Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Atli Þór svarar Harmageddon: „Það að versla ekki við fyrirtæki sem styrkir KKK er varin tjáning“

Atli Þór svarar Harmageddon: „Það að versla ekki við fyrirtæki sem styrkir KKK er varin tjáning“
Atli Þór Fanndal

Atli Þór Fanndal svarar Frosta Logasyni og Eldi Ísidor Deville í nýrri færslu á Facebook. Þar talar hann um Ku Klux Klan í sam­hengi við snið­göngu á Harma­geddon.

Fram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Transparency International, Atli Þór Fanndal, svarar mynd­skeiði úr hlað­varps­þætti Frosta Loga­sonar, Harma­geddon, sem birt­ist á YouTube á dög­unum, í harð­orðri færslu á Facebook. Í mynd­skeið­inu segir Frosti frá aðferðum aðgerða­sinna sem berj­ast gegn Sam­tök­unum 22, þar sem Eldur Ísidor Deville gegnir for­mennsku en hringt var í tvo staði sem ætl­uðu að hýsa mál­stofu Sam­tak­anna 22, og þeim hótað, að sögn Eldar. Aflýstu báðir stað­irnir við­burð­inum og fór svo að Samtökin 22 héldu mál­stof­una í sal Mið­flokks­ins. Frosti sagði einnig frá því að sömu aðgerð­ar­sinnar hafi hringt í kostanda Harma­geddon og haft í hót­unum við hann, þar á meðal þing­kona.

Sjá einnig: Segir þing­konu hafa hótað kostanda: „Grafal­var­legt að kjörnir full­trúar taki þátt í slíkum fas­isma“

Þessu svarar Atli Þór en hann segir snið­ganga vera varða tján­ingu. Nefnir hann Ku Klux Klan í því sam­hengi.

„Bar­áttu­menn tján­ing­ar­frels­is­ins mættu alveg muna að snið­ganga er tján­ing. Það að versla ekki við fyr­ir­tæki sem styrkir KKK og hvetja til snið­göngu þessa fyr­ir­tækis er varin tján­ing,“ skrif­aði Atli Þór í færsl­unni og bætti við: „Kannski finnst þeim það subbu­legt en innan ramma tján­inga­frelsis er það algjör­lega“

Á öðrum stað í færsl­unni segir Atli „ofsókn­ar­brjál­æði öfga­hægri­manna“ vera ansi þreytt. „Það er kannski subbu­legt í huga sumra að kalla eftir snið­göngu en þetta bölv­aða ofsókn­ar­brjál­æði öfga­hægri­manna og Qanon fikt­ara er orðið alveg gasa­lega þreytt. Þetta heitir kjör­búða­lýð­ræði og þar til nýlega var það bein­línis stefna Val­hallar að veikja allar reglur því og tæta í sundur sam­fé­lags­sátt­mál­ann enda gæti hinn lýð­ræð­is­legi mark­aður svelt það sem ekki væri æski­legt.“ Þá segir Atli Þór að slaufun hafi verið stunduð á Íslandi í fjöldi ára af hægr­inu. „Hér á landi hefur verið stunduð mis­kunn­ar­laus slaufun árum saman en allt í einu þegar ungt fólk notar tólið sem notað var sem rök gegn öllum reglum og hættir að rítvíta kven­fyr­ir­litn­ingu eða sendir póst á smá­sölu­fyr­ir­tæki um að styðja ekki hatur þá er þriðja heim­styrj­öldin komin. Give me a fucking break.“

Í loka­orð­unum segir Atli Þór að hér á landi sé heilt vist­kerfi í kringum það „blæti“ að tala gegn trans­fólki, fem­in­isma, góða fólk­inu og fleira. „Þetta stans­lausa menn­ing­ar­stríð gegn fem­in­isma, góða fólk­inu, ungu fólki í mið­bænum sem drekkur froðu­kaffi eða trans­fólki er allt distraction. Hér á landi er heilt ecosystem í kringum þetta blæti sem vælir allan sól­ar­hring­inn alla daga doxx­andi og hót­andi þeim sem þau hafa skrímsla­vætt.“

Hér má lesa alla færsl­una:

„Bar­áttu­menn tján­ing­ar­frels­is­ins mættu alveg muna að snið­ganga er tján­ing. Það að versla ekki við fyr­ir­tæki sem styrkir KKK og hvetja til snið­göngu þessa fyr­ir­tækis er varin tján­ing. Kannski finnst þeim það subbu­legt en innan ramma tján­inga­frelsis er það algjör­lega. Sama á við um að nenna ekki að fylgja ein­hverjum á Twitter og hvetja fólk til að fara ekki á kvik­mynd með manni sem samdi nauðg­un­ar­vísur um konur er líka tján­ing. Það er kannski subbu­legt í huga sumra að kalla eftir snið­göngu en þetta bölv­aða ofsókn­ar­brjál­æði öfga­hægri­manna og Qanon fikt­ara er orðið alveg gasa­lega þreytt. Þetta heitir kjör­búða­lýð­ræði og þar til nýlega var það bein­línis stefna Val­hallar að veikja allar reglur því og tæta í sundur sam­fé­lags­sátt­mál­ann enda gæti hinn lýð­ræð­is­legi mark­aður svelt það sem ekki væri æski­legt. Hér á landi hefur verið stunduð mis­kunn­ar­laus slaufun árum saman en allt í einu þegar ungt fólk notar tólið sem notað var sem rök gegn öllum reglum og hættir að rítvíta kven­fyr­ir­litn­ingu eða sendir póst á smá­sölu­fyr­ir­tæki um að styðja ekki hatur þá er þriðja heim­styrj­öldin komin. Give me a fucking break. Cancel culture er upp­finn­ing hægr­is­ins til að fara athygli frá því hvernig þeir hafa kerf­is­bundið þrengt af gagn­rýnum röddum. Tilraun til að gera blá­hærða aðgerð­ar­inna að stærstu hætt­unni frekar en dóms­mála­ráð­herra sem kastar fólki á göt­una nú eða útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem fang­aði dóms og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu. Þetta stans­lausa menn­ing­ar­stríð gegn fem­in­isma, góða fólk­inu, ungu fólki í mið­bænum sem drekkur froðu­kaffi eða trans­fólki er allt distraction. Hér á landi er heilt ecosystem í kringum þetta blæti sem vælir allan sól­ar­hring­inn alla daga doxx­andi og hót­andi þeim sem þau hafa skrímsla­vætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina