Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Una hugsar um jólagjafir allt árið: „Ég er ekki nógu dugleg“

Una hugsar um jólagjafir allt árið: „Ég er ekki nógu dugleg“
Una Sig­hvats­dóttir hugsar mikið um jólin

Neytandi vik­unnar er Una Sig­hvats­dóttir. Una er 34 ára og býr í Mos­fellsbæ með Jóni Kort ásamt tveimur börnum þeirra. Hún er deild­ar­stjóri frí­stundar í Helga­fells­skóla í Mos­fellsbæ og dýrkar starfið. Una elskar að úti­veru, ferð­lög og eyða tím­anum með fjöl­skyldu og vinum.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Ég við­ur­kenni að ég er ekki nógu dug­leg að gera það. Það hefur alveg komið fyrir en ég þarf klár­lega að bæta mig í því. 

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? 

Ég reyni mitt besta til að plana vik­una fyr­ir­fram og gera inn­kaupa­lista út frá því. Svo þarf ég að sjálf­sögðu að halda mig við list­ann þannig að það læð­ist ekk­ert í körf­una sem vant­aði ekki á heim­ilið. Mér finnst líka mjög þægi­legt að gera stóra rétti í einu svo ég geti fryst afgang­ana og nýtt þá seinna. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég reyni mitt allra besta til að end­ur­nýta. Það eru þá helst föt sem eru end­ur­nýtt á mínu heim­ili. Við erum mjög heppin að hafa fengið mikið gef­ins af barna­fötum frá fjöl­skyldu og vinum. Svo höfum við að sjálf­sögðu keypt alls konar í Barna­lopp­unni. Ég hef svo sjálf verið með bás í bæði Barna­lopp­unni og Extra­lopp­unni til og fengið ágætis summu út úr því. Mitt besta ráð til ann­arra er að skella sér í hóp á facebook sem heitir „Áhuga­hópur um end­ur­vinnslu og end­ur­nýt­ingu“. Þar getur maður oft aug­lýst alls konar dót sem aðrir geta end­ur­nýtt. 

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég vil helst að mat­varan mín end­ist sem lengst svo ég þurfi að fara sem sjaldn­ast í búð­ina. Ég reyni líka að kaupa mér föt sem er hægt að nýta sem hvers dags en líka hægt að vera í þeim þegar maður fer eitt­hvað fínt. Ég er oft­ast búin að pæla mikið í gjöfum sem ég kaupi því ég vil að þær nýt­ist sem best á sama tíma og við­kom­andi verður glaður með gjöf­ina. Ég er til dæmis með „excel“ skjal sem ég hef nýtt í mörg ár þar sem ég skrifa inn jóla­gjafa­hug­myndir þegar ein­hver í kringum mig nefnir eitt­hvað sem hann langar í eða vantar. Þannig get ég keypt gjafir á til­boðs­dögum sem ég veit að verða not­aðar. 

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á? 

Líklega alls konar barna­dóti sem mér finnst mjög snið­ugt þegar ég sé það á net­inu. 

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Að sjálf­sögðu skiptir það mig og okkur öll máli. 

Annað sem þú vilt taka fram? 

Ham­ingjan fellst ekki í því að eiga dýrasta og flottasta dótið. Verum dug­leg að nýta hlut­ina okkar vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina