Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rifjar upp gleðigöngu liðinna ára: „Þegar ég sé aukna transfóbíu á Íslandi er ástæða til að mæta“

Rifjar upp gleðigöngu liðinna ára: „Þegar ég sé aukna transfóbíu á Íslandi er ástæða til að mæta“
Anna á gleði­göng­unni 2013.

Anna Krist­jáns­dóttir talar um gleði­göngur fyrri ára og aukna trans­fó­bíu í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook.

Anna, sem hefur verið leið­andi í bar­áttu Trans­fólks á Íslandi um ára­bil, við­ur­kennir að hún sakni þess ekki að vera á Íslandi í gleði­göngu dags­ins því henni langi ekk­ert sér­stak­lega til Íslands. Segir hún að þegar hún sjái aukna for­dóma gegn trans­fólki á land­inu, sé ástæða til að mæta og sýna sam­stöðu, „þá ekki síst þegar vart verður við klofn­ings­hópa sem sjá trans­fólki allt til ama.“

Þá við­ur­kennir hún einnig að hafa verið nokkuð löt við að mæta í gleði­göng­una í gegnum árin þó hún styðji hana af heilum hug. Anna rifjar upp gleði­göngur fyrri ára og þegar hún stofn­aði Trans­gender Europa og Trans-Ísland ásamt fjöldi ann­arra bar­áttu­manna. Að lokum sendir hún bar­áttu­kveðju til hinsegin fólks á Íslandi og vonar hún að gleði­gangan muni ganga vel.

Færsluna má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

Dagur 1460 – Hinsegin dagar og gleði­gangan.

Ég verð að játa að ég sakna þess að vera ekki á Íslandi í gleði­göngu dags­ins í dag. Mig langar ekk­ert sér­stak­lega til Íslands, en þegar ég sé aukna trans­fó­bíu á Íslandi er ástæða til að mæta og sýna sam­stöðu gegn fób­í­unni, þá ekki síst þegar vart verður við klofn­ings­hópa sem sjá trans­fólki allt til ama. Að auki skilst mér að það verði ekki mjög kalt á Íslandi í dag þannig að flís­peysan og vað­málspilsið hefðu nægt í gleði­göngu dags­ins.

Ég við­ur­kenni alveg að ég hefi verið fremur löt við að mæta í gleði­göng­una í gegnum árin þótt ég styðji hana heils­hugar, en fyrstu árin sem hún var gengin, var aðal­á­herslan á að bæta rétt­indi sam­kyn­hneigðra, en við hin fengum að fylgja með. Ég man ekki hvaða ár það var sem Samtökin 78 breyttu áherslum sínum og gerð­ust LGBTQIA+ sam­tök þótt við hefðum ávallt verið vel­komin í göng­una, sem nota bene, er haldin á vegum Hinsegin daga, en ég var hvað virk­ust í hinsegin starfi á þeim tíma, auk þess sem ég tók þátt í að stofna Trans­gender Europe og Trans-Ísland ásamt fjölda ann­arra bar­áttu­manna af öllum kynjum, en sat í fyrstu stjórn Trans­gender Europe frá 2005-2008.

Oft var ég á vakt­inni á sama tíma og gleði­gangan fór fram en úti á sjó í ein­hverjum til­fellum, t.d. 2015 þegar ég var að leysa af á Herjólfi og fleiri manns minntu mig á að ég væri á risa­stóru plakati á Skóla­vörðu­stíg. Sjá minn­ingu í gær.

Það var mér sömu­leiðis minn­is­stætt er ég og Anna Margrét gengum í fyrsta sinn með trans­fán­ann í gleði­göng­unni, var það ekki 2013? Það eru komin tíu ár síðan. Samt finnst mér eins og að það hefði verið í gær. Sjá myndir. Takk þið sem tókuð mynd­irnar. Nú er farið að mála fán­ann á götu í Reykja­vík.

Þar sem ég bý hér í Paradís þar sem flestum er hjart­an­lega sama um það hvort ein­hver er trans eða eitt­hvað annað, verð ég að láta mér nægja að senda bar­áttu­kveðjur til alls hinsegin fólks á Íslandi og megi gleði­gangan verða sem best heppnuð sem og önnur þau atriði Pridevik­unnar sem ég hefi líka misst af.

Á morgun sunnu­dag, verður mjög stuttur en ánægju­legur pist­ill enda sunnu­dagur.

Gleði­gangan í Reykja­vík hefst klukkan 14 en gengið verður frá Hall­gríms­kirku að Hljóm­skála­garð­inum þar sem skemmti­at­riði mun gleðja mann­skap­inn. Víða um land verða gengnar gleði­göngur á sama tíma.

Mannlíf sendir bar­áttu­kveðjur til hinsegin sam­fé­lags­ins í til­efni dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við