Á meðan Baldur Bergmann svaf værum svefni aðfaranótt sunnudagsins síðastliðinn var hringt á dyrabjöllunni að heimili hans í Árbænum. Baldur rak í rogastans þegar hann lítur á upptöku öryggismyndavélar heimilisins og sér að þar er stórgerður, svartklæddur karlmaður sem gengur að húsinu, dinglar á bjölluna og tekur því næst harðasprett út innkeyrsluna.
Hvaða fullorðni meistari gerði dyraat á okkur?
Atvikið virðist ekki hafa ollið Baldri ama. Þvert á móti vakti það hjá honum kátínu. Hann deildi reynslunni og myndskeiðinu á samfélagsmiðlinum Twitter og spyr fylgjendur sína hvort einhver kannist við þann fullorðna meistara sem enn stundar dyrabjölluat og rekur svo upp risahlátur:
„Hvaða fullorðni meistari gerði dyraat á okkur kl fucking korter í eitt HAHAHHAHA“
Hér að neðan má sjá færslu Baldurs































Athugasemdir