Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Bændur urðu fyrir gríðarlegu áfalli vegna riðu: „Maður sá í augum þeirra hvað þær voru óttaslegnar“

Bændur urðu fyrir gríðarlegu áfalli vegna riðu: „Maður sá í augum þeirra hvað þær voru óttaslegnar“
Mynd úr mynda­banka

Í nýjasta tölu­blaði Bænda­blaðs­ins eru bændur á fjórum bæjum heim­sóttir en þeir eiga það allir sam­eig­in­legt að hafa orðið fyrir því gríð­ar­lega áfalli að þurft að skera niður lífs­við­ur­væri þeirra vegna riðu.

Hér fyrir neðan má lesa brot af þeim slá­andi frá­sögnum bænd­anna en hægt er að lesa þær í heild sinni á vef Bænda­blaðs­ins.

„Maður upp­lifir svo mikið varn­ar­leysi, þú hefur ekk­ert val þegar þú lendir í rið­u­nið­ur­skurði, þú verður bara að fara að lögum og sitja hljóð hjá þegar bústofn­inn þinn er sóttur og drep­inn – allt það sem þú hefur byggt upp. Þetta er alveg ofboðs­legt til­finn­inga­legt tjón og hrika­legt að lenda í! […] við vorum öll afar beygð dag­inn sem bústofn­inn var sóttur og keyrður burt í síð­asta sinn enda áttu allir sínar upp­á­haldskindur. Þarna voru í hópnum m.a. Blíða gamla, Flekka, Eik, Bolla & Dísa – bara bless, og við sjáum ykkur ekki aftur. Síðan taka við þessi ár þegar eng­inn sauð­burður er og svo fyrstu göng­urnar þegar við eigum enga kind í fjöll­unum, það var mjög erfitt. Auðvitað er sauð­fjár­rækt búin að vera stór þáttur í lífi okkar og lífs­stíll,“ segir Fjóla Vikt­ors­dóttir á Syðra-Skörðu­gili í Skaga­firði í sam­tali við Bænda­blaðið, en búfjár­stofn hennar og eig­in­manns­ins, Elvars Ein­ars­sonar, lenti í nið­ur­skori árið 2021. Hann segir: „Okkur sýn­ist að allir lendi í því sama, bændur hafa í raun ekk­ert val og skulu gjöra svo vel að und­ir­gang­ast ákvæði reglu­gerð­ar­innar eins og lög gera ráð fyrir […] Það var lítið hægt að bæta við eða breyta því sem stendur í reglu­gerð­inni. Þannig að við skrif­uðum bara undir og héldum líf­inu áfram.“

Þau Gunnar Sig­urðs­son á Stóru-Ökrum 1 í Skaga­firði, og Svan­hildi Páls­dóttur, misstu allan sinn bústofn vegna riðu árið 2020,en Gunnar segir: „Eins og ljóst má vera af nýlegum málum, til dæmis í Miðfirði, þá er stað­reyndin sú að maður getur ekki byrjað á sama stað og maður var á þegar nið­ur­skurð­ur­inn varð. Þú þarft alltaf að borga dálítið mikið með þér. […] Áfallið hjá mér var fyrst og fremst sam­fé­lags­legt, því við vorum á hreinu svæði þar sem hægt var að eiga í við­skiptum með gripi, sam­gangur var opinn, það voru hrúta­sýn­ingar og heil­mik­ill félags­skapur í kringum sauð­féð. Nú skall allt í lás og ég sá fyrir mér að þetta yrði mikið áfall – sem auð­vitað kom á dag­inn. Ég upp­lifði þetta þannig að við bændur hættum bara að tala saman.“

Elín Anna Skúla­dóttir á Bergs­stöðum í Miðfirði segir í Bænda­blað­inu: „Það var hræði­lega erfitt að sjá á eftir kind­unum sínum sem áttu nokkrar vikur í burð, hlaupa upp á slát­ur­bíl­inn. Flestar þeirra voru ein­stakir karakt­erar og miklir vinir okkar og maður sá í augum þeirra hvað þær voru ótta­slegnar á þess­ari ringul­reið.“

Ólafur Rúnar Ólafsson á Urriðaá segir: „Við náðum ein­hvern veg­inn aldrei að syrgja roll­urnar fyrr en nokkru seinna. […] Við vorum svo á kafi í þessu rækt­un­ar­starfi að það er erfitt að útskýra hvað það hafði mikil áhrif á okkur að lenda í þessu – höfðum legið yfir skýrslu­hald­inu í Fjárvís til að móta okkar eigin línur í rækt­un­inni sem hefur tekið allan okkar tíma hér þótt stuttur sé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina