Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Smáskömmtun á sveppum gjörbreytti lífi Gunnars: „Var að kaupa þetta á svarta markaðnum“

Smáskömmtun á sveppum gjörbreytti lífi Gunnars: „Var að kaupa þetta á svarta markaðnum“

Gunnar Wiium, kenn­ari og hlað­varps­stjórn­andi segir CBD olíu og smá­skammta af sveppum hafa breytt lífi sínu. Gunnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar  segir tími til kom­inn að fólk hætti skömm og felu­leik í kringum þessa hluti:

„Svepp­ur­inn, bæði í smá­skömmtun og „full dose“ ferða­lög sem fólk er að fara í er orðið gríð­ar­lega útbreitt. Það er fólk í öllum sam­fé­lags­stéttum og öllum sam­fé­lags­stigum að taka þetta út um allan bæ. En það er verið að gera það í laumi og í skuggum og oft þorir fólk ekki að segja neinum frá. Við eigum að opna á þessa umræðu og hætta laumu­leiknum og skömminni í kringum þetta. Það getur verið mjög mik­il­vægt að fólk þori að standa með sínum sann­leika, burt séð frá þvi hvað fólki finnst og stundum meira að segja burt séð frá því hvað lögin segja. Það er sama með svepp­inn eins og CBD að mjög margir eru að fá bót á alls kyns kvillum og bætta líðan með réttri notkun,“ segir Gunnar, sem sjálfur mætti með poka með smá­skömmtum af sveppum í við­talið til Sölva.

Hann segir að CBD olía hafi gjör­breytt lífi sínu og átt stóran þátt í að hjálpa sér að ná bata eftir ára­langa neyslu og álag á tauga­kerfið. Hann lýsir því í þætt­inum þegar hann byrj­aði að prófa CBD olíu í gegnum vin sinn:

„Ég fæ hjá honum ein­hverjar flöskur og fer að prófa þetta og ég var bara í laumuneyslu með þetta í tals­verðan tíma. Gagnvart kon­unni minni, sam­fé­lag­inu og öllum. En svo er þetta stöðvað að leyfa inn­flutn­ing á flösk­unum og þetta var mjög umdeilt. Ég var að kaupa þetta á svarta mark­aðnum. Það að hitta ein­hvern díler á bílaplani í laumi og rétta honum tutt­ugu þús­und­kall fyrir ein­hverja skíta­olíu var mjög súrt. Það að þurfa að fara þessa leið var óþægi­legt og sem betur fer er þetta allt breytt í dag. Ég segi fullum fetum að CBD olía hafi gjör­breytt lífi mínu. Fólkið sem stofn­aði Hamp­fé­lagið á stóran þátt í því að CBD olía var loks­ins leyfð á Íslandi og ég á þeim mikið að þakka. Neysla á CBD er orðin útbreidd á Íslandi og er bæði að sporna við kanna­bis­reyk­ingum hjá mörgum og að hjálpa til við alls kyns tauga­kerfisk­villa, kvíða og fleira.“

Gunnar segir að ef þess þurfi væri rétt að gefa sér­fræð­ingum bara fullt leyfi á að nota þessi efni til að hjálpa til við að lækna fólk:

„Ef við viljum halda okkur inni í akademíska kerf­inu og hjá læknum og sér­fræð­ingum, þá gerum við það bara. Þá förum við bara í það að gefa lækn­inum fullt skot­leyfi á að skoða hverjum kanna­bis eða sveppur getur hjálpað og vinna svo með það. Það er galið að fólk sem hefur náð að snúa við lífi sínu og laga heils­una þurfi að vera í felu­leik og skömm með það sem sann­ar­lega hefur hjálpað,“ segir Gunnar og bætir við að efni eins og Cannabis og sveppir séu sam­ofin sögu mann­kyns og áhrif þeirra á lík­ama og vit­und séu allt ann­ars eðlis en aggressí­vari efni eins og kókaín og amfetamín:

„Ef við horfum á stríðs­rekstur og græðgi og fleira sem við ættum öll að vera sam­mála um að séu nei­kvæðir hlutir, þá er alveg ljóst að það er knúið áfram af efnum eins og kóka­íni og amfetamíni, á meðan sveppir og cannabis setja fólk í allt ann­ars konar ástand og búa til mögu­leika á að fara inn á við.“

Gunnar veit af eigin raun hvað það er að fara á botn­inn í neyslu og segir mik­il­vægt að ræða um þessa hluti ef þeir geti hjálpað fólki að ná vopnum sínum á ný. Hann var kom­inn niður fyr­ir 50 kíló eft­ir mikla kóka­ínn­eyslu þegar verst lét. Í dag er hann edrú og hef­ur snúið lífi sínu gjör­sam­lega við.

„Kókaínið hirti mig svo gjör­sam­lega, þó að í raun sé það mjög vont efni í alla staði og áhrif­in ekki einu sinni góð. Þetta var yf­ir­leitt mest spenn­andi þegar ég var að bíða eft­ir dílern­um og kannski fyrstu mín­út­urn­ar eft­ir að ég tók inn efnið. En þetta efni end­aði á að rúa mig gjör­sam­lega inn að beini. Tótal egógeð­veiki þar sem þú miss­ir sjón­ar á öllu og hætt­ir að borða og sofa svo mán­uðum skipt­ir. Ég mis­not­aði líka THC í mörg ár, sem jók svo enn á þung­lyndið, sem keyrði mig inn í mína fyrstu grein­ingu sem Bi-pol­ar,“ segir Gunnar, sem lýs­ir ákveðnu at­viki sem varð til þess að allt breytt­ist í lífi hans, skömmu eft­ir að hann varð edrú, gjör­sam­lega bú­inn á lík­ama og sál:

„Það sem ger­ist fyr­ir mig þrem­ur vik­um eft­ir að ég stöðv­aði neysl­una mína árið 2016 er eitt­hvað sem ég get eig­in­lega ekki út­skýrt al­menni­lega. Ég sit í mikl­um frá­hvörf­um af öll­um þess­um efn­um og var í raun al­gjört flak bæði lík­am­lega og hug­ar­fars­lega. Stoð­kerfið var í hakki og ég var með sprung­in sár um lík­amann og fleira. En þá varð atvik sem end­aði með óút­skýr­an­legri heil­un og ég gekk út sem al­gjör­lega nýr maður og leið eins og ég væri heill. Út frá þessu byrj­aði ég að fyr­ir­gefa sjálf­um mér og lífið var bara gjör­breytt.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Gunnar og öll við­töl og hlað­vörp Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við