Björn Birgisson veltir fyrir sér síbreytilegu Reykjanesi í nýrri færslu í dag.
Samfélagsrýnirinn kjarnyrti Björn Birgisson skrifaði Facebook-færslu í dag þar sem hann velti fyrir sér hinu síbreytilega Reykjanesi en þar hefur gosið reglulega síðustu ár með tilheyrandi breytingu á landslagi. Þá velti hann því einnig fyrir sér hvort þær verðmætu auðlindir sem háhitasvæði séu, muni vara að eilífu en segir að tíð eldgos geti haft áhrif á slíkt.
Færsluna má lesa hér að neðan:
„Lifandi Reykjanes.
Nú er þriðja eldgosið á Reykjanesi á þremur árum að fjara út.Afskaplega líklegt er að stutt sé í það fjórða og síðan koll af kolli.Okkur er sagt að samkvæmt hefðinni í jarðsögunni þá sé hafið nýtt eldgosatímabil á svæðinu eftir yfir 800 ára hvíld og kyrrð.Gömlu hraunin hafa náð að safna mosa og eru ekki lengur kolsvört, en það eru þau nýju svo sannarlega, í einkennislit þess Kölska sem kyndir ofnana í neðra.Þótt eldstöðvar Reykjanessins hafi haft hægt um sig í yfir átta aldir þá hefur víða bullað og kraumað undir yfirborðinu allan tímann.Eðlilega hafa háhitasvæði verið virkjuð með frábærum árangri og hér er heitt vatn til allra hluta, húshitunar, í sundlaugar, í heita potta, til allra þvotta – hreint og beint ómetanlega verðmæt auðlind.Er hún varanleg og gefandi til eilífðarnóns?Það veit í sjálfu sér enginn með neinni vissu, en tíð eldgos eru líkleg til að breyta ýmsu – ýmsu sem talið er sjálfgefið nú, en kann að raskast með litlum eða engum fyrirvara.Drottinn gaf og drottinn tekur.**********Á myndinni er Gunnuhver og hann er í sjálfu sér eitt kennslubókardæmi um hversu lifandi Reykjanesið er og í raun viðkvæmt fyrir utanaðkomandi áhrifum.Þegar boranir hófust eftir heitu vatni fyrir Reykjanesvirkjun var Gunnuhver lítill kraumandi hver í nágrenninu, suðupottur, aðgengilegur án áhættu.Nú er Gunnuhver eins og myndin sýnir!Sú breyting er eindregið rakin til jarðborana vegna hinnar nýju virkjunar.**********Svartsengi, Krýsuvík, Eldvörpin, Fagradalsfjall, Litli hrútur, Merardalur, Gunnuhver, Keilir ………… og lengi má telja.Þessi staðaheiti og örnefni og mörg önnur munu verða landsmönnum töm á tungu um langa framtíð.Reykjanesið er sprelllifandi!“































Athugasemdir