Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. (Mynd: Jón Gúst­afs­son).

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni.

Steinunn Ólína.

Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla með bólu­efnum á sínum tíma, sem mögu­lega hafa valdið fólki tjóni.

Leik­konan Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, vin­kona Kára, skrif­aði langa færslu á Facebook í gær þar sem hún ver vís­inda­mann­inn. Þar segir hún meðal ann­ars að Kári, auk ann­arra lækna hafi gert það sem þeir „töldu rétt að gera miðað við þær upp­lýs­ingar sem þeir töldu þá áreið­an­legar.“ Þá segir hún að hún leggi aldrei „það traust til nokk­urrar mann­eskju að ákveða hvað sé mér fyrir bestu – ég afsala mér aldrei þeirri ábyrgð.“ Segir hún að lokum að sjálfs­á­byrgðin sé eini hús­bónd­inn sem sé óum­flýj­an­legur.

Færslan er hér í heild sinni:

„Eigum við að skjóta Kára Stef­áns­son eða ættum við heldur að skjóta okkur sjálf?

Engin var dreg­inn á hár­inu í bólu­setn­ingar hér á landi þótt til­mæli heil­brigð­is­yf­ir­valda á heims­vísu væru öll í þá átt­ina. Margir völdu að þiggja ekki bólu­setn­ingar. Mér dettur ekki í hug eina mín­útu að Kári, sem er vinur minn, hafi visvít­andi tekið þátt í að valda mann­eskjum skaða í stórum stíl eða í auðg­un­ar­skyni. Hann eins og margir aðrir læknar gerðu það sem þeir töldu rétt að gera miðað við þær upp­lýs­ingar sem þeir töldu þá áreið­an­legar.Ég fund­ar­stýrði ráð­stefnu hjá Geðhjálp í vor – nið­ur­staða þeirrar ráð­stefnu var eða það sem ég dró saman hald­bær­ast úr efni fyr­ir­les­ara – Vitað er að það hjálpar fólki með geð­rænan vanda að vera úti í nátt­úr­unni og geta deilt reynslu sinni með þeim sem hafa liðið fyrir sömu kvilla. SSRI lyfin eru í raun gagns­laus og valda hugs­an­lega breyt­ingum til fram­búðar á heila­starf­semi okkar-þjóðin getur sett sig í lög­sókn­ar­gír­inn!Við vitum að lækna­vís­indin hafa í leit sinni að lækn­ingum oft fálmað ut í myrkrið. Kári gengst við því að vita nú betur – vita nú – og það finnst mér ein­hvers virði.Ég legg ekki það traust til nokk­urrar mann­eskju að ákveða hvað sé mér fyrir bestu – ég afsala mér aldrei þeirri ábyrgð – því ábyrgðin hér­lendis var á end­anum í höndum hvers og eins. Ég valdi að fara i tvær bólu­setn­ingar og sleppti þeirri þriðju. Ég var nógu skelfd í upp­hafi til að fara í bólu­setn­ingu – ég valdi það. Það var ekki áróður Kára sem hvatti mig til þess heldur ótti við dauð­ann eða öllu heldur ótti við að deyja frá föð­ur­lausum börnum. Þegar að þriðju sprautu kom taldi ég og þetta var bara gut til­finn­ing að ég ætti ekki að fara í fleiri – þá fannst mér ég ekki þurfa þess með. Kannski hafði ég bara minni áhyggjur af því að ung­viðið gæti ekki spjarað sig án mín Og þá voru komnar fram upp­lýs­ingar um að nauð­syn bólu­setn­inga allra ald­urs­hópa væri hugs­an­lega umdeil­an­leg og eins og oft áður hefðu lækna­vís­indin farið offari í við­leitni sinni til að bjarga manns­lífum. Ég valdi að fara ekki í fleiri. Ég get ekki lagst í kenn­ing­ar­fræði eða sam­sær­is­rann­sóknir – ég hef ekki áhuga á þeim – ég bara veit að það er fjand­anum erf­ið­ara að taka ábyrgð á eigin gjörðum – og enn erf­ið­ara að standa með sjálfum sér haldi maður að ákvarð­anir þær sem maður hefur tekið séu rangar, án þess að finna til blóra­böggul til að hengja vandan á. En það þarf hver mann­eskja að gera ef hún vill vera heil gagn­vart sjálfum sér. I told you so fólkið er ekk­ert að gera nema upp­hefja sjálft sig og pússa sitt eigið egó. Það gagn­ast engum ekki einu sinni þeim sjálfum. Nægar eru geð­bólg­urnar! Mér hugn­ast illa þegar fólk er til­búið til að afsala sér sjálfs­á­byrgð og finna til söku­dólga í frið­þæg­ing­ar­skyni. Lækna­vís­indin eru lif­andi eins og listin – lotn­ing fyrir þeim er býsna mikil þrátt fyrir að við vitum að margt sem gert er í lækn­inga­skyni er bara leit í myrkri. Fólk ætti í rík­ara mæli að treysta inn­sæi sínu – margir gerðu það í trássi við skoð­anir og til­mæli ann­ara. Kannski var það rétt? Það fólk ætti að standa með sjálfu sér án þess að ráð­ast að þeim sem voru að vinna sitt starf af heið­ar­leika og í góðri trú, þvi að það er ég sann­færð um að Kári hafi gert og hlífa okkur hinum sem völdum að þiggja bólu­setn­ingar. Við höfum ekk­ert gagn af því að vera sagt að við séum asnar – okkur verður það kunn­ugt fyrr en síðar – ef sú er reyndin. Ekki vitum við allt enn. Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi en eini hús­bónd­inn sem er óum­flýj­an­legur. Að trúa öðru er blekk­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina