Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eldfim færsla Brynjars um Samtökin 78:„Anorexíu sjúklingurinn er ekki feitur þótt hann upplifi það“

Eldfim færsla Brynjars um Samtökin 78:„Anorexíu sjúklingurinn er ekki feitur þótt hann upplifi það“

Brynjar Níelsson skýtur föstum skotum á Íslands­deild Transparency International og Samtökin 78 í nýj­ustu Facebook-færslu sinni en færslan olli nokk­urri úlfúð.

Færsla Brynjars Níels­sonar, fræg­asta fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns ráð­herra, er öðru­vísi en flestar færslur hans að því leit­inu til að húmor­inn sem hann er þekktur fyrir, er hvergi að sjá. „Ég hef stundum haft að orði að þeir sem eru að berj­ast gegn frjálsum mark­aðs­bú­skap, svo­nefndir sós­í­alistar eða vinstri menn, hreiðra gjarnan um sig í frjálsum félögum með göfug mark­mið og jafn­vel yfir­taka þau til að nýta í sinni póli­tísku bar­áttu,“ skrifar Brynjar í upp­haf færsl­unnar. Sem dæmi um slíkt nefnir hann Íslands­deild Transparency International, sem hann segir að þyk­ist berj­ast gegn spill­ingu „en snúa öllu á haus.“ Bætir hann við: „Sá félags­skapur er fyrst og fremst í and-kapital­ískri bar­áttu og átta sig ekki á að spill­ing er óhjá­kvæmi­legur hluti sós­íal­ískar hug­mynda­fræði, eins og sagan hefur kennt þeim sem nenna að lesa hana.“ Um Atla Þór Fanndal, fram­kvæmd­ar­stjóra félags­ins, segir Brynjar: „Fram­kvæmda­stjóri þess félags­skapar er alveg sér á parti og skilur ekki einu sinni hvað felst í þrí­skipt­ingu rík­is­valds­ins. Maður sem telur rétt að stjórn­völd hafa afskipti af störfum sjálf­stæðs ákæru­valds, og telur að við eigum að læra af Namibíu í þessum efnum, veit ekki hvað spill­ing er.“

Þá nefnir Brynjar einnig Samtökin 78 sem gott dæmi um frjálst félag þar sem vinstri menn hafa „hreiðrar um sig“.  Um sam­tökin segir Brynjar: „En ein­hvern veg­inn hefur þessi félags­skapur þró­ast í það að vera í hat­rammri bar­áttu gegn tján­ing­ar­frels­inu og þeim sem eru með and­stæðar skoð­anir og nota til þess þekktar aðferðir komm­ún­ista hér á árum áður.“ Meðal loka­orða hans eru eft­ir­far­andi orð: „Mér er alveg fyr­ir­munað að skilja að menn sem eru að berj­ast fyrir rétt­indum ein­stak­linga skuli vera and-kap­ít­alistar og telja að alræði sós­í­al­ism­ans sé lausnin.“

Færslan hefur valdið nokk­urri úlfúð meðal les­enda þó margir styðji orð Brynjars. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata og svar­inn and­stæð­ingur Brynjars, skýtur meðal ann­ars á hann: „“Mér er alveg fyr­ir­munað að skilja“ segir þú ansi oft.“ Bætti hann svo við í annarri athuga­semd: „Svo það sé sagt beint út hvað þetta þýðir. Þá er þetta taktík hjá Brynjari til þess að láta aðra líta út fyrir að vera óskilj­an­lega og vit­lausa. Illa dul­búin „í mann­inn“ orð­ræða hjá honum. Ég er búinn að ákveða að svara þessu bara bók­staf­lega, af því að það er svo margt sem hann virð­ist ekki skilja … að þá liggur vanda­málið kannski ekki hjá öllum hinum.“

Anna Krist­jáns­dóttir skrif­aði ansi harð­orða athuga­semd við færslu Brynjars en þar fer hún mik­inn gegn Eldi Deville, for­manni Sam­tak­anna 22. „Kæri Brynjar. Atli Þór Fanndal vinur minn var ein­ungis að svara furðu­fugli sem hatar trans­fólk. Allt hans tal und­an­farin ár ganga út á að sýna framá hve trans­fók er vont og á sér ekki tiveru­rétt. Hvað myndir þú segja ef hann ályktaði að alþing­is­menn væru óþverra­fólk og bæri að útrýma þeim? Þannig hefur eld­ur­inn látið gegn trans­fólki. Ég fyr­ir­lít hann af öllu mínu hjarta og megi hann brenna í hel­víti fyrir mér.

Atli Þór Fanndal má líka eiga sínar skoð­anir sem ég virði.“

Þessu svarar Brynjar meðal ann­ars með eft­ir­far­andi orðum: „Kæra Anna. Ég hef ekki frekar en Eva Hauks fundið þetta hatur gegn trans­fólki frá þessum manni, ekki frekar en meint hatur J.K. Rowling gegn trans­fólki.“

Heiða B. Heiðars, einn af stofn­endum Stund­ar­innar svar­aði þessu: „Brynjar Níelsson en trans fólk hefur fundið það. Skiptir máli hvort þú eða Eva finnið það?“

Brynjar svar­aði að bragði: „Þú getur ekki dæmt fólk eftir upp­lifun þinni. Anorexíu sjúk­ling­ur­inn er ekki feitur þótt hann upp­lifi það.“

Einn einn þunga­vigt­ar­maður á Inter­net­inu svar­aði Brynjari en það var Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur: „Hlægi­legt, kom­andi frá manni inn­múr­uðum í versta sovėt­flokk lands­ins, sem hefur enga aðra stefnu en að hlaða undir ein­okun og fákeppni eigin vina. Geturðu ekki frekar reynt að vera fynd­inn, Brynjar, en að ausa úr þessum aula­heimsku­lygum?“

Færsluna má sjá hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við