Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólöf var kosin forseti Ferðafélags Íslands eftir miklar deilur: „Auðvitað er þetta áskorun“

Ólöf var kosin forseti Ferðafélags Íslands eftir miklar deilur: „Auðvitað er þetta áskorun“
Mynd / Jónína Guðbjörg Guð­bjarts­dóttir Mynd: JGG

Ólöf Kristín Sívert­sen lýð­heilsu­fræð­ingur var kosin for­seti Ferða­fé­lags Íslands í mars eftir miklar deilur innan félags­ins. Hún nýtur þess að ganga reglu­lega á fjöll og ann­ars staðar enda upp­lifir fólk margt á göngu. „Það að finna ilm­inn af gróðr­inum er alveg stór­kost­legt. Skiln­ing­ar­vit manns verða ein­hvern veg­inn næm­ari; ég tala nú ekki um ef fólk er í nokk­urra daga ferð. Það nær betri teng­ingu og skynjar betur nátt­úr­una og umhverfið. Og þegar hefur rignt þá er þessi skynjun enn sterk­ari.“

 „Það var mik­ill heiður að það skyldi hafa verið leitað til mín og ég beðin um að bjóða mig fram til for­seta Ferða­fé­lags Íslands. Það eitt og sér var mikil trausts­yf­ir­lýs­ing til mín og fyrir það er ég afskap­lega þakk­lát og geng auð­mjúk og glöð í það verk­efni,“ segir Ólöf Kristín Sívert­sen lýð­heilsu­fræð­ingur sem var í mars kosin for­seti Ferða­fé­lags Íslands. „Auðvitað hugs­aði maður sig aðeins um þar sem þetta er svo stórt verk­efni. En það sem Ferða­fé­lagið er að gera og þau gildi sem það stendur fyrir sam­ræm­ast mjög vel mínum eigin gildum. Ég er nefni­lega kenn­ari í grunn­inn og er síðan með meistara­gráðu í lýð­heilsu­fræðum og starf­semi Ferða­fé­lags­ins smellpassar við það.“

Ólöf Kristín er spurð hvernig hafi verið að taka við stöðu for­seta félags­ins í kjöl­far fyrr­nefndra deilna.

„Það er að sjálf­sögðu svo­lítið sér­stakt. Ég hafði setið í stjórn Ferða­fé­lags Íslands í þrjú ár áður en þetta kom allt saman upp. En auð­vitað er þetta áskorun. Og það er ekk­ert sjálf­gefið að maður gefi kost á sér í slíkt. Þótt þetta sé sjálf­boða­liða­starf þá er þetta opin­ber staða í sam­fé­lag­inu.“

Ólöf Kristín segir að þetta hafi verið virki­lega erf­iður tími. „Það er ótrú­lega leitt að málin skyldu þró­ast á þennan veg en við teljum að við höfum gert allt sem við gátum til þess að leysa þessi mál á far­sælan hátt. Og auð­vitað setti þetta líka mark sitt á félagið og umræð­una. En það sem gaf okkur síðan byr undir báða vængi var félags­fundur sem var hald­inn í kjöl­farið en þar fékk þáver­andi stjórn afger­andi stuðn­ing frá félags­fólki sem sam­þykkti trausts­yf­ir­lýs­ingu til hennar. Það var okkur mjög dýr­mætt vega­nesti fyrir fram­haldið. En auð­vitað er það ekk­ert óeðli­legt í svona fjöl­mennu félagi eins og Ferða­fé­lagi Íslands er, með um 11.000 félags­menn, að það séu ekki allir alltaf á eitt sáttir. Við erum að sjálf­sögðu alltaf opin fyrir ábend­ingum um okkar starf og hvað við getum gert betur. Félagið og stjórn félags­ins er nátt­úr­lega á engan hátt yfir gagn­rýni hafin og starf­semin þarf sífellt að þró­ast í takti við sam­fé­lagið. Hins vegar horfum við nú björtum augum til fram­tíðar og þeirrar spenn­andi upp­bygg­ingar sem er fram undan.“

Viðtalið við Ólöfu Sívert­sen má lesa í heild sinni á blað­síðu 14 í nýjasta tölu­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una