Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segja föðurbróðir Ásmundar Einars hafa ekið á föður sinn: „Valdimar ók þá á hliðið sem gaf eftir“

Segja föðurbróðir Ásmundar Einars hafa ekið á föður sinn: „Valdimar ók þá á hliðið sem gaf eftir“

Harðar fjöl­skyldu­deilur standa í Dala­byggð vegna umsvifa og gjörða Daða Ein­ars­sonar og sonar hans, Ásmundar Einars Daða­sonar ráð­herra. Deilt er um jörð­ina Lamb­eyrar sem var í eigu átta systk­ina, afkom­enda Einars Valdi­mars Ólafs­sonar.

Jörðin fór á upp­boð eftir að Daði hafði skuld­sett eign­irnar upp í rjáfur. Í fram­haldi af upp­boð­inu leystu þrjú af fyrr­ver­andi eig­endum jörð­ina til sín og eru nú lög­legir eig­endur hennar. Síðan hefur ríkt stríðs­á­stand með mála­ferlum og kæru­málum. Ráð­herr­ann núver­andi er sak­aður um inn­brot í hús sem feðgarnir byggðu á sínum tíma á jörð­inni. Faðir hans er sak­aður um skemmd­ar­verk. Lögregla hefur verið kölluð til en aðhefst að sögn ekki.

Skúli Ein­ars­son, bróðir Daða, er eitt syskin­anna sem leystu til sín jörð­ina. Eftir að deilur hafa staðið árum saman ákváðu dætur hans að grípa til þess örþrifa­ráðs að stofna hlað­varp til þess að lýsa sinni hlið á mál­inu. Nafn hlað­varps­ins er Lömbin þagna ekki. Fyrsti þátt­ur­inn var sendur út í nótt. Syst­urnar þrjár rekja þar atburða­rás sem er vægt sagt mögnuð og hlaðin ógn­ar­við­burðum og áhuga­leysi yfir­valda. Lýst er inn­broti Ásmundar Einars í íbúð­ar­hús á jörð­inni. Þá segir frá því að hlassi af skít var sturtað við húsið. Ása segir að syst­urnar hafi ekki séð aðra leið færa en stofna hlað­varpið.
Nýr þáttur af hlað­varp­inu var birtur í dag. Þar segja syst­urnar frá eig­anda­fundi sem hald­inn er árlega og fór fram þann 3.ágúst síð­ast­lið­inn. Valdimar Ein­ars­son, föð­ur­bróðir Ásmundar Einars sat fund­inn fyrir hönd bróður síns.

„Eftir eig­enda­fund 3. ágúst s.l. að Dönu­stöðum gleymdi pabbi okkar tösku (með far­tölvu og skjölum) í Dönu­staða­bænum.

Valdimar Ein­ars­son tók tösk­una í vitna við­ur­vist og áttu þau sem það sáu von á því að hann myndi skila tösk­unni strax til Skúla. Það gerði hann ekki. Daginn eftir fékk pabbi stað­fest að Valdimar hafi tekið tösk­una. Skúli reyndi að hringja í Valdimar en var ekki svarað. Eftir að breyta öllum lyk­il­orðum, þá ákvað hann að fara vestur til þess að freista þess að end­ur­heimta tösk­una. Ása var með í för.

Valdimar, ásamt bróður sínum Daða Ein­ar­syni (faðir ráð­herra), var á leið í hey­skap í Skógskot. Enn var reynt að hringja í Valdimar en hann svar­aði ekki. Skúli reyndi að fá Valdimar til að stoppa við Skógskot til að ná tali af honum og spyrj­ast fyrir um tösk­una og far­tölv­una sína (sem inni­heldur mik­il­væg per­sónu­leg gögn). Valdimar stopp­aði ekki en keyrði áfram og á Skúla með drátt­ar­vél­inni. Skúli náði að kom­ast aðeins framar og lok­aði hlið­inu að Skógskoti og stóð fyrir aftan það. Valdimar ók þá á hliðið sem gaf eftir og skall á Skúla áður en hann náði að forða sér. Við bendum á að Skúli er með slitna hásin, hann haltrar að stað­aldri, og getur ekki hlaupið eða hreyft sig hratt. Valdimar keyrði áfram, yfir hliðið og eyði­lagði það. Skúli fékk mar á hné, oln­boga og úln­lið. Mikil mildi er að ekki fór verr. Þetta hlið, og Skógskot í heild sinni, er í eigu tengda­for­eldra hans Ásmundar Einars Daða­sonar, ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins.“

Myndband af árásinni má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina