Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Malagafanginn – Þegar íslenska þjóðin safnaði pening fyrir góðkunningja lögreglunnar

Malagafanginn – Þegar íslenska þjóðin safnaði pening fyrir góðkunningja lögreglunnar

Íslend­ingar hafa lengi verið þekktir fyrir mis­kunn­semi og gott hjarta­lag þegar kemur að lít­il­magn­anum. Þetta sést best þegar safna þarf fyrir ein­hverju mis­þörfu, til dæmis þegar safna þarf fyrir svelt­andi börn úti í heimi eða þegar hljóð­færa­leik­arar vilja bestu mögu­legu hljóð­færin, svo eitt­hvað sé nefnt. Árið 1985 söfn­uðu Íslend­ingar pen­ing fyrir Sigurð Stefán Almars­son, með hjálp DV, en hann hafði orðið fyrir því óláni að vera hand­tek­inn á Spáni vegna gruns um að hann hefði brot­ist inn í íbúðir Íslend­inga þar í landi. Var hann í fjöl­miðlum kall­aður Malaga­fang­inn og má segja að hann hafi verið smá­stirni um hríð.

DV hóf umfjöllun um Malaga­fang­ann þar sem hann lýsti slæmum aðbún­aði í fang­els­inu en hann kvaðst alsak­laus af glæpnum sem hann var sak­aður um. Vöktu frétt­irnar svo mikla athygli að fólk vildi endi­lega fá að senda honum pen­ing og hafði DV milli­göngu um þær send­ingar. Þannig skrif­aði einn les­andi Dagblaðs Vísis á sínum tíma:

3337-6995 hringdi: Mér finnst ábyrgð­ar­laust af íslenskum stjórn­völdum að frelsa ekki mann­inn sem er í haldi í Malaga. Hann er að nið­ur­lotum kom­inn, tauga­kerfi hans er í rústum. Hér er um mann­rétt­inda­mál að ræða. Maðurinn er íslenskur þegn og það þarf að koma honum út úr þessum vand­ræðum hið bráð­asta. Ég hvet fólk til að láta heyra í sér vegna þessa máls.

Og svo virð­ist sem íslensk stjórn­völd hafi tekið þetta til sín, því DV sagði síðar frá heim­sókn starfs­manns utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í fang­elsið á Malaga:

Utan­rík­is­ráðu­neytið: „Ekki væsir um Malaga­fang­ann“

„Þótt dreng­ur­inn sé grun­aður um inn­brot og þjófnað er að sjálf­sögðu óvið­un­andi að ekki sé búið að rétta í mál­inu eftir heila 8 mán­uði. Það brýtur meira að segja í bága við spænsk lög,“ sagði emb­ætt­is­maður í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um mál­efni Malaga­fang­ans. „En það á ekki að væsa um hann í fang­els­inu. Við höfum haft milli­göngu um pen­inga­send­ingar til hans, bæði frá aðstand­endum og óskyldum. Þetta er maður sem á eftir óupp­gerðar sakir hér á landi. Ég held að hann sé að bera saman aðstæður á Litla-Hrauni og þessu spænska fang­elsi og honum líkar ber­sýni­lega ekki sá sam­an­burður,“ sagði emb­ætt­is­mað­ur­inn. Í kjöl­far skrifa DV um ömur­lega aðstöðu þessa íslenska fanga á Malaga hafa fjöl­margir ein­stak­lingar tjáð sig reiðu­búna til að láta fé af hendi rakna svo hægt sé að kaupa fang­ann út. Sjálfur segir Malaga­fang­inn í bréfum, er borist hafa til DV, að verðið sé 100 þús­und krónur. Síðast þegar frétt­ist hafði íslenska söfn­un­ar­fólk­inu tek­ist að öngla saman 60 þús­und krónum. -EIR.

En Malaga­fang­inn var ekki allur þar sem hann var séður því upp kom grunur um að hann væri að stunda ávís­anafals innan rimla fang­els­is­ins:

Malaga­fang­inn ekki af baki dott­inn:

Læðir ávís­unum út á milli riml­anna

Allar líkur benda til þess að Malaga­fang­inn stundi ávís­anafals í klefa sínum í spænska fang­els­inu í Malaga. Þar hefur hann sem kunn­ugt er setið á tíunda mánuð án þess að koma fyrir dóm­ara. „Ég keypti ávísun að upp­hæð 5.000 krónur í jan­úar síð­ast­liðnum en fékk hana í haus­inn frá bank­anum nokkrum dögum síðar,“ sagði kaup­maður í Mos­fells­sveit í sam­tali við DV. „Við nán­ari eft­ir­grennslan kom í ljós að ávís­unin var und­ir­rituð af Malaga­fang­anum í bak og fyrir og dag­sett 30.12.’84.“ Ávísun þessi er nú í vörslu Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins auk ann­arra er Malaga­fang­inn gaf út án þess að inni­stæða væri fyrir hendi. Alls eru þær 8 tals­ins að upp­hæð 95.000 krónur, skrif­aðar á Spáni en aðeins ein eftir að pilt­ur­inn var settur á bak við lás og slá. „Megnið af ávís­un­unum lenti i höndum okkar fyrir hreina til­viljun. Við vorum að gera fíkni­efna­leit á pilti er var að koma frá Spáni og fundum þá í fórum hans fjölda ávís­ana und­ir­rit­aðar af Malaga­fang­anum,“ sagði rann­sókn­ar­lög­reglu­maður aðspurður. „Það átti að koma þessu í pen­ing hér­lendis, alls 80.000 krónur.“

Að lokum kom óska­barn þjóð­ar­innar, Malaga­fang­inn, heim á íslenska grund. Og það leið ekki langur tími þar til hann tók að brjóta af sér hér á landi. Dagfari skrif­aði pistil um málið sem var mar­ínerað í kald­hæðni og húmor:

Malaga­fang­inn á heima­velli

Í fyrra­vetur bár­ust þær fréttir hingað til lands að ungur Íslend­ingur hefði verið hand­tek­inn suður á Spáni, nánar til­tekið á Malaga, og þar hefði hann mátt dúsa í fang­elsi mán­uðum saman upp á vatn og brauð. Þessar fréttir fengu mjög á land­ann sem er góð­hjart­aður og mis­kunn­samur og má ekki aumur sjá á nokkrum manni. Áður en varði var haf­ist handa um almenna fjár­söfnun fyrir Malaga­fang­ann og gekk maður undir manns hönd að leysa hann úr haldi.
Ekki dró það úr vor­kunn­semi Íslend­inga að við og við bár­ust bréf frá fang­anum í prís­und­inni, þar sem hann lýsti á dramat­ískan hátt hörm­ungum sínum og aumk­un­ar­verðri vist­inni innan fang­els­is­múr­anna, og bjugg­ust menn við því á hverri stundu að til­kynn­ing bær­ist um dauða fang­ans vegna vos­búðar og pynd­inga spánskra fang­els­is­yf­ir­valda.
Eftir margra mán­aða harð­ræði og ein­angrun barst sú gleði­fregn til Íslands að fang­inn væri loks laus og var honum jafn­skjótt sendur far­miði þar sem fang­inn var boð­inn vel­kom­inn heim.
Í öllu því íra­fári, sem yfir gekk til að forða þessum vesl­ings ein­stæð­ingi og sak­lausa fórn­ar­lambi úr höndum spánskra ill­menna, láð­ist alveg að geta þess hvers vegna mann­inum hafði verið stungið inn. Helst var þó að skilja að meintur glæpur hans hefði verið sá, að hafa verið grip­inn í mis­gán­ingi fyrir refsi­brot, sem ein­hver annar hefði framið.
Aldrei hefur almenni­lega verið upp­lýst hvað end­an­lega olli þvi að fang­inn slapp úr prís­und­inni. Í Helg­ar­póst­inum í síð­ustu viku er hins vegar haft við þennan fanga við­hafn­ar­við­tal, opin­skátt og hrein­skilið, eins og nú tíðkast, og þar kemur fram að það var eng­inn annar en sjálfur utan­rík­is­ráð­herra sem gekk í málið í til­efni af heim­sókn for­seta Íslands til Spánar. Má af þessu sjá að Malaga­fang­inn hefur verið lát­inn laus í skiptum fyrir for­set­ann og diplomat­ískan frið milli Spánar og Íslands. Af þessu er ljóst að Malaga­fang­inn er og hefur verið þunga­vigt­ar­maður í póli­tík­inni og ekki nema von að við hann séu birt við­hafn­ar­við­töl eftir heim­kom­una.
Það láð­ist aftur á móti að taka það fram í þessu sama við­tali að Malaga­fang­inn hefur gert það gott eftir að hann kom heim. Munu fáir menn hér á landi hafa getið sér jafn­gott orð hjá lög­regl­unni í Reykja­vík sem þessi víð­frægi og stórpóli­tíski Malaga­fangi því varla hefur það inn­brot verið framið hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að slóð­ina mætti ekki rekja til þessa sama manns. Um það leyti, sem við­talið er tekið, mun kapp­inn hafa setið í Síðu­múl­anum fyrir marg­föld inn­brot og aðra smá­glæpi sem hann telur óþarfa að rekja í við­tölum við í fjöl­miðla.
Sýnir það vel mun­inn á spönskum fang­elsum og íslenskum að meðan hann þarf að smygla út bréfum úr prís­und sinni á Spáni býður hann blaða­mönnum til við­tala hér í Síðu­múl­anum. Í við­tal­inu kemur fram að fang­els­is­vistin hafi ekki verið jafnslæm á Spáni eins og af er látið því yfir fang­els­is­múr­ana rigndi yfir hann og sam­fang­ana marg­földum skömmtum af hvers kyns fíkni­efnum sem héldu bæði honum og öðrum fang­els­islimum við efnið. Er helst að skilja að það hafi verið óþarfa afskipta­semi hjá íslenska utan­rík­is­ráð­herr­anum að skipta á sér og for­set­anum og hrekja sig úr þessu ókeypis gósen­landi fíkni­efn­anna.
Malaga­fang­inn heldur því statt og stöðugt fram að hann sé sak­laus af ákærum á hendur sér fyrir þjófnað á Spáni. Sú afneitun er afar trú­verðug enda varla við því að búast að maður, sem lætur greipar sópa um íslensk heim­ili, nenni að vera að stela ein­hverju smá­ræði af blá­fá­tækum Spán­verjum. Sann­leik­ur­inn er líka sá að menn fá ekki blaða­við­töl við sig á for­síðum nema þeir steli af Íslend­ingum á heima­velli.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður 2. sept­em­ber 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina