Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Mótorhjólamenn með hrein sakavottorð koma til bjargar börnum: „Við fylgjum barninu út á leikvöll“

Mótorhjólamenn með hrein sakavottorð koma til bjargar börnum: „Við fylgjum barninu út á leikvöll“
Hópur frá B.A.C.A. Iceland Mynd / aðsend

„Við lið­sinnum börn sem orðið hafa fyrir ofbeldi og eru orðin skelkuð og særð. Við veitum þeim inn­göngu að sam­tök­unum og reynum að efla þau til að vera ekki hrædd í þeim heimi sem þau lifa í,“ segir Ash for­seti B.A.C.A. á Íslandi, í sam­tali við Mannlíf.

Meg­in­mark­mið sam­tak­anna felst í að hjálpa börnum að yfir­stíga ótt­ann sinn á eigin verð­leikum. Ash útskýrir að á meðan fá þau skjald­borg sam­tak­anna til að upp­lifa sig örygg, og þegar öryggið sé komið þá ótt­inn öllu jafna fljótur að fara.

Samtökin B.A.C.A. Bikers Against Child Abuse voru stofnuð 1995 í Banda­ríkj­unum og eru starf­rækt í þeim til­gangi að vernda og búa til örugg­ara umhverfi fyrir mis­notuð börn. 

Hjörtu þeirra Adda og Bangsa dró þá til að stofna B.A.C.A. Iceland árið 2016. Vert er að nefna að með­limir sam­tak­anna njóta nafn­verndar og starfa því undir gælu­nöfnum. 

Samtökin

B.A.C.A. eru skráð góð­gerðarð­ar­sam­tök á Íslandi og því er talað um kafl­ann en ekki klúbb eða mót­or­hjóla­klúbb (enska heiti: MC/Motorcycle club)

Samtökin eru til staðar fyrir öll börn sem lifa við ótta og er reiðu­búið að vinna með þeim aðilum og úrræðum sem eru til staðar er fyrir börnin. Þá hafa sam­tökin lið­sinnt skjól­stæð­ingum sem leitað hafa til Kvenna­at­hvarfs­ins síðan árið 2017. 

Aðspurður hversu margir með­limir séu í sam­tök­unum svarar Ash að það sé eitt af því sem aldrei sé gefið upp en tekur fram að það séu nógu margir í augna­blik­inu til að sinna verk­efn­unum. 

„Við getum lengi á okkur blómum bætt en við erum nógu mörg til að sinna þeim verk­efnum sem eru fyr­ir­liggj­andi og að taka að okkur fleiri verk­efni,“ segir Ash og hvetur áhuga­sama að kynna sér starfið og ævin­lega sé þörf á fleiri með­limum.

Leðurklæddir mótorhjólatöffarar á róló

Ímynd mót­or­hjóla­kappans er hávær og oft á tíðum ógn­vekj­andi, en á bak við þá staðalí­mynd getur barnið sótt í öryggi og fundið fyrir merkj­an­legum vin­skap. Þar liggur styrkur B.A.C.A. 

Í erf­ið­ustu til­vik­unum dvelja börnin á athvarfi og sökum utan­að­kom­andi ógnar hafa börnin ekki haft kost á að fara út að leika sér. Ash lýsir að undir þeim kring­um­stæðum mætir hrúga af leð­ur­klæddum mót­or­hjóla­töff­ur­unum: „Við fylgjum barn­inu og fjöl­skyldu þess út á leik­völl. Og börnin fá að brosa aðeins framan í sól­ina og róla sér“. 

Ash lýsir því hvernig barnið er vart um sig á leið­inni út á róló en í næstu heim­sókn eða jafn­vel á ferð­inni aftur af leik­vell­inum þá beri ekki vott af hræðslu. „Þarna er í raun­inni bara verið að hleypa börn­unum aftur út í lífið.“ 

Í einni af fyrstu fylgd með­lima B.A.C.A. á leik­völl­inn í hverf­inu voru komin ansi mörg and­lit út í glugga. Ekki leið á löngu þar til lög­reglan var mætt á svæðið. Ash segir að gott sam­starf vera á milli sam­tak­anna og lög­regl­unar, og henni er ávallt gert við­vart þegar slík fylgd á sér stað: „Því við vitum að fólk hringir.“

Það kitlar í Ash þegar hann rifjar upp þegar lög­reglan útskýrði að þeir hafi verið nauð­beygðir þurft að mæta þar sem til­kynn­ing­arnar voru orðnar svo margar. Í kjöl­farið var gengið í hús með bæk­ling sam­tak­anna.

Ferlið – Börnin eru meðlimir

Við inn­töku barns í sam­tökin er því gefið vesti og bak­merki. Barnið fær tvo tengiliði á vegum sam­tak­anna sem þau geta hringt í allan sól­ar­hring­inn og ef þörf þykir mæta aðilar á stað­inn. „Ef ástandið á barn­inu er þannig að því líður illa sökum ótta,“ bætir Ash við.

Í byrjun hefur for­ráða­maður barns­ins sam­band við sam­tökin og óskar eftir aðstoð. Barna­tengiliður sam­tak­anna, Dr. Granny, ann­ast öll sam­skipti við for­ráða­mann barns­ins og þar næst hefst „ini­tial contact“ eða fyrstu kynni við skjól­stæð­ing­inn/barnið: 

„Barna­tengilið­ur­inn á okkar vegum fer með nokkrum öðrum með­limum í heim­sókn,“ segir Ash og útskýrir að barna­tengilið­ur­inn sé eini aðili sam­tak­anna sem hefur ítar­legar upp­lýs­ingar um málið en aðrir með­limir vita ekki af hverju barnið er hrætt. „Það kemur okkur ekki við,“ útskýrir Ash enda ekki hvað henti heldur vald­efl­ing barns­ins höfð að leið­ar­ljósi.

„Barna­tengilið­ur­inn er ansi skel­eggur hjá okkur í að greina málin,“ segir Ash en eftir fyrstu kynni við barnið er málið lagt fyrir stjórn sam­tak­anna og þá er lagt mat á hvort málið sé tækt fyrir sam­tökin. Sé málið sam­þykkt er farin önnur heim­sókn til barns­ins og því gefið val um hvort það vilji ger­ast með­limur sam­tak­anna: 

„Að miklu leyti snýst starfið um að gefa barn­inu val aftur og stjórn á eigin lífi og aðstæðum.“

Vilji barnið ganga í sam­tökin fær barnið að velja sér vesti og bak­merki sem því líkar vel við, auk minni merkja sem má sauma og skreyta vestið sitt með. 

Lítil athöfn

Því næst mætir allur kafl­inn á mót­or­hjól­unum sínum á þann stað sem barnið dvelur og barnið kynnt fyrir öllum og er form­lega afhent vestið sitt. Því næst gefst barn­inu kostur á að fara í hjóla­túr með öllum hópnum. „Þá erum við búin að mæla út stærð­ina á barn­inu og mætum með gall­ann. Hjálm og hanska, buxur og jakka og allt saman,“ segir Ash enda fyllsta öryggis gætt. 

Barnið er kynnt fyrir tengilið­unum sínum tveimur. Til minn­ingar fær barnið inn­ram­maða ljós­mynd af sér með öllum kafl­anum og á bak­hlið mynd­ar­innar eru nöfn og síma­númer tengilið­anna.

„Það er ótrú­lega mikið sem barnið virð­ist fá þegar það gerir sig grein fyrir því hvað er kom­inn breiður hópur sem er reiðu­bú­inn til að standa við bakið á því í gegnum þykkt og þunnt“

Í upp­hafi er lagt upp með viku­legum heim­sóknum. Þegar traust og öryggi hefur mynd­ast er barn­inu í ein­vald sett hversu mikla þörf það hefur fyrir mót­or­hjóla­vini sína. Mik­il­væg­ast er að barnið upp­lifi traust og að staðið sé við gefin lof­orð. Ash brosir út í annað þegar hann útskýrir far­sæl­ustu til­vikin: „Þá er þetta orðið þannig að við mælum okkur mót, við mætum og þá er barnið kannski ekki heima og farið út að leika.“ 

„Það er í raun sætasta stundin. Þegar við finnum að barnið hefur ekki þörf fyrir okkur lengur,“ bætir Ash við.

Björgunarsveit barna

Innan raða sam­tak­anna eru meðal ann­ars dokt­ors mennt­aður kenn­ari, félags­ráð­gjafar og sér­fræði­mennt­aðir úr ólíkum geirum. Allir með­limir B.A.C.A. stunda dag­leg störf í atvinnu­líf­inu og sinna starfi kafl­ans til hliðar líkt og þekk­ist hjá björg­un­ar­sveit­ar­fólki „Þetta eru þau skila­boð sem við reynum að koma til skila til vinnu­veit­anda okkar,“ segir Ash og bætir við að atvinnu­rek­andi hans sé mjög skiln­ing­ríkur. 

„Sértu komin/n í stöðu tengiliðs og ef barn hringir og óskar eftir aðstoð, þá er alveg sama á hvaða tíma sól­ar­hrings eða hvað þú ert að gera – Þú mætir!“ segir Ash og brýnir á því að börnin eru búin að ganga í gegnum nógu mikið og að kafl­inn verði að standa við gefin lof­orð: „Og það gerum við!“

Málin sem öryggis­teymi sam­tak­anna tekst á við erum mis­jöfn og í ein­hverjum til­vikum þurfa börnin fylgd til og frá skóla. Í þeim til­vikum þarf tengiliður kafl­ans að mæta ögn seinna til dag­legu vinnu sinnar og fá vil­yrði frá atvinnu­rek­anda að skjót­ast frá yfir miðjan dag­inn. 

Engu máli skiptir hvenær sól­ar­hrings­ins er hringt eða hvernig viðrar. Tengiliður B.A.C.A. mætir. Mynd / aðsend

Inn­töku­ferli B.A.C.A.

Mæta þarf á þrjá kafla­fundi sem haldnir eru í höf­uð­stöðvum sam­tak­anna fyrsta mið­viku­dag hvers mán­aðar til að fá að skila inn umsókn. Sitja þarf um það bil 40 nám­skeið og tekur und­ir­bún­ing­ur­inn frá einu upp í eitt og hálfu ár áður enn með­limur telst full­gildur. Snúa nám­skeiðin bæði að vel­ferð og sam­skiptum við börn en auk þess eru nám­skeið sem fara yfir for­varnir og hættur við að lenda í árekstrum við alvöru mót­or­hjóla­klúbba. 

„Það er mjög stíf þjálfun,“ útskýrir Ash og tekur fram að allir þurfi að skila inn saka­vott­orði og veita heim­ild fyrir að sótt sé ítar­legra saka­vott­orð til Sak­sókn­ara, þar sem eru engin tíma­mörk. Allir með­limir skila inn saka­vott­orði á tveggja ára fresti.

Hjálp­ar­sími sam­tak­anna er: 780 2131

Hér að neðan má sjá mynd­skeið frá sam­tökum B.A.C.A í Banda­ríkj­unum:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina