Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innherji í Sýn kaupir hlutabréf skömmu fyrir birtingu uppgjörs: Sesselía keypti fyrir 4 milljónir

Innherji í Sýn kaupir hlutabréf skömmu fyrir birtingu uppgjörs: Sesselía keypti fyrir 4 milljónir

Sesselía Birg­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sölu-, þjón­ustu- og mark­aðs­mála Vodafone, dótt­ur­fé­lags Sýnar, til­kynnti um kaup á hluta­bréfum í fyvr­ir­tæk­inu til Kaup­hallar Íslands í gær. Athygli vakti að við­skiptin áttu sér stað 25 dögum eftir lok ann­ars árs­fjórð­ungs og að til­tölu­lega skammur tími er þar til afkoma fyr­ir­tæk­is­ins verði opin­beruð. Tilkynnt var um við­skiptin í nafni einka­hluta­fé­lags­ins Red Apple, sem Sesselía er hlut­hafi í. Kaupverð bréf­anna nam um fjórum millj­ónum króna.

Í siða­reglum Sýnar segir: „Allt starfs­fólk Sýnar skal fara eftir við­eig­andi lögum og reglum um við­skipti með hluta­bréf í félag­inu. Samkvæmt þeim er starfs­fólki bannað að eiga við­skipti með hluta­bréf á grunni verð­mót­andi upp­lýs­inga sem ekki eru opin­berar en það býr yfir vegna starfs síns. Fylgni við lög er á ábyrgð hvers og eins starfs­manns og brot á þeim gæti leitt til mál­sóknar á hendur starfs­manni.“

Nú er ekki hægt að full­yrða að kaup Sesselíu hafi verið vegna þess að hún telji að árs­hluta­upp­gjör fyr­ir­tæk­is­ins verði umfram vænt­ingar mark­aðs­að­ila og hafi þess vegna séð fjár­fest­inga­tæki­færi í hluta­bréfum Sýnar. Hins­vegar má ætla að Sesselja hafi greiðan aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum fyr­ir­tæk­is­ins í starfi sínu sem fram­kvæmda­stjóri og sé þar af leið­andi ekki heim­ilt að eiga við­skipti nema með sam­þykki reglu­varðar.

Jafn­framt segir í siða­reglum fyr­ir­tæk­is­ins:
„Hafi starfs­maður aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum má hann ekki eiga við­skipti með hluta­bréf í Sýn nema með sam­þykki reglu­varðar.“

Afar fá dæmi eru um að inn­herjar og lyk­il­stjórn­endur fyr­ir­tækja hér á landi eigi við­skipti með hluta­bréf í skráðum fyr­ir­tækjum svo löngu eftir að árs­hluta lýkur. Helstu fyr­ir­tæki lands­ins eru nú þegar byrjuð að birta fjár­hags­upp­gjör sín og má þar nefna Lands­bank­ann og Icelandair. Enn fleiri stór­fyr­ir­tæki opin­bera rekstr­ar­af­komu sína fyrir viku­lok. Algengt er að stjórn­endur eigi sín við­skipti skömmu eftir birt­ingu inn­herj­a­upp­lýs­inga en forð­ist að eiga við­skipti fyrir birt­ingu þeirra.

Við­mæl­endur Mannlífs telja lík­legt að stjórn­endur Sýnar hafi nú þegar nokkuð glögga mynd af þeim upp­lýs­ingum sem birtar verða fjár­festum. Í til­felli Sesselíu, hafi hún yfir­burðar þekk­ingu og aðgang að fjár­hags­tölum Vodafone, stærstu
rekstr­ar­ein­ingar Sýnar. Engan skal því undra að fjár­festar velti þessum við­skiptum fyrir sér. Telji Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans eða eft­ir­lits­að­ilar kaup­hall­ar­innar við­skiptin athygl­is­verð má búast við að þau verði skoðuð nánar og þá í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem liggja fyrir innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Á ábyrgð kaupanda

Mannlíf hafði sam­band við Vodafone til að reyna ná sam­bandi við Sesselíu, sem var ekki við að sögn starfs­manns. Hún fékk skila­boð um erindi Mannlífs.

Ragna Björk Ragn­ars­dóttir, starfs­maður Sýnar, hafði sam­band við Mannlíf fyrir hönd reglu­varðar. Hún segir að fjár­fest­inga­glugg­inn sé opinn og það sé almenn laga­skylda og á ábyrgð stjórn­enda vegna við­skipta með hluta­bréf að upp­lýsa hvort þeir hafi aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum sem séu verð­hvetj­andi.

„Samkvæmt MAR reglu­gerð eru ein­göngu við­skipti stjórn­enda og nákom­inna til­kynn­inga­skyld til félags­ins og Kaup­hallar, þ.e. stjórn­ar­manna, fram­kvæmda­stjóra og yfir­stjórn­anda sem hefur reglu­legan aðgang að inn­herj­a­upp­lýs­ingum sem tengj­ast þeim aðila beint eða óbeint og vald til að taka stjórn­un­ar­á­kvarð­anir sem hafa áhrif á fram­tíð­ar­þróun og rekstr­ar­horfur skráðs félags,“ segir í skrif­legu svari Rögnu Bjarkar. Svo er að skilja að mál Sesselíu hafi því ekki komið á borð reglu­varðar.

Hér er linkur í siða­regl­urnar í heild sinni á vef Sýnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina