Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins birti óléttumynd af sér á Twitter en gat ekki stillt sér um að skjóta fast á borgarstjórnina.
Í lok maí voru hátt í þúsund börn á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavíkurborg. Margir hafa gagnrýnt meirihlutann harkalega, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn sem hefur verið í minnihluta um nokkurt skeið í borginni.
Hildur, sem komin er á 41 viku meðgöngu, birti speglasjálfu á Twitter og skrifaði:
„41 vika. Spá í að geyma hana þarna til svona 3ja ára. Svo erfitt að fá leikskólapláss.“































Athugasemdir