Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Áhöfn Guðnýjar ÍS 266 hengdi ísbjörn á sundi: „Það var ekkert nauðsynlegt frekar en annað“

Áhöfn Guðnýjar ÍS 266 hengdi ísbjörn á sundi: „Það var ekkert nauðsynlegt frekar en annað“
Áhöfnin stolt af „veið­unum“ Mynd: Bæjarins besta

Hvíta­birnir hafa verið nokkuð tíðir gestir við strendur Íslands um aldaraðir. Hafa þeir að jafn­aði verið felldir með skot­vopnum enda stafar af þeim gríð­ar­mikil hætta, séu þeir svangir. En ekki hefur alltaf verið not­ast við skot­vopn við að fella bjarn­dýrin. Í júní árið 1993 ákvað áhöfn skips­ins Guðnýjar ÍS 266 frá Bol­ung­ar­vík að fella hvíta­björn sem synti upp að skip­inu. Það gerði áhöfnin með því að bregða snöru um háls bjarn­ar­ins og hengja hann.

Í Morg­un­blað­inu er svo sagt frá mál­inu:

Snöruðu og drápu ísbjörn

SKIPSTJÓRINN á Guðnýju ÍS 266 frá Bol­ung­ar­vík hafði sam­band við útgerð­ar­mann báts­ins Magnús Snorra­son í Bol­ung­ar­vík í fyrra­kvöld og sagði að skips­höfnin hefði náð að drepa ísbjörn, sem kom upp að skip­inu þar sem það var að línu­veiðum um 60 sjó­mílur norð­austur af Horn­bjargi. Virðist að skips­höfn­inni hafi tek­ist að bregða snöru um háls dýrs­ins og það hengst

Frá því að frétt­ist af hvíta­bjarn­ar­dráp­inu í gær­morgun hefur skipið ekki svarað ítrek­uðum sam­tals­beiðnum, en það er utan þjón­ustu­svæðis far­síma. Engin leið hefur því verið að fá nán­ari upp­lýs­ingar um atburð­inn, en Guðný er vænt­an­leg til Bol­ung­ar­víkur í dag. Það kom fram í við­tali við Jón Oddsson refa­skyttu í rík­is­út­varp­inu í gær að hann teldi sig hafa séð ummerki eftir ísbjörn í Hornvík þegar hann var við refa­veiðar um miðjan mán­uð­inn. Kjartan Sig­munds­son, sem skaut ísbjörn í Hornvík 25. júní 1963 eða fyrir réttum 30 árum, er nýkom­inn að norðan. Hann sagð­ist ekki hafa séð nein merki um bjarn­dýr, en það segði þó ekk­ert um að það gæti ekki verið þarna. Það væri nóg æti í bjarg­inu, þótt hann hefði veitt því athygli að allur selur var horf­inn af Horn­vík­inni, en þar er jafnan mikið um sel á þessum árs­tíma. Hann sagði að nú væri um 25 manna hópur í húsi hans í Hornvík og fjórar stúlkur í Stígs­húsi og sér liði ekk­ert of vel að vita af öllu þessu fólki þarna vopn­lausu, en nú er bannað að vera með byssur í friðlandi Horn­stranda. Hann hélt að ekk­ert útvarp væri til staðar og ekk­ert fjar­skipta­sam­band nær en austan Horn­bjargs í vit­anum og fólk því óaf­vit­andi um hætt­una.

Önundur Jónsson lög­reglu­varð­stjóri á ísa­firði, en Ísa­fjarð­ar­lög­reglan hefur lög­sögu á Horn­ströndum, sagð­ist hafa kynnt sér málin með að ræða við menn kunn­uga háttum ísbjarna. Hann sagð­ist ekki gera neinar ráð­staf­anir þótt ísbjörn hafi hugs­an­lega verið á svæð­inu fyrir 10 dögum. Slík dýr ferð­ist mjög hratt, jafn­vel 30-40 km á dag, og séu því löngu horfin af svæð­inu hafi þau verið þar.

Ekki fannst öllum aðferð áhafn­ar­innar mann­úð­leg gagn­vart birn­inum en svo fór að áhöfnin var ákærð fyrir brot á lögum um dýra­vernd en Hér­aðs­dómur Vest­fjarða sýkn­aði hana af brot­inu.

DV tók við­tal við Rögnvald Guð­munds­son, stýri­mann á Guðnýju ÍS stuttu eftir

Rögn­valdur Guð­munds­son, stýri­maður á Guðnýju ÍS: Aðferðin yrði öðru­vísi

Rögn­valdur Guð­munds­son er stýri­maður á Guðnýju ÍS en skip­verjar á Guðnýju rák­ust á ísbjörn á sundi um 60 mílur norður af Horni á fimmtu­dag­inn og töldu best að koma dýr­inu fyrir katt­ar­nef. Margir hafa harð­lega for­dæmt drápið og stjóm Sambands dýra­vernd­un­ar­fé­laga hefur sent kæru til Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins vegna máls­ins. Skip­stjóri á Guðnýju er Jón Pét­urs­son en Rögn­valdur hefur verið í for­svari fyrir áhöfn­ina Rögn­valdur seg­ist hafa byrjað sem púki til sjós en fyrir tveimur ára­tugum fékk hann vél­stjóra­rétt­indi. Hann býr í Bol­ung­ar­vík og er kvæntur Halldóru Þór­ar­ins­dóttur. Þau hjónin eiga fimm börn á aldr­inum sex til 18 ára. Rögn­valdur segir að einu isbimimir sem hann hafi séð hingað til hafi verið birn­irnir í Sædýra­safn­inu í Hafn­ar­firði. Þegar hann var spurður hvort nauð­syn­legt hefði verið að drepa dýrið, svaraöi hann: „Það var ekk­ert nauð­syn­legt frekar en annað.“

Hann taldi samt með öllu von­laust fyrir ísbjörn­inn að kom­ast í land þar sem hann var um 200 kíló­metra undan landi. „Við sáum engan ís og eng­inn hafði talað um ís á skip­unum sem voru þarna í kring. Það hefur eng­inn ís sést frá því snemma í vor, og það var langt í burtu,“ sagði Rögn­valdur er hann var spurður hvort ís hefði verið á þessum slóðum. Hann taldi að hann myndi gera það sama ef hann ræk­ist á annan ísbjörn, en aðferðin yrði öðru­vísi.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist fyrst þann 2. des­em­ber 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni