Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kristín lagði spurningu fyrir öryrkja og fékk svör: „Eins gott að maðurinn minn fari ekki frá mér“

Kristín lagði spurningu fyrir öryrkja og fékk svör: „Eins gott að maðurinn minn fari ekki frá mér“
Kristín Auð­björns­dóttir.

Kristín Auð­björns­dóttir skrifar grein er ber yfir­skrift­ina: Staða örykja: „Er í mínus en fæ stuðn­ing frá börn­unum mínum“

„Ég heiti Kristín og er stofn­andi Instagram síð­unnar Lífið og líðan. Á síð­unni höfum við verið með vakn­ingu um alls­konar, þá sér­stak­lega tengt and­legri og lík­am­legri líðan – frá ýmsum sjón­ar­hornum. Annars bara lífið almennt, án glans­myndar. Sjálf er ég í end­ur­hæf­ingu, aðeins 35 ára gömul og það er stór biti að kyngja.“

Bætir við:

„Upp á síðkastið hafa verið að koma inn hinar ótrú­leg­ustu umræður innan öryrkja sam­fé­lags­ins og langar mig að fjalla um það stutt­lega hér, ásamt því að deila nokkrum svörum öryrkja um það hver fjár­hags­leg staða þeirra er á örorku­bótum frá mán­uði til mán­aðar.

Ein umræðan snéri að því að eldri maður væri að safna fyrir við­haldi á hús­inu sínu. Upphæðin væri sam­tals í kringum 2,5 millj­ónir og því ekki hægt fyrir hann að fjár­magna slíka upp­hæð á örorku­bótum á skömmum tíma. Það er ekki í frá­sögu fær­andi nema fyrir það að vegna þess að hann á auka pen­ing, fær hann á móti lægri bætur. Svona mætti lengi telja.

Eins mega fjár­magnstekjur ein­stak­linga á örorku ekki vera meiri en 100.000 á ári, þar með talið leigu­tekjur, nema bætur skerð­ist. Það er því ekki hægt að segja að almennt sé mik­ill hvati fyrir öryrkja til þess að legga inn á sparn­að­ar­reik­inga né afla sér fjár. Nú þegar verð­lagið í sam­fé­lag­inu fer hækk­andi og póstum á facebook fjölgar, þar sem verið er að biðja um fjár­hags­að­stoð – þá spyr maður sig að því hvernig staða örykja sé. Ekki má heldur gleyma lág­launa fólki, ein­stæðum for­eldrum og þeim sem ein­hverra hluta vegna rétt ná upp í lág­marks­laun. Spurn­ingin til öryrkja var þessi:

Hvað eigi þið eftir af örorku­bót­unum ykkar út mán­uð­inn þegar búið er að borga alla reikn­inga?

Hér má sjá hluta af svör­unum:

Ég átti ekk­ert eftir núna en oft á ég kannski um 100.000 tops ef ég er heppin. Ekkert. Minna en 50 þús­und. Undir 80.000. Hjá mér er álagn­ingin og end­ur­greiðsla til TR næstu mán­uði.. Sumum okkar tekst að nurla saman á mörgum mán­uðum smá­ræðis upp­hæðum, t.d. með því að neita sér um allt nema það lífs­nauð­syn­leg­asta.

Ég legg til hliðar í hverjum mán­uði ef ég mögu­lega get, helst ekki minna en 10 þús­und. Mér finnst ég rík ef ég enda með 50-60 þús í plús og ég er ein í heim­ili. Allt yfir það eru bara nán­ast auð­ævi.“

Heldur áfram:

„Er í sam­búð með 2 lítil börn og ég á kannski um 50 þús eftir ef ég er heppin. Eitthvað svipað sem mað­ur­inn minn á eftir en hann er á vinnu­mark­aði. Búin að vera í mínus í allan vetur, en kannski sér­stakar aðstæður núna. Ekkert. Sirka 60 þús en ég er líka að borga reikn­inga til Síminn Pay og Aur því ann­ars ætti ég ekki neitt inni í íbúð­inni minni. Ég bý samt ekki einn svo matur og leiga er 50/50. Þarna á ég líka eftir að borga í mat svo pen­ing­ur­inn sem ég hef til að eyða í lyf eða annað er þá kannski um 20 þús. 40.000 eftir hús­næði og reikn­inga ef ég væri ein í heim­ili. Eins gott að mað­ur­inn minn fari ekki frá mér. Ekkert! Sirka 50 þús. Mínus 30.000 þús­und. Er í mínus en fæ stuðn­ing frá börn­unum mínum. Þegar ég er búinn borga alla mína reikn­inga, þá á ég sirka 5-10.000kr eftir af tekjum frá TR og líf­eyr­is­sjóð sam­an­lagt. 80.000. 54.000 þennan mán­uð­inn fyrst að það þurfti að borga skatt­inum. 70.000 eftir en er með ógreidda reikn­inga upp á 29.000 ennþá.“

Enn eitt svar:

„Ég er 1,6 milljón í mínus. Velti og velti til að kaupa mat og borga reikn­inga (ekk­ert áfengi eða tóbak hér). Er ein með 4 börn.“

Enn annað:

„Er sem betur fer gift manni sem þénar nóg til að við getum fram­fleytt fjöl­skyld­unni og leyft okkur smá auka. Ég gæti ekki lifað á bótum ef ég væri ein­stæð. Þið sem þurfið þess fáið alla mína samúð!“

Segur að end­ingu: „Já, það má segja að þetta sé erfitt ástand. Eitthvað þarf að gera.“

Höfundur er móðir, háskóla­nemi og stofn­andi Instagram­síð­unnar Lífið og líðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina