Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trjágrein kostaði 43 þúsund: „Þarf að huga að því hvort að reikningurinn er á sanngjörnum nótum“

Trjágrein kostaði 43 þúsund: „Þarf að huga að því hvort að reikningurinn er á sanngjörnum nótum“
Íbúi í Kópavogi rak í rogstans þegar hann sá reikn­ing fyrir klipp­ingu einnar trjá­greinar. Myndin er sam­sett.

Ingi­mundur Þór Þor­steins­son íbúi í Kópavogi rak upp stór augu þegar hann skoð­aði reikn­ing frá Garðlist hf.. Fyr­ir­tækið var fengið til að klippa og fjar­lægja trjá­grein á lóð hans vegna trygg­ing­ar­máls. Öðrum sem víti til varn­aðar birti hann færslu á Facebook:

„Ef að ein­hver þarf að láta saga eina grein af tré hjá sér þá kostar það kr 43.524. Það mið­ast við að hún sé í axl­ar­hæð, ekki sver­ari en 7 cm og að verkið taki innan við 10 mín á staðnum. (Ég saga reyndar mínar greinar sjálfur en þetta var trygg­ing­ar­mál eins und­ar­lega og það hljómar)“

Með færsl­unni birti hann afrit af reikn­ingnum og við­brögðin stóðu ekki á sér. Þó nokkrir hafa gefið til kynna að þeir eigi við­líka reynslu af fyr­ir­tæk­inu.

Afrit reikn­ings­ins vegna klipp­ingar á trjá­grein­inni.

Sund­ur­liðun reikn­ings­ins sýnir að tvær klukku­stundir hafi verið not­aðar til verks­ins og verðið við klipp­ingu grein­ar­innar því 20.200 krónur. Akst­urs­gjaldið er 6.800 krónur. Förg­un­ar­gjald trjá­grein­ar­innar er 2.200 krónur. Verk­færa­gjaldið 5.900 krónur.

Mannlíf ræddi við Ingimund sem þekkir vel til fyr­ir­tækja­rekst­urs og áttar sig á umfangi þess að reka stærra fyr­ir­tæki. Hann veltir samt fyrir sér hvort ein­hver villa hafi verið gerð eða hvort þetta sé lág­marks­gald hjá fyr­ir­tæk­inu. Enda er það vel­kunn­ugt að í stærri fyr­ir­tækjum séu boð­leiðir frá bók­halds­deild­inni til þess er vinnur verkið oft langar. Einnig bendir hann á að hugs­an­lega gæti verið um fyr­ir­framá­kveðið start­gjald að ræða. Í svari sínu segir Ingi­mundur:

„Sem sagt eng­inn sem þarf að huga að því hvort að reikn­ing­ur­inn er á ein­hverjum sann­gjörnum nótum eins og t.d. verk­færa­gjald upp á 5.900 þegar það má kaupa nýja hand­sög fyrir það verð en svo má líka kaupa 18 V keðju­sög fyirir 98.000.“

Ingi­mundur þykir verð­lagn­ing ríf­leg og til að setja hlut­ina í sam­hengi segir að lokum:

„Hvað ætli það mundi kosta að fá garð­yrkju­fyr­ir­tæki til að passa börn í 8 klst. Hver yrði reikn­ing­ur­inn í lok mán­að­ar­ins. Kannski ætti ég frekar að fá leik­skóla­kenn­ara til að saga grein­ina. Ég veit bara að leik­skóla­kenn­ar­inn mundi finna fyrir því að borga 43.000 fyrir að láta saga eina grein.“

Viðbrögð frá Garðlist

Í sam­tali við Garðlist feng­ust þær útskýr­ingar að reikn­ing­ur­inn hafi verið sendur á rangan aðila: „Reikn­ing­ur­inn var gef­inn út á fyr­ir­tæki en var óvart sendur á vit­lausan mann. Hann auð­vitað átti aldrei að fá neinn reikn­ing.“

Umfang verk­efna eru mis­mun­andi og þau stór. Sjaldan ber­ist svo lítil verk­efni sem og í til­viki sem þessu nema hugs­an­leg trygg­inga­mál.

„Það auð­vitað kostar alltaf að fara á stað í eitt­hvað verk­efni,“ útskýrir tals­maður Garð­listar og bendir á að sama gjald gæti verið tekið fyrir að sinna trjá­klipp­ingu litlum garði eins og útkall fyrir eina grein.

Aðspurður út í tíma­gjaldið sem gefið var upp í reikn­ingnum, þar sem rukk­aðar voru tvær klukku­stundir í klipp­ing­una sjálfa, útskýrir tals­mað­ur­inn að ávallt séu sendir út tveir menn þegar kemur að klipp­ingu trjá­gróð­urs, örygg­is­ins vegna. Þess auki er lág­marks­gjaldið ein klukku­stund og segir að mest­megnið af tím­anum í litlum verk­efnum fari í akstur á milli staða. Aðspurður hvað liggi að baki akst­ursliðnum segir hann að undir hann falli bif­reiðin, við­hald, rekstur hennar og elds­neyti. Varðandi verk­færa­gjaldið falli þar undir trá­klippur, stigi og kerra.

Garðlist bendir jafn­framt á að sjálf­sagt sé að veita áhuga­sömum við­skipta­vinum kostn­að­ar­á­ætlun áður en verkið er hafið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við