Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fjarðabyggð svarar ekki spurningum Mannlífs: Aðstoðarslökkviliðsstjórinn bar saman limi starfsmanna

Fjarðabyggð svarar ekki spurningum Mannlífs: Aðstoðarslökkviliðsstjórinn bar saman limi starfsmanna
Slökkvi­lið Fjarða­byggðar. Mynd: Facebook

Enn ber­ast engin svör frá sveit­ar­stjórn Fjarða­byggðar varð­andi upp­sagnir yfir­manna slökkvi­liðs sveit­ar­fé­lags­ins, þrátt fyrir ítrekun Mannlífs.

Mannlíf sagði frá því nýverið að slökkvi­liðs­stjóri og aðstoð­ar­slökkvi­liðs­stjóri Fjarða­byggðar hafi stigið til hliðar eftir að svört skýrsla Attentus ehf. stað­festi að sumar kvart­anir starfs­manna vegna ein­eltis og kyn­ferð­is­legrar áreitni, gætu fallið undir skil­grein­ingar um slíkt.

Bar saman getnaðarlimi starfsmanna

Fjöldi starfs­manna slökkvi­liðs Fjarða­byggðar, bæði fast­ráðnir og hluta­starfs­menn, kvört­uðu undan ein­elti og lélegri stjórnun yfir­mann­anna og tveir karl­kyns starfs­menn kvört­uðu undan kyn­ferð­is­legri áreitni aðstoð­ar­slökkvi­liðs­stjór­ans en annar þeirra er kvart­aði hefur verið í veik­inda­leyfi í rúmt ár. Aðstoð­ar­slökkvi­liðs­stjóra er meðal ann­ars gert að sök að hafa elt starfs­menn inn í sturtu slökkvi­liðs­stöðvar og borið saman getn­að­ar­limi þeirra. Þá er hann einnig sagður hafa sagt oft við ákveðna und­ir­menn: „Má ég ekki bara borga þér í blíðu“ sem og spurt einn þeirra hvort hann mætti gefa honum munn­mök bak­við íþrótta­hús þar sem haldið var ball. Dæmin eru fleiri sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs er hegðun manns­ins á allra vörum í sveit­ar­fé­lag­inu.

Slökkvi­liðs­stjór­inn var sak­aður um ein­elti gagn­vart þó nokkrum und­ir­manna sinna og fyrir lélega stjórnun sem lýsir sér meðal ann­ars í því að hann hafi þótt utan við sig og „skort yfir­sýn eða ramma utan um starf­sem­ina“. Meðal ann­ars kom fram í kvört­unum gagn­vart honum, sem Mannlíf hefur undir höndum, að dæmi sé um að sjúkra­bíll­inn í Nes­kaups­stað hafi verið illa eða jafn­vel ekki mann­aður í heilt sumar vegna mann­eklu og „skipu­lags­leysis á vöktum og við útköll, sem og vegna lang­tíma­veik­inda starfs­fólks,“ eins og það er orðað í kvört­un­ar­skýrsl­unni. Þá var einnig nefnt í kvört­unum starfs­manna að slökkvi­liðs­stjór­inn hafi sýnt mikla van­hæfni í stjórnun og reynt að forð­ast að stjórna und­ir­mönnum sínum í stór­brun­anum á Egils­stöðum er Vaskur brann í fyrra. Yfir­menn­irnir eru einnig sagðir hafa skellt sér í Vök Baths við Fellabæ á meðan þeir voru á bak­vakt, sem sé of langt frá starfs­svæði þeirra.

Þá hót­uðu fjöldi starfs­manna að segja upp störfum vegna yfir­mann­anna tveggja og þó nokkrir létu verða af því að hætta.

Svört skýrsla Attentus

Kvart­anir starfs­mann­anna sem sendar voru á sveit­ar­stjórn­ina fylltu fjöldi blað­síða en nú hefur ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Attentus ehf sem sagt farið yfir kvart­an­irnar og skilað frá sér ítar­legri skýrslu um málið eftir að hafa tekið fjöldi við­tala og rann­sakað ásak­an­irnar vel. Stað­festi Attentus að sumar kvart­anir starfs­manna vegna ein­eltis og kyn­ferð­is­legrar áreitni, gætu fallið undir skil­grein­ingar um slíkt. Hefur skýrsl­unni verið lýst sem „svartri“ af einum af við­mæl­endum Mannlífs. Í kjöl­far skýrsl­unnar stigu yfir­menn slökkvi­liðs­ins til hliðar. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru íbúar Fjarða­byggðar ugg­andi yfir mála­lykt­unum en grunar mörgum að slökkvi­liðs­stjór­arnir hafi fengið starfs­loka­samn­ing. „Og ef það reyn­ist rétt er það Fjarða­byggð algjör­lega til skammar að leyfa ger­endum að fá að segja upp og fá starfs­loka­samn­ing vegna alvar­legra kvart­ana á hendur þeim,“ sagði einn við­mæl­andi Mannlífs. Heim­ildir Mannlífs herma að eng­inn þeirra starfs­manna sem setið hafa undir ein­elti og áreitni yfir­manna sinna, hafi fengið afsök­un­ar­beiðni, hvorki frá yfir­mönn­unum sjálfum, né sveit­ar­stjórn­inni, sem mörgum þótti hafa verið lengi að taka á mál­unum en meira en ár leið frá því að fyrstu kvart­an­irnar bár­ust, þar til Attentus var ráðið til að rann­saka málið.

Ekki hefur Mannlíf getað fengið það stað­fest hvort yfir­menn­irnir hefðu fengið starfs­loka­samn­ing vegna þess að svar hefur ekki borist frá Haraldi L. Har­alds­syni upp­lýs­inga­full­trúa sveit­ar­fé­lags­ins, þrátt fyrir ítrekun.

Þetta eru spurn­ing­arnar sem Fjarða­byggð vill ekki svara:

1. Hvenær má eiga von á yfir­lýs­ingu frá Fjarða­byggð varð­andi svarta skýrslu Attentus ehf. um slökkvi­liðið í Fjarða­byggð, sem mér var sagt að myndi birt­ast fljót­lega (í apríl)?
2. Fengu yfir­menn slökkvi­liðs­ins sem nú voru að stíga til hliðar, starfs­loka­samn­ing? Ef svo er, hversu langan?
3. Er satt að halda eigi sátt­ar­fund hjá sveit­ar­fé­lag­inu vegna óánægju inn­an­borðs?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina