Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir þingkonu hafa hótað kostanda: „Grafalvarlegt að kjörnir fulltrúar taki þátt í slíkum fasisma“

Segir þingkonu hafa hótað kostanda: „Grafalvarlegt að kjörnir fulltrúar taki þátt í slíkum fasisma“
Frosti Logason Mynd: YouTube-skjáskot

Frosti Logason segir alþing­is­konu hafa hótað kostanda að hlað­varps­þætti hans, Harma­geddon, eftir að for­maður Sam­tak­anna 22 mætti í við­tal.

Á YouTube er komið mynd­skeið sem sýnir brot úr nýlegum Harma­geddon-þætti Frosta Loga­sonar en þar heldur hann því fram að alþing­is­kona „gangi erinda ofstæk­is­fólks“ með því að hóta einum af kostendum þátt­ar­ins, í kjöl­far við­tals sem Frosti tók við Eld Ísidor Deville, for­mann Sam­tak­anna 22.

Í mynd­skeið­inu byrjar Frosti á að sýna frétt frá Fréttin.is þar sem birt er ljós­mynd af átta „akti­vistum“ sem sagðir eru berj­ast gegn mál­frelsi Sam­tak­anna 22.

„Það er búið að vera mjög áhuga­vert að fylgj­ast með því er Samtökin 22 voru að reyna að halda mál­þing núna nýverið, þá fóru allar vél­arnar í gang frá Sam­tök­unum 78, meðal ann­ars,“ segir Frosti og bætir við: „Eins og segir í frétt­inni þá hafa Samtökin 22 staðið í ströngu að und­an­förnu við að verj­ast hat­ursárásum fólks sem kemur úr öfga­hóp sem til­heyrir hinsegin sam­fé­lag­inu og Sam­tök­unum 78. Hópur þessi, sem seg­ist berj­ast fyrir ein­stak­lings­frels­inu, berst nú af hörku við að þagga niður í Sam­tök­unum 22 og hefur reynt að hefta mál­frelsi þeirra með öllum ráðum. Hópurinn hafði sig mikið í frammi með hót­unum og sví­virð­ingum í garð þeirra sem leigja sali víðs vegar um borg­ina síð­ast­liðna helgi en mála­vextir eru þeir að tveir salir sem Samtökin 22 höfðu fengið leigða með góðum fyr­ir­vara, voru afbók­aðir af stað­ar­höld­urum, dag­inn fyrir mál­þing þeirra, vegna stöðugra hót­ana frá öfga­hópnum. Annars vegar var við­burð­inum aflýst hjá Þjóð­minja­safn­inu og hins vegar hjá Reið­höll­inni í Víðidal.“

Frosti segir enn­fremur að hópur þessi hafi sakað Samtökin 22 um hat­urs­boð­skap „án þess að geta vísað í beint hatur og hefur ekki viljað taka umræð­una eða tjá sig frekar um hat­rið þegar eftir því hefur verið leitað.“ Segir hann því næst frá því að hann hefði boðið Eldi Ísidor Deville, for­mann Sam­tak­anna 22 í við­tal til að reyna að átta sig á því „um hvað málið snýst.“ Eldur mætti í settið að sögn Frosta og fór yfir „þessa stórfurðu­legu atburða­rás þegar aðilar frá Sam­tök­unum 78, sam­tökum sem eiga til­veru­rétt sinn að þakka stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­indum sem snúa að funda og félaga­frelsi í land­inu, veitt­ust með offorsi gegn frelsi ann­arra til að funda og ræða mál­efni sín og hags­muni.“

Frosti segir að um sé að ræða fólk sem kalli sig akti­vista sem berj­ist fyrir mann­rétt­indum, ein­stak­lings­frelsi og því að fólk fái að vera eins og það er. „Fólk sem fær að flytja sinn boð­skap í grunn­skólum lands­ins þar sem öll okkar börn eru skyldug til að mæta en þetta sama fólk geti svo ekki sofið rótt yfir því að ein­hverjir sem eru ósam­mála þeim fái að viðra sín sjón­ar­mið á mál­þingi þar sem eng­inn hefur verið neyddur til að mæta.“

Hinn umdeildi þátta­stjórn­andi segir að Brot­kastið, fyr­ir­tæki Frosta sem heldur utan um ýmsa hlað­varps­þætti á borð við Harma­geddon og Götu­strákar, hafi einnig mátt kenna á sama hópi. „Og þetta fólk beitir hörku. Við hér á Brot­kast­inu höfum fengið að kynn­ast því. Skömmu eftir að ég birti við­tal mitt við Eld, var byrjað að veit­ast að fyr­ir­tækjum sem hafa unnið sér það eitt til saka að hafa keypt af okkur aug­lýs­ingar. Einn kostanda Harma­geddon, sem er strang­heið­ar­legur við­skipta­maður og ekki í stríði við neinn, á enga óvini og hatar engan, lendir allt í einu í því að yfir hann hell­ast sví­virð­ingar, skammir og hót­anir um tekju­missi, fyrir það eitt að vera í við­skipta­sam­bandi við Harma­geddon á Brot­kasti. Og þá erum við ekki bara að tala um blá­hærða akti­vista í leit að til­gangi í ann­ars von­lausu lífi. Við erum líka að tala um kjörna full­trúa á hinu háa Alþingi, sem hafa ákveðið að ganga erinda þeirra sem hata tján­ing­ar­frelsið. Já, hugsið ykkur það. Kostandi Harma­geddon fékk sím­hring­ingu frá Alþing­is­konu sem virt­ist ganga það eitt til að reyna að hrella hann frá því að gera áfram­hald­andi við­skipti við efn­isveit­una Brotkast. Við erum að tala um kjör­inn full­trúa sem ákveður að beita áhrifum sínum til þess að reyna að skrúfa fyrir súr­efni fyrir sjálf­stætt starf­andi hlað­varpsveitu úti í bæ.“

Bætti Frosti við að hvorki hann né Brotkast hafi aldrei verið sakað um hat­ursá­róður eða hat­urs­boð­skap. „Og hefði ég ein­hvern tíma gerst sekur um slíkt, þá væri það leikur einn að draga mig fyrir dóm­stóla þar sem að slík athæfi eru hrein­lega bönnuð með lögum. En ég ræddi vissu­lega við Eld um hans sjón­ar­mið og Eldur kann að halda því fram að trans konur eigi ekki að fá að keppa í íþrótta­greinum líf­fræði­legra kvenna eða að karlar sem skil­greina sig sem konur í aðdrag­anda afplán­unar fang­els­is­dóma eigi ekki að fara í kvenna­fang­elsi. Og hann er líka þeirrar stór­hættu­legu skoð­unar að börnum eigi að hlífa við óaft­ur­kræfum með­ferðum við kynama og kynátt­un­ar­vanda. Og þetta eru hugs­an­lega mál sem ein­hverjum kunni að finn­ast óþarfi að ræða en það er algjör­lega óþol­andi að ofstæk­is­fólk fái að stjórna því. Og það er grafal­var­legt að kjörnir full­trúar á Alþingi taki þátt í slíkum fas­isma. Því þetta er ekk­ert annað.“ Bendir Frosti í kjöl­farið á að þetta séu sömu aðferðir og alræð­is­sinnar á tutt­ug­ustu öld­inni not­uðu til að kom­ast til valda og til að halda völdum. „Ef þú gengur ekki í takt við okkur munum við sjá til þess að þú eigir ekk­ert, megir ekk­ert og verðir ekk­ert. Við munum ein­angra þig og dæma til útlegðar og viti menn, allt var þetta gert með ofboðs­lega góðum ásetn­ingi, til að hreinsa sam­fé­lög af óæski­legum hug­myndum og skapa þannig fyr­ir­mynd­ar­ríki. Í dag erum við með tján­inga­frels­is­á­kvæði í stjórn­ar­skrá svo að svona vit­leysa fái ekki að end­ur­taka sig en þarf líka til hug­rekki þeirra sem vita betur. Ef eng­inn þorir að standa í lapp­irnar gagn­vart ofstæk­inu, mun það halda áfram að valta yfir okkur.“

Að lokum tekur Frosti fram að kostand­inn sem fékk sím­talið frá þin­kon­unni, hafi ákveðið að tvö­falda styrkt­ar­upp­hæð­ina til Harma­geddon og „halda ótrauður áfram.“ „Það gerir hann þrátt fyrir að hafa nú þegar tapað við­skiptum vegna þess­ara ofsókna. Það krefst mik­ils hug­rekkis að taka afstöðu með mál­frelsi í dag en það marg borgar sig.“

Mynd­skeiðið má sjá hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við