Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eliza flutti til Íslands fyrir 20 árum: „Ég mætti ekki sömu fordómum og margir aðrir innflytjendur“

Eliza flutti til Íslands fyrir 20 árum: „Ég mætti ekki sömu fordómum og margir aðrir innflytjendur“
Eliza og Guðni fyrir 20 árum. Mynd: Facebook

Eliza Reid for­seta­frú Íslands rifjar upp í færslu á Facebook er hún kom til Íslands sem inn­flytj­andi fyrir 20 árum síðan en hún er frá Kanada.

Í færsl­unni fer Eliza yfir það sem varð til þess að hún ákvað að flytja með Guðna Th. til Íslands en þau voru þá nýtrú­lofuð. Þá fer hún einnig yfir það hvað það gat verið erfitt fyrir hana að vera inn­flytj­andi og nefnir nokkur dæmi: „ Ég skrif­aði í dag­bók­ina mína, alveg án nokk­urrar kald­hæðni, um þann vanda í þessu nýja landi að sum mat­væli skorti alveg, einkum halloumi-ost (sem fæst núna) og gott creme fraiche (sem ég hef ekki enn fundið). Ég man líka að mán­uðum saman gat ég ekki leigt spólur á víd­eó­leig­unni því til þess þurfti kenni­tölu og þar var kerfið bara upp­fært tvisvar á ári. Já, það var svo sann­ar­lega erfitt fyrir mig að vera inn­flytj­andi …“ Tók Eliza sér­stak­lega fram að hún hafi sjálf komið frá ríku landi og hafi haft inn­fæddan maka sem hjálp­aði henni að venj­ast nýjum venjum og siðum og bætti við: „Þannig að ég mætti ekki sömu for­dómum og margir aðrir inn­flytj­endur.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Í dag eru slétt 20 ár frá því að ég flutti til Íslands. Skömmu síðar það ár keyptum við Guðni fyrstu íbúð­ina okkar (97 fer­metrar í 101 Reykja­vík fyrir 10,8 millj­ónir króna!). Ég fékk vinnu og byrj­aði á íslensku­nám­skeiði (8 klukku­stundir í viku, að loknum fullum vinnu­degi). Ég skrif­aði í dag­bók­ina mína, alveg án nokk­urrar kald­hæðni, um þann vanda í þessu nýja landi að sum mat­væli skorti alveg, einkum halloumi-ost (sem fæst núna) og gott creme fraiche (sem ég hef ekki enn fundið). Ég man líka að mán­uðum saman gat ég ekki leigt spólur á víd­eó­leig­unni því til þess þurfti kenni­tölu og þar var kerfið bara upp­fært tvisvar á ári. Já, það var svo sann­ar­lega erfitt fyrir mig að vera inn­flytj­andi …

Ég flutti hingað vegna þess að við Guðni, þá nýtrú­lofuð, höfðum tekið þá ákvörðun að byggja sam­líf okkar á Íslandi, eftir að hafa kynnst á Englandi og búið þar í tæp fimm ár. Nú hafði hann lokið sínu námi og var alltaf stað­ráð­inn í að flytja heim þar sem hann gæti verið nærri dóttur sinni af fyrra hjóna­bandi. Ég flutti því vegna hans, en ég vildi búa hér sjálfrar mín vegna. Strax frá fyrsta degi í nýju landi var lyk­il­at­riði fyrir mig að skapa minn eigin til­veru­grund­völl, óháð maka mínum. Ég vildi skapa mér starfs­frama, eign­ast eigin vini, eigin áhuga­mál og tóm­stundir.Ég var heppin að því að leyti að innan mán­aðar fann ég starf þar sem nám mitt og reynsla nýtt­ust vel og þar eign­að­ist ég góða vini. Ég naut þess líka að geta strax tekið krefj­andi nám­skeið í íslensku þannig að smám saman náði ég betri tökum á tungu­mál­inu. Svo gekk ég í kór og tók að mér sjálf­boða­störf í Rauða­kross­búð­inni á Land­spít­al­anum. Þar að auki vissi ég að ég væri ekk­ert á förum hvað úr hverju. Ég vissi að það var bara ekki í boði að hverfa á braut þegar skamm­degið hellt­ist yfir, þegar ég pirraði mig á því hversu erfitt það gat stundum verið að kynn­ast heima­fólk­inu, þegar ég missti vinn­una eftir ár og fann ekki annað starf í dálít­inn tíma. Ég ákvað mæta öllum þessum and­byr og bug­ast ekki.Allt þetta sýnir líka hversu heppin ég var þegar ég kom hingað. Ég gat lært íslensku því ég var í vel laun­uðu starfi og gat greitt fyrir nám­skeiðin. Ég bjó í mið­bænum og gat gengið eða tekið strætó fyrir starfið og félags­lífið. Ég var með inn­fæddum maka sem studdi mig í hví­vetna og hjálp­aði mér að skilja nýja siði og venjur. Ég kom frá öðru ríku landi og minn bak­grunnur var þannig að ég mætti ekki sömu for­dómum og margir aðrir inn­flytj­endur.Í ágúst­lok fyrir 20 árum átti ég mér þann draum að setj­ast hér að, var bæði spennt og dálítið kvíðin yfir því að ætla að lifa um langt skeið á þess­ari eyju úti í hafi. Þá gat ég auð­vitað ekki séð fyrir að við Guðni myndum eign­ast fjögur, ynd­is­leg börn til við­bótar við hans mögn­uðu dóttur, að ég myndi stofna rit­list­ar­búðir sem hafa gengið mjög vel, gefa út bók og hvað þá að verð­andi eig­in­maður minn yrði næsti for­seti lands­ins. Þetta hefur svo sann­ar­lega verið mikið ævin­týri. Megi næstu 20 ár vera eins góð og árin eftir það líka!(Ég fann ekki margar myndir frá fyrstu árunum hér en hér þegar við vorum að flytja í íbúð­ina okkar, með ósam­sett rúm úti í horni og ég í stutt­erma­bol sem ég keypti á hund­rað daga bak­poka­ferða­lagi sem ég lagð­ist í áður en ég flutti hingað).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við