Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Teitur fékk sig fullsaddan af sorphirðu borginnar: „Orðinn þreyttur á að vera Indriði“

Teitur fékk sig fullsaddan af sorphirðu borginnar: „Orðinn þreyttur á að vera Indriði“
Teitur Atlason tók sorp­málin í Vest­ur­bænum í sínar hendur. Myndin er sam­sett

„Mér dettur bara í hug karakt­er­arnir hans Jóns Gnarrs. Magnús Skúli Magn­ús­son stýrir för­inni og þar af leið­andi breyt­ast borg­ar­búar í Indriða sem láta allt fara í taug­arnar á sér og kvarta og kveina í sífellu. Ég er orð­inn þreyttur að að vera Indriði og ákvað á dög­unum að vera ég sjálfur. Ég ætla að taka til eftir sóð­ana við grennd­ar­gámana við JL-Húsið og Vest­ur­bæj­ar­laug­ina. Mér er alveg sama þótt fólk telji mig skrýt­inn og vera með lausa skrúfu. Það er betra en að vera Indriði. Hann er óþol­andi“ skrifar Teitur Atlason íbúi í Vestubæ Reykja­víkur sem hefur fengið sig fullsaddan af sorp­hirðu í borg­inni. Hann deilir á Facebook með öðrum íbúum hverf­is­ins pistli og eigin fram­taki vegna stöð­unar:

„Mér hefur ásamt öðrum í hverf­inu blöskrað sóða­skap­ur­inn í kringum grennd­ar­gáma­stöðv­arnar sem eru við Vest­ur­bæj­ar­laug og JL-Húsið. Umgengin var með því­líkum endemum að ég varð bein­línis for­vit­inn að kom­ast til botns í mál­inu. Ég sá strax að gám­arnir voru alltaf troð­fullir og því ákveð­inn freistni­vandi frá borg­urnum að skilja bara eftir ruslið sitt fyrir utan gám­inn. Þetta er auð­vitað fer­legur rudda­skapur en í ákveðnu ljósi er þetta skilj­an­legt.“

Teitur útskýrir að fyr­ir­tækið Terra sjái um tæm­ingar á grennd­ar­gáma­stöðvum fyrir Sorpu, sem er í eigu sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann segir að því miður ráði íbúar Reykja­víkur ekki miklu innan Sorpu og full­trúar borg­ar­innar mjög passí­vir á eig­in­lega allt sem kemur á borð stjórn­ar­innar.

Eftir svolitla athugun komst Teitur að því að Terra sér um að tæma grennd­ar­gámana einu sinni í viku óháð þörfum íbúa eða síend­ur­tekna þörf á frek­ari losun sem birt­ist í rusla­stöflum sem mynd­ist við gámana: „Þjón­ustan er sem sagt ekki miðuð við þörf­ina á henni heldur eitt­hvað daga­tal“.

Sumarfríið nýtt til sorphirðu

Teitur ein­setti sér að gera til­raun í sum­ar­frí­inu sínu og fylgj­ast með hversu ört gám­arnir væru tæmdir.

„Ég mætti á hverjum degi í tvær vikur og tók ljós­myndir og skrif­aði litla skýrslu á Facebooksíðunni “Vest­ur­bær­inn”. Nið­ur­staðan er í komin í hús mér sýn­ist fatagámur­inn, sem þjónar póst­núm­erum 170 og 107 og hluta af 101, fyllis á tveimur sóla­hringum. Pappírs og plast­gám­arnir eru tæmdir á viku fresti,“ ritar Teitur.

„Grennd­ar­gáma­stöðin við JL-Húsið var sér­stak­lega ógeðs­leg og meira að segja Rauði kross­inn hafði tekið í burtu fatagám­inn sem var á stöð­inni. Ég í félagi við annan áhuga­mann um sorp­mál í Vest­ur­bænum, ræstum svæðið og gerðum fínt. Fórum með heila kerru af rusli í Sorpu. Daginn eftir sóp­aði ég í kring og þreif drull­una af gámunum sjálfum. Ég rétti af gámana því þeir voru ekki sam­síða og raðað bara ein­hvern­vegin. Ég var viss um að þrifa­leg grennd­ar­stöð kall­aði á þrifa­lega umgengni. Þetta hefur gengið eftir og núna hefur grennd­ar­stöðin við JL-Húsið verið fín og þrifa­leg í meira en viku. Sama er ekki hægt að segja um grennd­ar­stöð­ina við Vest­ur­bæj­ar­laug en ég tók mig einnig til og þreif upp óþverr­ann sem rusla­kjánar höfðu skilið eftir. Sjáum hvað setur,“ útskýrir Teitur.

Fatagámum fækkað vegna bágrar umgengni

Teitur bendir á að fatagámum á vegum Rauða kross­ins á svæð­inu hafi fækkað úr fimm niður í einn sökum sóða­skapar og bágrar umgengni.
„Þegar grennd­ar­gáma­stöðin var á Eiðis­torgi voru þar þrír fatagámar auk ann­arra gáma. Stöðinni var lokað vegna slæmrar umgengni og ekk­ert sett í stað­inn. Vandinn var bara fluttur til Reykja­víkur en það er reyndar hálf­gert inn­tak í póli­tík á Nesinu en það er önnur og sorg­legri saga. Auðvitað er slæm umgengi vond í sjálfu sér. En að nota slæma umgengi til þess að loka grennd­ar­stöð sem lang­sam­lega flestir ganga vel um, er fárán­leg stjórn­sýsla.“

„Ég var fyrst og fremst for­vit­inn um tíðn­ina á tæm­ingu þess­ara gáma og þá komst ég t.d að því að fatagámur Rauða kross­ins fyllist á tveimur sóla­hringum en er tæmdur á viku fresti. Afleið­ingin er að fólk skilur eftir fata­poka fyrir utan gám­inn. Það er alger fáviska því um leið og þetta ger­ist er inni­hald­inu hent með gömlum sófa­settum og þess háttar og að lokum urðað.“

Teitur útskýrir að blautar flíkur sem skyldar eru eftir fyrir utan gámana blotni jafnan sökum  veð­urs. Þessar flíkur mygli í geymslu og dreif­ist yfir í aðrar flíkur: „Allt inni­hald gáms­ins eyði­leggst á skömmum tíma. Og öll sú við­leitni almenni­legrar mann­eskju að end­ur­nýta fötnin sín er fyrir bí vegna þess að ein­hver bjáni skildi eftir fata­poka fyrir utan gám­inn.“
Því eru fata­pokum fyrir utan fatagáma hent beint í urðum þegar þeir eru týndir saman.
Teitur bendir Rauða Kross­inum á tvær mis­mun­andi lausnir sem gætu stuðlað að bættri end­ur­nýt­ingu og minni sóða­skapar, enda Vest­ur­bæ­ingar orðnir lang­þreyttir á ástand­inu.

Teitur telur að lausnin sé fólgin í að auka tíðni los­unar gámanna og/eða að fjölga þeim.

Margt þykir Teiti óskilj­an­legt við rekstur grennd­ar­stöðv­anna og fjöl­margar spurn­ingar hafa kviknað hjá honum í kjöl­far máls­ins og eru þær meðan ann­ars:
Hvers vegna eru grennd­ar­stöðv­arnar ekki tæmdar oftar?
Af hverju eru ekki fleiri gámar?
Hvers vegna er gámunum raðað eins og ten­ingum í Yatsí?
Af hverju eru gám­arnir beyglaðir og brenndir?
Af hverju eru ekki gámar fyrir málma á grennd­ar­stöðvum?
Hvers vegna ganga svona grennd­ar­stöðvar upp í borgum erlendis en ekki í Reykja­vík?
Teitur er búinn að gef­ast upp á starf­mönnum borg­ar­innar og verk­tökum sem fyrir hana starfa og skrifar í lokin:
„Þetta hefur verið lær­dóms­ríkt og ég veit að það eru fleiri en ég sem eru orðin þreytt að því að vera Indriði. Ég ætla ekki að treysta á starfs­menn borg­ar­innar eða verk­taka á hennar vegum til þess að þrífa upp eftir illa upp alda sóða. Ég ætla bara að gera það sjálfur.“

Hér má lesa færslu Teits í heild

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina