Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Birtir 15 staðreyndir um flóttafólk: „Vandamálið er valdasjúkt fólk sem sem fer í stríð“

Birtir 15 staðreyndir um flóttafólk: „Vandamálið er valdasjúkt fólk sem sem fer í stríð“
Börn á flótta Mynd: Pexels

„Umræðan um mál­efni fólks á flótta hefur verið sér­stak­lega ógeð­felld síð­ustu daga. Full­orðið fólk talar og skrifar af mik­illi mann­vonsku og grimmd um flótta­fólk, áróðri og lygum er dreift um sam­fé­lög og (sam­fé­lags)miðla og stjórn­mála­fólk reynir að vinna sér inn ein­hver stig með orð­ræðu sem ýtir undir for­dóma, hatur og jafn­vel ofbeldi í garð flótta­fólks!“ Þannig byrjar færsla Semi Erlu Serdaroglu, stofn­andi og for­maður Solaris  –hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi.

Færsluna birti Semi Erla vegna óvæg­innar umræðu und­an­farið um mál­efni hæl­is­leit­enda á Íslandi. Segir hún að það sé „afar sorg­legt að horfa upp á ítrek­aðar og alvar­legar árásir á við­kvæman hóp fólks í sam­fé­lag­inu okkar.“ „Það er afar sorg­legt að horfa upp á ítrek­aðar og alvar­legar árásir á við­kvæman hóp fólks í sam­fé­lag­inu okkar, hóps sem er almennt ekki í stöðu til að verja sig. Hóps sem finnur þó fyrir afleið­ingum orð­ræð­unnar og áróð­urs­ins.

Í þeim til­gangi að rétta aðeins umræð­una af eru hér nokkrar stað­reyndir um fólk með flótta­bak­grunn og stöðu þeirra!“


Tekur hún svo saman 15 stað­reyndir og punkta um flótta­fólk og hæl­is­leit­endur, sem útskýrir ýmis­legt hvað þann hóp snertir. Þær stað­reyndir má lesa hér að neðan:

„1. Á síð­asta ári voru 108 millj­ónir ein­stak­linga á flótta í heim­inum. Á Íslandi sóttu 4516 ein­stak­lingar um alþjóð­lega vernd. Það er 0.00004% af heild­ar­fjölda fólks á ver­gangi.2. Lang­flestir sem hafa fengið vernd á Íslandi á þessu og síð­asta ári eru frá Úkraínu. Af þeim 3455 sem fengur vernd á síð­asta ári voru 2315 frá Úkraínu.3. Stefna stjórn­valda í mál­efnum fólks á flótta byggir á kerf­is­bund­inni mis­munun vegna upp­runa. Það birt­ist meðal ann­ars með þeim hætti að fólk frá Úkraínu þarf ekki að fara í gegnum hæl­is­kerfið og fær vernd án tafar, getur farið strax að vinna og orðið virkir þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu.4. Samkvæmt ákvörðun stjórn­valda mega umsækj­endur um alþjóð­lega vernd þó almennt ekki vinna á meðan þeir bíða þess að fá nið­ur­stöðu í umsókn sína um vernd. Það eru því stjórn­völd sem koma í veg fyrir atvinnu­þátt­töku (sumra) ein­stak­linga með flótta­bak­grunn.5. Flótta­fólk býr við félags­lega ein­angrun. Lítið er um skipu­lagða og fjöl­breytta afþr­ey­ingu við hæfi, sér­stak­lega fyrir full­orðið fólk, og því hefur fólk almennt lítið fyrir stafni, jafn­vel mán­uðum saman (mis­mun­andi milli staða og hópa). Vegna þessa hangir fólk til dæmis á almenn­ings­stöðum. Það er afleið­ing af stefnu stjórn­valda og sveit­ar­fé­laga í mála­flokknum. Þau koma í veg fyrir virkni fólks.6. Umsækj­endur um alþjóð­lega vernd fá strætókort sem gildir innan sveita­fé­lags. Það þýðir til dæmis að flótta­fólk sem býr í Reykja­nesbæ á erfitt með að „skreppa í bæinn“ þar sem ferð fram og til baka kostar 3920 kr. Það ýtir enn frekar undir félags­lega ein­angrun, óvirkni og hangs.7. Umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eiga rétt á viku­legum fæð­is­pen­ingum. Ein­stak­lingur fær 8000 kr. á viku. Fjöl­skylda fær aldrei meira en 28.000 krónur á viku, sama hversu stór hún er. Það er ekki óeðli­legt að ein­stak­lingar safni til dæmis dósum fyrir nokkrar auka­krónur – við vitum öll hversu skammt 8000 kr. duga þessa dag­ana.8. Umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eiga rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu á meðan mál þeirra er í ferli. Hún er tak­mörkuð við það sem yfir­völd meta sem „algjör­lega nauð­syn­lega þjón­ustu“ og oft er fólki neitað um mik­il­væga heil­brigð­is­þjón­ustu. Það fer til dæmis eng­inn í „rán­dýrar lag­fær­ingar hjá tann­lækni!“9. Sú þjón­usta sem flótta­fólk fær er í algjöru lág­marki. Sú þjón­usta hefur ekki áhrif á kjör ann­arra hópa í sam­fé­lag­inu. Fjár­munir sem fara í aðstoð við fólk á flótta eru ekki teknir af aðstoð við aðra hópa.10. Fólk með flótta­bak­grunn fremur ekki fleiri glæpi en annað fólk á Íslandi.11. Það er ekki með nokkru móti hægt að kenna flótta­fólki um hús­næð­is­vand­ann í íslensku sam­fé­lagi. Sá vandi er ein­ungis stjórn­völdum og stefnu þeirra að kenna.12. Ef inn­viðir í íslensku sam­fé­lagi eru að bug­ast undan alþjóð­legum og sið­ferði­legum skyldum okkar við fólk á flótta er það vegna þess að stjórn­völd hafa ekki sinnt skyldu sinni og ábyrgð og eru enn illa und­ir­búin undir mót­t­töku fólks á flótta, hátt í ára­tug eftir að auk­inn fjöldi fólks með flótta­bak­grunn fór að leita skjóls á Íslandi.13. Það er eng­inn „flótta­manna­vandi!“ Fólk á flótta er ekki vanda­mál. Vanda­málið er valda­sjúkt fólk sem sem fer í stríð, ríki sem styðja við inn­rásir í önnur ríki og við­halda átökum með aðgerð­ar­leysi, stjórn­mála­fólk sem bregst ekki við breyt­ingum á umhverf­inu. Fólks­flótti er búinn til og við­haldið af vald­höfum sem ber skylda til þess að skjóta skjóli yfir fólk sem flýr aðstæður sem það hefur búið til.14. Flótta­fólk er fólk eins og við! Það sem helst aðgreinir fólk á flótta frá okkur flestum er sú stað­reynd að þau hafa verið neydd til þess að yfir­gefa heima­land sitt og heim­ili, til dæmis vegna stríðs, átaka, ofsókna, ofbeldis eða nátt­úru­ham­fara.15. Við getum öll fundið okkur í þeim sporum einn dag­inn að neyð­ast til þess að fara á flótta. Hvað myndu þið þá segja?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina