Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Pawel Dubaj, 40 ára, frá Póllandi, en fyrir liggur staðfest ákvörðun um að verða við beiðni um afhendingu á honum til Póllands á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar. Pawel er ekki talinn hættulegur.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Pawel, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 112.
Pawel er jafnframt hvattur til að gefa sig fram hjá lögreglu.































Athugasemdir