Háskóli Íslands vill fá Kristján Hreinsson aftur til starfa. Hann segir málinu ekki lokið.
Skerjafjarðaskáldið Kristján Hreinsson skrifaði færslu í dag á Facebook þar sem hann uppljóstar um það að Endurmenntun Háskóla Íslands hafi boðið Kristjáni aftur boð hjá stofnuninni eftir að hafa sagt honum upp í síðustu viku í kjölfar pistils sem hann skrifaði. Pistillinn vakti mikla reiði í samfélaginu en skáldið segir fólk hafa misskilið pistlinn, hann hafi einmitt verið að taka upp hanskann fyrir Transfólk, ekki öfugt. Í færslunni segir hann að málinu sé ekki lokið en Kristján ætlar í mál við Háskólann. Færsluna má lesa hér:
„Endurmenntun Háskóla Íslands hefur boðið mér að kenna áfram hjá stofnuninni. Margt bendir til þess að látunum linni innan tíðar. Enda vill svo einkennilega til, að ég skrifaði pistil sem fólk náði að misskilja. Það má þó öllum ljóst vera að pistill minn fjallar um umræðu á villigötum. Hið merkilega er að pistill minn náði að sanna hversu afvegaleidd umræðan er. Nú hefur einn angi umræðunnar farið í hring. Ég var rekinn og ráðinn aftur. Kannski var ég rekinn vegna misskilnings. Vonandi er engin rangtúlkun fólgin í því að ráða mig aftur.
Ég vil þó að þeir sem lesa þetta hafi það fullkomlega á hreinu að máli þessu er ekki lokið. Það eru enn ýmsir lausir endar og þá enda mun lögmaður minn væntanlega setja saman í vandaðan vöndul ef mér skjöplast ekki.“































Athugasemdir