Oddný Harðardóttir gekk með þingflokki Vinstri grænna í Dómkirkjuna í þingsetningu Alþingi í gær. Segir hún gaman að hitta þingmenn eftir sumarhlé.
Þingmaður og fyrrum formaður Samfylkingarinnar, Oddný Harðardóttir birti skemmtilega ljósmynd af sér þar sem hún er umkringd þingmönnum Vinstri grænna. Ljósmyndin er tekin í gær við þingsetningu Alþingis. Skrifaði hún við myndina að nú „byrji ballið“ og að vitað sé að það verði tekist á um erfið mál á komandi þingi en að „Við vitum líka að við getum náð fram góðum lausnum með samvinnu milli stjórnar og stjórnarandstöðu.“ Þá grínaðist hún með að hafa gengið með VG en ekki í VG, í Dómkirkjuna.

Hér er öll færslan:
„Þingsetning í dag. Nú byrjar ballið.
Það var gaman að hitta þingmenn eftir sumarhlé.Við vitum að við munum takast á um ýmis mál á þinginu sem nú er að hefjast. Við vitum líka að við getum náð fram góðum lausnum með samvinnu milli stjórnar og stjórnarandstöðu.
Ég gekk með hinum góða þingflokksformanni VG Orra Páli í Dómkirkjuna. Ég gekk með VG en ekki í VG.
Á myndinni er ég umkringd VG og Framsókn. Allir glaðið nema Þórarinn sem er meira hissa.
Á morgun og næstu daga munum við takast á um stóru málin.“































Athugasemdir