma að morgni 8. janúar var búið að gera símtæki hans óvirkt og hann svo máttfar­inn eftir bar-smíðar og spörk að hann missti a.m.k. einu sinni með­vit­und þegar hann reyndi að ganga og skríða um íbúðina til að freista þess að tengja annað símtæki til að kalla eftir hjálp. Hann sagð­ist hafa fengið 3-5 hnefahögg í bringspalimar og nokkur fóst spörk í kvið­ar­holið eftir að árásarmað­ur­inn kýldi hann í gólfið,“ segir í frétt DV.

Sak­born­ing­ur­inn var hinn tví­tugi Jón Ingvi Hilm­ars­son.

Fyrir dómi við­ur­kenndi hann að hafa tekið um axlir fórna­lambs­ins og veitt því hnefa­högg. Jón og vinir hans sögðu frá því að fyrr um kvöldið hafi Júlíus kallað þá dópista og sagt Jóni að hann væri á leið í fang­elsi.

„Ég fór á hótelið á fóstu­dagskvöldinu á milli klukkan tíu og ell­efu og sett­ist þar við borð. Ég ræddi viö hótel­stjórann og starfs­stúlku þar og pant­aði mér veit­ingar. Ég veitti því athygli að í innri sal sátu menn. Nokkru síðar átti Jón Ingvi leið fram hjá mér og segir: „ég þekki þig“,  sagði Júlíus við dóms­yf­ir­heyrslu. Hann sagð­ist jafn­framt kann­ast við Jón sem átti nokkurn brota­feril að baki. „Ég sagði honum þá að ef hann hætti ekki afbrotum myndu mál hans ekki verða afgreidd með sekt. Ég sagði honum að það væri hugs­an­legt að hann fengi óskilorðs­bund­inn dóm.“

Júlíus segir sam­tal þeirra hafa verið stutt og Jón síðan gengið í burtu.

„Júlíus sagði að hann hefði haldið heim til sín um klukkan eitt til tvö um nóttina og lagst til svefns en klukkan hálfsex um morg­un­inn hefði síminn hringt. „Ég heyri rödd sem mér heyr­ist vera rödd ákærða. Ég sagði halló en röddin hinum megin sagði að ég skyldi hætta að skipta mér af málum á Eski­firði og ég skyldi koma mér í burtu úr bænum.“

Júlíus kvaðst hafa lagt tólið á en síminn hefði hringt aftur og sama rödd sagt það sama og áður. „Ég fór að sofa en dyra­bjallan hringdi um hálftíma síðar.“ Júlíus sagð­ist hafa farið til dyra og opnað og þá séð Jón Ingva og tvo félaga hans sem voru með honum á hótel­inu. „Þeir töluðu hver ofan í annan og sögðust óhressir með mitt starf.“ Júlíus sagði ungu menn­ina hafa verið ósátta við tal hans um fíkni­efni og fang­elsi.“ (DV, mars 1994)

Júlíus seg­ist hafa beðið menn­ina afsök­unar fyrir það að hafa sagt eitt­hvað sem þeim mis­lík­aði en að allir þyrftu að vinna sín störf. „Ég fæ 3-4 snögg og föst hnefahögg í bringspalimar. Þetta kom alveg flatt upp á mig. Ég hrökk frá, hras­aði og datt. Þegar ég féll sparkar ákærði nokkur spörk í mig.“

Júlíus reyndi að standa á fætur en Jón lét höggin áfram dynja. Júlíus reyndi þá að tala menn­ina til og freist­aði þeirra með vonum um að sleppa við frek­ari atlögur.

„„Komið þið inn og við skulum tala saman,“ sagði Júlíus. Hann sagð­ist hafa fundið fyrir sársauka í kvið­ar­holi en fljótlega dofnað. Þegar inn í eldhús var komið bauð JúUus mönnunum upp á kók og sígar­ettur og hann ræddi við mann­inn sem skömmu áður gekkst undir dómsátt vegna fíkni­efnabrots – hann hefði sagt honum að ef hann væri óhress með sekt­ar­fjárhæð­ina og greiðslu­skilmála skyldi hann bara koma og ganga frá málinu eins og honum hent­aði. „Þeir voru kurt­eisir en Jón Ingvi hótaði: „Ég ætla aö lemja þig meira“,“ sagði Júlús. Þegar mennirnir fóru út sýndi einn þeirra Júlíusi hvemig hann hafði slitið snúru á símtæki í sundur og sagt: „Ég ætla að sýna þér að þú getur ekki hringt á lögregl­una.“ (DV, mars 1994)

Eftir árás­ina sagð­ist Júlíus vera das­aður og ákvað að leggja sig. Hann vakn­aði tveimur tímum síðar með mikla verki í kvið­ar­holi, rif­beinum og brjóst­kassa. Hann mundi eftir öðru sím­tæki inni í skáp en þegar hann reyndi að ná í það þá missti hann með­vit­und. „Ég stóð upp og féll og gerði mér grein fyrir að ég var í lífshættu. Ég var svo máttfar­inn að ég gat ekki hreyft mig nema mjaka mér eftir gólfinu.“

Sak­born­ingur og lög­maður hans.

Júlíusi tókst loks að tengja sím­ann og kall­aði eftir lög­reglu­bíl. Hann var síðan skoð­aður af lækni sem ákvað að senda hann suður á Borg­ar­spít­al­ann. „Þegar þangað kom síðar um dag­inn hafði blætt inn í kvið­ar­hol hans þar sem stór æð hafði sprungið. Um tveir lítrar af blóði voru í kvið­ar­hol­inu. Líf hans hékk á bláþræði áður en hann gekkst undir 2-3 klukku­stundar langa aðgerð. Hann lá á sjúkrahúsinu í eina viku en þurfti síðan að leggj­ast aftur inn. Hann var um fimm vikur frá vinnu. Aðspurður um líðan í dag sagði Júlíus að hann hefði það ágætt en hann fyndi þó til þegar hann reyndi mikið á sig.“

Jón Ingvi var einn ákærður fyrir stór­fellda lík­ams­árás, húr­brot og árás á opin­beran starfs­mann. Þeir voru þó þrír félag­arnir saman sem réð­ust inn á heim­ili Júlíusar. Ekki var talin ástæða til þess að kæra hina menn­ina.

„
Jón Ingvi og félagar hans greindu frá því að þeir hefðu verið á Hótel Öskju, hitt þar Júlíus og verið ósáttir við það sem hann hafði við þá að segja um afbrotamál ákærða. Einn þeirra sagði m.a. að Júlíus hefði kallað þá dópista þegar þeir voru á Hótel Öskju. Þre­menn­ingarnir fóru í gleðskap í tveimur húsum á Eski­firði um nóttina en síðan sögðust þeir hafa haldið að heimili Júlíusar að Lamb­eyr­ar­braut 4. Júlíus sagöi að félagar Jóns Ingva hefðu báðir horft á árásina á sig en þeir báru hins vegar fyrir dóminum að þeir hefðu ekki séð þegar félagi þeirra gekk í skrokk á Júlíusi – þeir hefðu verið uppi á stigapallinum fyrir framan útidymar. Fram kom að þre­menn­ingarnir hugð­ust kæra Júlus fyrir ummæli hans fyrr um kvöldið við þá og Jón Ingvi bar að þegar þre­menn­inga­mir komu að heim­ili Júlíusar hefði hann sagt við sig: „Við sjáumst á Litla-Hrauni.““ (DV, mars 1994)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við