Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ásgeir sat undir lífshótunum eftir að bakkað var á bíl hans: „Ég var virkilega hræddur“

Ásgeir sat undir lífshótunum eftir að bakkað var á bíl hans: „Ég var virkilega hræddur“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Ásgeir Ásgeirs­son, ljós­mynd­ari, sagði frá óþægi­legri reynslu þegar bakkað var á bíl­inn hans. Þetta gerð­ist fyrir utan verslun og var Ásgeir að setja inn­kaupa­poka í skottið á bíl sínum.

„Í fyrra­dag ger­ist það leið­inda­at­vik fyrir utan verslun þar sem ég var nýbú­inn að versla að eldri kona (giska á um 70+ ára) á jeppa bakk­aði á bíl­inn okkar Rósu þegar ég var að opna aft­ur­hurð­ina og setja inn poka.

Heppni að þetta var ekki mjög harka­legur árekstur þar sem litlu mun­aði að ég dytta við þetta,“ skrifar Ásgeir á Facebook síðu sinni.

Ásgeir segir kon­una ekki hafa stöðvað bíl­inn. Hann hafi náð að rjúka á eftir honum og banka í rúð­una. Þá stöðv­aði konan bíl­inn en sátt var hún ekki. „Þessi eldri kona kom út og hreytti í mig hvað ég væri að berja bíl­inn hjá henni og ég benti henni á að hún hefði bakkað á bíl­inn okkar og ekki stoppað einu sinni strax og benti henni á skemmd­irnar.

Hún snéri strax upp á sig og sagð­ist ekk­ert hafa bakkað á mig og ég væri að skálda þetta til að reyna að fá útúr trygg­ingum og hún bæri enga ábyrgð á skemmd­unum.Bíllinn okkar var kyrr­stæður, lagður 100% í bíla­stæði og ekki í gangi eða neitt, meira að segja í hand­bremsu eins og vera ber.“

Þegar Ásgeir benti henni á að tvær versl­anir væru með örygg­is­mynda­vélar á svæð­inu sem gætu sannað rétta atburða­rás breytt­ist tónn kon­unnar. Auk þess sagði hann að bíll­inn væri útbú­inn mynda­vél sem tæki allt upp. Hún hélt því þó stað­fast­lega fram að Ásgeir væri að gera til­raun til þess að svíkja fé út úr trygg­ingum. „Hún sagði að hún gæti ekki hafa skemmt svona og benti á minnstu risp­una eftir sig og sagði að hún hefði senni­lega bara rispað þetta lítið en hitt hefði verið og ég væri að fiska eftir trygg­inga­bótum frá henni og hún myndi ekki láta kúga sig í svo­leiðis vit­leysu og ætl­aði að ganga í burtu.“

Ásgeir bað kon­una um að stöðva, ann­ars þyrfti hann að hringja í lög­regl­una. Hún hvatti hann til þess að láta reyna á það. Bíllinn var illa far­inn eftir dráttakúlu jeppans. „Hún varð hreint ekki ánægð með þetta að þeir væru að koma og sagð­ist ætla að láta vita að sér seink­aði í hár­greiðslu­stofu þarna tveimur hurðum frá og ég sagði það í fínu lagi mín vegna. Út kemur hún ásamt manni sem virt­ist vera ann­að­hvort eig­in­maður hennar eða vinur enda virt­ust þau nákomin í fram­komu.“

Ekki skán­aði það þegar mað­ur­inn óþekkti hraun­aði yfir Ásgeir. „Þau tala eitt­hvað þarna og fara inn í jepp­ann hjá henni og tala í smá­stund áður en mað­ur­inn kemur útúr bílnum, gengur upp að mér og segir að trygg­inga­svik varði við lög og svona menn eins og ég væru óþverrar og það væri á tæru að ég yrði ekki lang­lífur.  Þessu hreytti hann útúr sér frekar reiður og nötr­andi og ég hrein­lega bjó mig undir að fá hnefa­högg enda var hann með krepptan hnefa allan tím­ann og mjög ógn­andi.“

Maðurinn hót­aði Ásgeiri bein­línis líf­láti en lét vera að ganga í skrokk á honum. „Hann horfði á mig í svona 20 sek­úndur þrút­inn í framan og sagði svo að hann myndi sjá til þess ef ég héldi þessu til streytu skyldi ég ekki verða lang­lífur enn og aftur og snéri upp á sig og struns­aði í burtu niður göt­una. Þrátt fyrir að þessi maður væri 70+ ára, þá var ég virki­lega hræddur“

Ásgeir þjá­ist af sjúl­dómnum CRPS sem veldur miklum sárs­auka víðs­vegar um lík­amann. Auk þess missa sjúk­lingar gjarnan jafn­vægi og hæfni til fín­hreyf­inga. Ásgeir seg­ist líða dag­legar vít­isk­valir.

„Ég vissi fyrir víst að ég myndi ekk­ert hafa í 70+ ára gamlan mann að segja kæmi til handa­lög­mála, enda ein­fald­lega of veikur, ég myndi senni­lega limp­ast niður við minnsta högg.“

„Maður er að deyja hægt og rólega kval­ar­fullum dauð­daga fyrir verkjum sem éta mann meir og meir upp á hverjum degi án þess að maður geti nokkuð gert í því.

Að heyra full­orðin mann, segja að maður ætti ekki eftir að verða lang­lífur og hann myndi sjá til þess var síð­asta hálm­stráið þann dag­inn.  Meðan hann struns­aði í burtu brotn­aði eitt­hvað inn í mér.“

Starfs­menn Árekstrar.is skoð­uðu skemmdir bíls­ins og með mæl­ingum gátu þeir sannað með fullu að þær væru eftir bíl kon­unnar.

Árekstur.is mættu á stað­inn og enn og aftur reyndi þessi eldri kona að ljúga en það gekk ekki eftir því að mað­ur­inn frá Árekstri mældi dráttakúl­una og skemmd­ina á stuð­ar­anum og það stemmdi allt saman og hann leið­rétti hana snar­lega þegar hún reyndi að segja að hún hefði meira að segja ekki bakkað í stæðið heldur keyrt beint inn í það með þeim orðum að varla hafi drátt­ar­kúlan á jepp­anum hennar gengið á stuðar­ann og skemmt án þess að vera áföst jeppa hennar.  Tjóna­skýrslan var færð til bókar og ég fram­vís­aði mínu öku­skír­teini að sjálf­sögðu og gaf upp allar upp­lýs­ingar en hún var ekki alveg til í að gera það sama og ætl­aði að fara af staðnum þegar hann bað hana um að vin­sam­leg­ast sýna öku­skír­teini sitt líka svo hann gæti stað­fest hver hún væri á tjóna­skýrsl­una sem og stað­fest

„Í gær kom nið­ur­staða frá okkar trygg­inga­fé­lagi að við værum sann­ar­lega í 100% rétti.“ Ásgeir furðar sig þó á því að þeim sé gert að sækja tjónið sjálf hjá trygg­ing­ar­fé­lagi kon­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina