Mikil reiði er í samfélaginu eftir að sagt var frá því í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær að ungur öryrki, Jakub Polkowski standi eftir allslaus eftir að sýslumaðurinn á Suðurnesjum samþykkti nauðungasölu á einbýlishúsi Jakubs, sem hann hafði staðgreitt með bótum sem hann fékk eftir læknamistök sem gerð voru er hann var 13 ára.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leik- og sjónvarpskona er ein af þeim sem hefur tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum í gær og í dag. Segir hún að málið sýni skýrt „hvernig komið er fram við fólk og firði sem hafa ekki stöðu, rödd, krafta eða fjármagn í íslensku samfélagi.“ Færsluna má lesa hér að neðan:
„Þessi aðför að húseigandanum er ljósmynd af því hvernig komið er fram við fólk og firði sem hafa ekki stöðu, rödd, krafta eða fjármagn í íslensku samfélagi. Manneskjan sjálf og náttúran er einskis virði gagnvart blindum hrokanum sem skilur ekki að ef þjáningin er af þínum völdum þá hefurðu tapað öllu því sem dýrmætt er. Með ósk um að þessi fjölskylda fái aðstoð við að verja sig.“































Athugasemdir