Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Skotið á dráttarvél í Vogum: „Mér þætti vænt um að þessu færi að ljúka“

Skotið á dráttarvél í Vogum: „Mér þætti vænt um að þessu færi að ljúka“
Virgil Scheving Ein­ars­son

Skotið var á drátt­ar­vél Virgils Scheving Ein­ars­sonar, eigna­um­sýslu­manns og land­eig­anda á Efri-Brunna­stöðum 1 í Vogum, á dög­unum. Segir hann þetta enn eina árás­ina á hendur honum og syni hans, sem er með hesta og kindur og heyjar á jörð­inni. Býr í hfj

Virgil Scheving erfði þrjár jarðir á Efri-Brunna­stöðum í Vogum, fyrir rúmum ára­tug en bjó þar á undan í 15 ár í Skotlandi. Síðustu ár hefur hann orðið fyrir ítrek­uðum spell­virkjum.

„Vélin stóð með snún­ings­vél aftan í, við húsið og þetta hefur gerst um kvöld, um ell­efu leytið um kvöld,“ sagði Virgil, í sam­tali við Mannlíf. Segir hann engan hafa verið í drátt­ar­vél­inni þegar skotið var á hana rétt fyrir síð­ustu helgi, með rifli að hann telji. „Mér er sagt að góðir riflar með kíki geti tekið kíló­meter,“ sagði Virgil en hann telur að skot­mað­ur­inn hafi skotið frá þjóð­veg­inum, úr bíl sínum. Kúlan hæfði aft­ur­rúð­una sem brotn­aði við höggið. „Þetta er átta milli­metra hert gler, stórt og opn­an­legt. Það þarf að panta þetta frá annað hvort Bret­landi eða Ameríku.“

Grunsamlegur bíll

Maður sem þekkir Virgil lét hann vita af grun­sam­legum bíl sem lagt var á þjóð­veg­inum nálægt Efri-Brunna­stöðum 1. „Það var maður sem lét mig vita, sem vill ekki láta nafn síns getið. Hann keyrði fram­hjá þessum bíl, á þjóð­veg­inum. Það stóð hlaup út úr rúð­unni. Hann sagði að það hafi verið Land Cruiser.“ Hann hafi hins vegar verið að keyra fram­hjá honum og ekki náð bíl­núm­er­inu.

Virgil segir þetta skemmd­ar­verk ekki það eina sem þeir feðgar hafi lent í síðan hann erfði jarð­irnar. „Þetta hefur bara verið gegnum-gang­andi. Það eru ekki nema þrjú ár síðan tekin var hliðin úr einni drátt­ar­vél­inni hjá okkur, með hagla­byssu. Þá var nátt­myrkur en öll hurðin gler, aftan á var gler en það var bara tekin hliðin.“ Segir hann lög­regl­una hafa talið að sleggja hafi verið notuð til að brjóta hlið­ina en það segir Virgil af og frá, ekki væri hægt að brjóta hert gler nema með gíf­ur­legu afli. Þá var enn ein drátt­ar­vél Virgils skemmd fyrir stuttu. „Við erum nýbúnir að gera við traktor en það var sett á hann efni sem skemmdi olíu­verkið. Þetta er dýr vél.“

Skemmd­ar­verkin sem unnin voru fyrir þremur árum.

Erfði þrjár jarðir

Aðspurður hvort hann hafi ein­hverja hug­mynd um af hverju verið sé að skemma tækin hans, sagð­ist Virgil eiga erfitt með að ímynda sér það. Segir hann að þetta sé óþægi­legt því nú sé verið að heyja og erfitt að þurfa að ganga alltaf frá drátt­ar­vél­unum inn yfir nótt­ina og taka svo aftur út á morgn­ana. „Við erum orðnir svo­lítið þreyttir á þessu og biðjum þá sem standa að þessu að róa sig niður.“ Virgil bætti því svo við að fram hafi komið í frétt Vísis af skemmd­ar­verk­unum sem gerð voru fyrir þremur árum og er talað um hér að ofan, að þegar hann flutti fyrst á Efri-Brunna­staði 1 hafi hann lokað vegi sem lá um jörð hans og það hafi valdið úlfúð. „Það eru 13 ár sem ég er búinn að vera hérna. Ég var búinn að vera í 15 ár í Bret­landi, í Glasgow og erfði þessar jarðir. Þannig að ég tók við þeim og hef verið hér síðan. Ég kom fyrr en ég bjóst við, 10, 15 árum fyrr en ég bjóst við að koma en ég var síð­astur í fjöl­skyld­unni til að taka við þessu og kom. En ég var ekk­ert kátur að koma, mér leið vel í Bret­landi. En ég tók við þessu og er búinn að vera í miklum fram­kvæmdum, vega­fram­kvæmdum, nið­ur­rifi gam­alla húsa og hér hafa verið lagðar hita­veitur í vél­ar­geymsl­una. Það er búið að eyða miklum pen­ingum hér.“

Treystir ekki lögreglunni

Segir hann afar erfitt að ræða um mögu­lega söku­dólga því þá geti fólk sem býr í nálæg við hann talið hann vera að saka þau um að standa fyrir þessum skemmd­ar­verkum. „Það er voða vont að tjá sig um þessi mál því fólk gæti tekið því þannig, sem býr nálægt manni í dag en það er eng­inn ófriður hér í dag, þá gætu þau tekið það til sín.“ Bætti Virkil við: „En engu að síður þá kom bíll hér nýlega og lét mjög dólgs­lega á hlað­inu og maður fann út hver það var. Það var áður en kindur fóru á fjall í Grinda­vík. Og það lá lamb dautt hér eftir. Ég er með vaktir fram eftir nótt­unni, til að passa upp á vél­arnar. En svo þegar hey­skap líkur, fara vél­arnar aftur í hús. En á meðan á hey­skap stendur koma til með að vera tvær vélar úti yfir nóttu.“ Aðspurður hvort lög­regl­unni hafi verið gert við­vart um lamba­drápið sagði Virgil að hann hefði gert það en ekk­ert hafi komið út úr því. „Það virð­ist ekk­ert koma út úr því að tala við lög­reglu. Ég treysti ekk­ert á lög­regl­una. Ég kem ekki til með að hringja í þá aftur þó það komi eitt­hvað fyrir, reynsla mín er sú að það er kemur ekki nokkur skap­aður hlutur út úr því ef maður hringir í lög­regl­una. Maður verður bara að ganga í það sjálfur.“ Segist Virgil vera að vinna í því að koma upp örygg­is­mynda­vélum við bæinn en að hann þurfi að fá leyfi per­sónu­verndar því mögu­lega næði mynda­vél­arnar yfir á þjóð­veg­inn.

Virgil vildi að það kæmi sér­stak­lega fram að hann er ekki að saka neinn sér­stakan um spell­virkin en „mér þætti vænt um að þessu færi að ljúka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina