Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Björn Leví hjólar í Bjarna Ben: „Er það þess vegna sem það má ekki fá rannsóknarnefnd?“

Björn Leví hjólar í Bjarna Ben: „Er það þess vegna sem það má ekki fá rannsóknarnefnd?“
Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata.

Björn Leví Gunn­ars­son veltir fyrir sér hug­tak­inu „skyn­sem­is­stjórn­mál“ í nýrri færslu á blogg­síðu sinni.

Í færslu sinni veltir hann fyrir sér hvað sé skyn­samt og hvað ekki og þá stað­reynd að þó að ein­hver seg­ist aðhyll­ast „skyn­sem­is­stjórn­mál“, þýði það ekki að við­kom­andi sé endi­lega skyn­samur.

Notar Píratinn tæki­færið og skýtur fast á Bjarna Bene­dikts­son vegna söl­unnar á hlut rík­is­ins í Íslands­banka en faðir Bjarna var einn af kaup­end­unum. „Nú langar pabba fjár­mála­ráð­herra rosa­lega mikið að kaupa hluta af þessum rík­is­banka og sendir inn kauptil­boð. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að ráð­herra má ekki selja pabba sínum neinar rík­is­eignir, það væri hags­muna­á­rekstur, en þegar ráð­herra er spurður út í þetta svarar hann bara “mátti pabbi ekki kaupa?”,“ segir Björn Leví í færsl­unni og á þá við Bjarna og föður hans. Segir hann þetta afar gott dæmi um „skyn­sem­is­stjórn­mál“.

Færsluna má lesa hér fyrir neðan:

Að tala af skyn­semi

Hvernig veit ég hvort það sem ég segi er skyn­samt eða ekki? Það sem er ennþá erf­ið­ara, hvernig veit ég að það sem þú segir er skyn­samt eða ekki? Þetta er spurn­ing sem mér finnst mjög áhuga­verð, sér­stak­lega út af ein­hverju sem má kalla “skyn­sem­is­stjórn­mál”.

Mér finnst þetta mjög merki­legt hug­tak, sér­stak­lega af því að fólk sem virð­ist hlið­hollt þess­ari teg­und stjórn­mála á þann hátt að það minn­ist á “skyn­semi” við hvert til­efni – hljómar ekk­ert rosa­lega skyn­sam­lega frá mínum bæj­ar­dyrum. Látum það aðeins liggja á milli hluta nákvæm­lega hvað er sagt og byrjum að átta okkur á því að – bara af því að ein­hver seg­ist aðhyll­ast “skyn­söm” stjórn­mál, þá þýðir það bara alls ekk­ert að við­kom­andi sé skyn­samur.

Til að byrja með gæti við­kom­andi í raun og veru haldið að skoð­anir hans séu skyn­samar, þegar þær eru það bara alls ekki. Við­kom­andi gæti trúað því í ein­lægri alvöru. Það er lík­legra en að um óheið­ar­leika sé að ræða, að við­kom­andi segi óskyn­sam­lega hluti þrátt fyrir að vita betur og kalli það bara skyn­sam­legt. Ljúgi, sem sagt. Þess vegna er enn erf­ið­ara fyrir alla sem hlusta á meinta skyn­semi, að greina á milli þess hvort um óskyn­sam­legar til­lögur er að ræða eða ekki.

Hér er svo sem hægt að skipta út orð­inu “skyn­semi” fyrir ýmis önnur orð eins og “heið­ar­leiki”, “gagn­sæi”, “rök­hyggja” og svo fram­vegis. Eina leiðin til þess að kom­ast að því hvort eitt­hvað sé heið­ar­legt, skyn­samt, rök­rétt eða hvað það nú má vera – er að skoða stað­reyndir máls­ins – og það er bara fjarri því að vera ein­falt.

Tökum dæmi. Gefum okkur að það sé verið að selja rík­is­eign. Til dæmis rík­is­banka. Sá sem selur bank­ann er fjár­mála­ráð­herra, eða eins og segir í lögum: “Ráðherra tekur ákvörðun um hvort til­boð skuli sam­þykkt eða þeim hafnað”. Nú langar pabba fjár­mála­ráð­herra rosa­lega mikið að kaupa hluta af þessum rík­is­banka og sendir inn kauptil­boð. Ég held að við gerum okkur öll grein fyrir því að ráð­herra má ekki selja pabba sínum neinar rík­is­eignir, það væri hags­muna­á­rekstur, en þegar ráð­herra er spurður út í þetta svarar hann bara “mátti pabbi ekki kaupa?”

Mér finnst þetta ein­stak­lega gott dæmi um skyn­sem­is­stjórn­mál. Þarna beinir ráð­herra sjónum fólks að rétti pabba síns til þess að kaupa og frá hags­muna­á­rekstr­inum sem fjallar um að hann megi ekki selja. Hvort tveggja getur nefni­lega verið satt. Pabbinn má kaupa en ráð­herra má ekki selja.

En ein­hverra hluta vegna, þrátt fyrir alla skyn­semi, heið­ar­leika, gagn­sæi og hvað það má nú vera. Þá sitjum við uppi með þá stað­reynd að fjár­mála­ráð­herra Íslands seldi pabba sínum hlut í rík­is­banka og við þurfum að rök­ræða það eitt­hvað frekar hversu óvið­eig­andi það er. Hversu ólög­legt það hlýtur að vera? Er það þess vegna sem það má ekki fá rann­sókn­ar­nefnd?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við