Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hallgrímur fullur af þakklæti og spennu: „Þetta er einhvers konar óreglubundin rútína“

Hallgrímur fullur af þakklæti og spennu: „Þetta er einhvers konar óreglubundin rútína“
List­mað­ur­inn Hall­grímur Árnason opnar sína fyrstu sýn­ingu á Íslandi – Mynd: Simone Hart

Hall­grímur Árnason er einn mest spenn­andi lista­maður þjóð­ar­innar en hann heldur sína fyrstu mynd­list­ar­sýn­ingu á Íslandi í dag en ber sýn­ingin nafnið Opnar Skjöldur. Stendur sýn­ingin yfir til 30. sept­em­ber. Hall­grímur hefur skapað list sína und­an­farin ár í Vín í Aust­ur­ríki við gott orð­spor. Hall­grímur, sem ólst upp í Breið­holti, hefur unnið ýmis störf í gegnum árin eins og leik­skóla­leið­bein­andi, þjónn og flug­freyja en starfar í dag sem mynd­lista­maður.

„Sýningin fer fram í Listval Gallery,“ sagði Hall­grímur við Mannlíf um hvernig þessi sýn­ing kom til „Í raun voru fyrstu kynni mín og Listvals nútíma­leg sam­fé­lags- og instagram-kynni sem ég man nú ekki alveg hvernig til komu svona alveg í byrjun. Upphafið á okkar sam­starfi var svo þátt­taka mín í jóla­sam­sýn­ingu þeirra í Hörpu síð­ast­lið­inn vetur og upp úr því fór sam­talið fljótt að leið­ast út í pæl­ingar um einka­sýn­ingu á þeirra vegum. Þetta er bara búið að vera ynd­is­legt sam­starf og ég er þeim List­vals­konum afskap­lega þakk­látur fyrir tæki­færið, sam­starfið, trúna, skiln­ing­inn og bara stemn­ing­una almennt. Þetta hefur verið frá­bært og ég get ekki beðið eftir að opna sýn­ing­una fyrir almenn­ingi.“

„Ég reyni nú eftir bestu getu að stilla vænt­ing­unum í hóf, en það er óneit­an­lega erfitt þegar eft­ir­vænt­ing­unni tekst ein­hvern veg­inn alltaf að taka völdin,“ sagði lista­mað­ur­inn um vænt­ingar sínar gagn­vart sýn­ing­unni. “Verandi mín fyrsta sýn­ing á Íslandi, þá eru þetta þó svo­lítið ótroðnar slóðir sem ég er að feta og hef ég í raun­inni ekki hug­mynd um hvers ég nákvæm­lega á að vænta. Enn sem komið er er til­hlökk­unin ráð­andi til­finn­ingin, en það kæmi mér lítið á óvart ef kvíð­inn tæki svo upp á því að frekj­ast svo­lítið þegar nær dregur opnun. Almennt er ég þó bara gríð­ar­lega spenntur að fá loks­ins að sýna fólki hér heima hvað ég er að aðhaf­ast á strig­anum þarna úti í Vín. Ég vona svo nátt­úru­lega að þetta reyn­ist verða sýn­ing sem heilli og dragi fólk að og að þetta verði í raun ein­hvers konar upp­haf að auk­inni list­rænni við­veru minni á Íslandi.“

Viðrar vel til lofts­lags­breyt­inga eftir Hallgrím Árnason

En eins og margir lista­menn þá lifir Hall­grímur ekki hinum týpíska 9 til 5 lífstíl þegar kemur að vinnu­ferl­inu. „Þetta er ein­hvers konar óreglu­bundin rútína þar sem flakkað er á milli þess að mála, efast, mála, hugsa, sofa, mála, fyll­ast mik­il­mennsku­brjál­æði, mála meira, fyll­ast svo eft­ir­sjá og ofsa­kvíða, sofa illa, mála aftur meira, sofa aðeins betur og lenda svo að lokum á þeirri mála­miðlun að þetta sé, jú, bara býsna gott allt saman. Svo er þetta bara end­ur­tekið í sífellu þar til verkin lenda á sýn­ing­unni.“

„Ég reyni eftir fremsta megni að fylgj­ast vel með, sem er í dag orðið til­tölu­lega auð­velt með aðstoð Instagram og er það alveg ótrú­lega skemmti­legt því hér eru frá­bærir hlutir í gangi. Það lista­fólk sem mér dettur fyrst í hug eru Georg Óskar, Kristín Morthens og Halldór Ragn­ars­son,“ sagði Hall­grímur um hvort hann gæti fylgst með íslensku lista­sen­unni þó svo hann búi í Aust­ur­ríki. „Fór svo á æðis­lega yfir­lits­sýn­ingu Snorra Ásmunds­sonar í Lista­safni Reykja­nes­bæjar ásamt því að hafa heill­ast upp úr skónum af sýn­ingu Dýrfinnu Benitu í Hafn­ar­hús­inu. Svo má ég líka til með að nefna Vín­ar­bræður mína, þá Berg Nordal og Jakob Veigar, en Bergur hélt nýverið stóra einka­sýn­ingu í Berlín á meðan Jakob opnar sýn­ingu í Lista­safni Árnes­inga í byrjun sept­em­ber.“

Þó að Hall­grímur sé að halda sýn­ingu á Íslandi þá sér hann ekki fram á að flytja heim til Íslands, að minnsta kosti ekki á næst­unni. „Aldrei að segja aldrei, því hver veit hvað fram­tíðin ber í skauti sér, en í augna­blik­inu stefnir frekar í að önnur lönd verði næst á list­anum yfir áfanga­staði. Hvort það verði svo t.d. ein­hvers staðar í Skand­in­avíu, á Englandi eða í Þýska­landi verður bara að fá að koma í ljós. Það er svo mikið til af spenn­andi borgum, sjáðu til.“

Notkun gervi­greindar í listum hefur verið mikið í umræð­unni und­an­farið ár og eru margir alfarið á móti að blanda listum og gervi­greind saman.

„Ég verð nú að við­ur­kenna að ég hef lítið fylgst með þeirri umræðu,“ sagði Hall­grímur um málið. „Mál­verkið hefur und­an­farin ár átt hug minn svo gott sem allan og sem betur fer tel ég enn langt í, ef yfir höfuð mögu­legt, að gervi­greind komi til með að skila af sér ein­hverju sem virk­aði sann­fær­andi sem slíkt. Málverk þarf maður að upp­lifa í per­sónu, því maður þarf að geta skoðað það af nánd, upp­lifað strúkt­úr­inn og áferð­ina, löng­un­ina til að snerta og stundum jafn­vel á ein­hvern furðu­legan hátt að smakka það, velt fyrir sér efn­is­notkun, hugs­un­ar­hætti og upp­lifun þess sem stendur því að baki. Sem og nátt­úru­lega þá furðu­legu blöndu mann­legra þátta, svosem breysk­leika, hæfi­leika, ástríðu og eig­in­leik­ans að geta unnið úr og með eigin van­kanta, sem á ein­hvern hátt er, að mínu mati, upp­skriftin að þeirri orku sem gerir góða mynd­list að snilld. Hvort þetta sé á valdi gervi­greindar veit ég ekki. Ég veit hins­vegar að ég vona ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina